Fara í efni

Slökkvilið Hornafjarðar

Álaleira 2, 780 Höfn

Slökkvilið Hornafjarðar skiptist í tvær deildir, önnur á Höfn og hin í Öræfum. 
Sími slökkviliðs á Höfn er 470 8015 á skrifstofutíma. Símanúmer neyðarlínu er 112.

Áætlanir og skýrslur

Markmið brunavarnarátlunar er að uppfylla skyldur vegna laga um brunavarnir nr. 75/2000, um að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.

Markmið brunavarnaáætlunar er því eins og segir í 1.mgr. 13. gr. sömu laga að, tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, tækjum búið og starfsfólk menntað og þjálfað, að það ráði við þau verkefni sem því eru falin með lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Jafnframt er eitt af meginmarkmiðunum með brunavanaáætlun að sveitarfélög skilgreini hvernig þau nái að uppfylla tilgreind þjónustustig.

Brunavarnaáætlun 2023-2028

 

Slökkviliðsstjóri skal sjá til þess að Mannvirkjastofnun séu fyrir 1. maí ár hvert sendar upplýsingar um rekstur slökkviliðsins og búnað í samræmi við leiðbeiningar stofnunarinnar.
Jafnframt skal slökkvi­liðs­stjóri sjá til þess að eldvarnaeftirlitsskoðanir og útköll séu færð í rafrænan gagnagrunn í samræmi við leiðbeiningar Mannvirkjastofnunar.
Slökkviliðsstjóri skal gefa út eftirlitsáætlun ársins þar sem gerð er grein fyrir því hvaða mannviki, lóð og starfsemi í sveitafélaginu og mun sæta eldvarnaeftirlit það árið í starfssvæði hans. 

Eftirlitsáætlun 2025

 

Ársskýrslur Brunavarna Austur-Skaftafellssýslu eru gefnar út á hverju ári og samþykktar af bæjarráði. 

Ársskýrsla 2021

 

Slökkviliðsstjóri

Borgþór Freysteinsson
Slökkliðsstjóri