Sérfræðingur við Svavarssafn

Um fullt starf er að ræða og gerð er krafa um búsetu á svæðinu. Viðkomandi mun leiða starfsemi listasafnsins í samráði við forstöðumann. Mikill metnaður er fyrir sýningarhaldi Svavarssafns sem og miðlun og varðveislu safneignarinnar. Áhersla er lögð á að safnið og Menningarmiðstöðin öll auðgi samfélagið og sé í virku samtali við íbúa og aðra hagaðila.
Helstu verkefni:
- Leiða faglegt starf safnsins og daglega umsjón þess
- Umsjón með verkum og varðveislu þeirra
- Skipulagning og uppsetning sýninga
- Samskipti við listamenn og hagaðila
- Skrif og eftirfylgni styrkumsókna
Menntunar og hæfniskröfur
- - Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- - Reynsla af sambærilegum störfum
- - Þekking og reynsla af styrkumsóknum
- - Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
- - Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- - Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- - Þekking á menningarlífi í sveitarfélaginu kostur
Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 18. maí 2026
Umsókn með ferilskrá, meðmælendum og kynningarbréfi sendist rafrænt á netfangið kristinvala@hornafjordur.is. Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, á netfanginu kristinvala@hornafjordur.is og í síma 470-8051.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.