
Miðað er við öflugt menningarstarf á forsendum staðbundinnar þekkingar og arfleifðar Þórbergs Þórðarsonar.
Starfið er laust frá og með 1. janúar 2027. Viðkomandi skal hafa fasta búsetu í Sveitarfélaginu Hornafirði, en húsnæði fylgir ekki starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjármál, rekstur og styrkumsóknir
- Stefnumótun og útfærsla á starfsemi
- Öll miðlun, viðburðir og sýningar stofnunarinnar
- Samningar og samstarf við innlenda og erlenda aðila
- Starfsmannamál og umsjón fasteigna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði hug- eða félagsvísinda og skyldra greina er æskileg
- Góð þekking á menningarmiðlun og hagnýt reynsla á því sviði
- Leiðtogahæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
- Reynsla af stjórnun, rekstri og fjárhagslegri ábyrgð
- Reynsla af bæði fræðilegum og almennum textaskrifum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Reynsla af þverfaglegu samstarfi er æskileg
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og settur fram rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Sótt er um starfið í gegnum Alfred.is.
Nánari upplýsingar veita Soffía Auður Birgisdóttir rannsóknarprófessor í síma 848-2003 og Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs í síma 623-7973