Fara í efni

Gjaldskrár

Verklagsreglur og gjaldskrá um garðslátt í einkagörðum

Verklagsreglur þessar fjalla um garðslátt og gjald fyrir íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

1. Notendur félagslegrar heimaþjónustu og aðrir sem velferðarsvið metur til þess fá niðurgreiðslur á garðslætti yfir sumarið. Eiga þeir rétt á garðslætti í fjögur skipti yfir sumartímann samkvæmt reglum um félagslega heimaþjónustu.*

     Gjald: 
     Lítill garður: 2.815 kr. stór garður (yfir 1.000 m2 heildar stærð lóðar) 3.378 kr.

2. Eldri borgarar og öryrkjar í sveitarfélaginu eiga rétt á niðurgreiðslu á garðslætti í fjögur skipti yfir sumartímann.*

     Gjald: 
     Lítill garður: 5.630 kr. stór garður (yfir 1.000 m2 heildar stærð lóðar): 8.445 kr.

*Reglurnar gilda ekki yfir þá sem búa í fjölbýlishúsi, sameignir þurfa að sjá um garðslátt sjálfar. Umsóknarferli gegn um afgreiðslu í Ráðhúsi afgreidsla@hornafjordur.is, sýna þarf skírteini um örorku eða ellilífeyri. Umsóknin er afgreidd í afgreiðslu sveitarfélagsins.

Gjaldskráin er vísitölutengd og er uppreiknuð í upphafi árs.

Samþykkt í bæjarráði 16.febrúar 2023. 
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri



 

Gjaldskrá MMH - Dags.: 17.10.2023


Bókasafn

Afrit, prentun, skönnun og plöstun Svart & hvítt A4 A3

1--9

40 kr.

60 kr.

10--49

30 kr.

40kr

50--99

15 kr.

25 kr.

100--249

10 kr.

20 kr.

250--499

8 kr.

15 kr.

Afrit, prentun, skönnun og plöstun A4 A3

1--9

80 kr.

170 kr.

10--49

75 kr.

150kr.

50--99

70 kr.

140 kr.

100--249

60 kr.

125 kr.

250--499

50 kr.

110 kr.

Plöstun

150 kr.

300 kr.

Skönnun

50 kr.

80 kr.

Gormun (innbinding) forsíða og bak

450 kr.

Gormun (innbinding)

200 kr.

Millisafnalán

500 kr.

Héraðsskjalasafn A4 A3

Ljósmyndir afrit

5000 stk.

Skjalaaskja 5cm

480 kr

Skjalaaskja 8cm

460 kr.

Málsörk

17 kr.

19 kr.

Vinna starfsmanns

8000 kr.


Endurskoðun gjaldskrár fyrir árið 2024. 
Samþykkt Atvinnu- og menningarmálanefnd 25.10. 2023

 

Fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda SMELLA HÉR

1. gr. Almennt.
Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 236/2018.

2. gr. Um móttökugjöld íbúa.
Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir rúmmáli (kr./m³) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Rúmmál úrgangs skal metið af starfsfólki söfnunarstöðvarinnar, og ef þörf krefur með notkun málbands. Starfsfólk ber jafnframt ábyrgð á flokkun úrgangs í samræmi við gjaldskrá, með hliðsjón af lýsingu úrgangshafa og sjónmati á afhentu efni. Stórir farmar, sem almennt fara yfir 500 kg að þyngd og koma með vögnum, hestakerrum eða stærri ökutækjum, skulu vigtast á hafnarvoginni. Lífrænn úrgangur verður áfram vigtaður í móttökustöðinni.

Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, heyrúlluplast, frauðplast, glerumbúðir, málmumbúðir, hjólbarða, raftæki, ýmis spilliefni og ónýt ökutæki.

Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.

3. gr. Um móttökugjöld fyrirtækja.
Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Úrgangur skal vigtaður á brettavog í söfnunarstöðinni ef farmur er minni en 50 kg á hverja úrgangstegund eða á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar ef farmur er yfir 50 kg á hverja úrgangstegund. Nauðsynlegt er að sýna vigtarnótu eða staðfestingu á vigtun til að komast inn á söfnunarstöðina á Höfn með slíka farma.

Í ákveðnum tilfellum skal fyrirtæki tómvigta ökutæki á hafnarvog eftir farmlosun á söfnunarstöð. Sé þeirri skyldu ekki sinnt skal innheimta lágmarksgjald sem jafngildir 200 kg af blönduðum/grófum úrgangi eða 15.200 kr.

Heimilt er að hafna frekari förmum frá slíkum ökutækjum þar til tómvigtun hefur farið fram.

Fyrir vigtun eru greidd vogargjöld skv. gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.

Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.

4. gr. Móttökugjöld á söfnunarstöð.
Gjöld vegna móttöku úrgangs á söfnunarstöð* eru eftirfarandi:


Flokkur 1.

Blandað efni eða efni með mikinn förgunarkostnað** Kr./kg Kr./m³

Blandaður/grófur úrgangur: Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangstegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang.

76

9.500

Plast án úrvinnslugjalds: Harðplast, plaströr, fiskikör og annað sambærilegt plast.

76

9.500

Litað timbur: Litað, málað, fúavarið, plasthúðað eða blandað.

57

11.400


Flokkur 2.

Flokkað efni** Kr./kg Kr./m³

Hreint timbur: Ekki litað, málað eða fúavarið.

32

6.400

Gifs og gifsplötur.

32

12.800

Matarafgangar í moltugerð: Lífúrgangur frá heimilum eða rekstraraðilum.

32

12.800

Hreint steinefni frá framkvæmdum: Steypubrot, postulín, flísar, keramik, gler og uppmokstur.

32

12.800


Flokkur 3.

Hreint endurvinnanlegt efni Kr./kg Kr./m³

Plastumbúðir

0

0

Pappír, sléttur pappi, dagblöð og tímarit

0

0

Bylgjupappi

0

0

Frauðplast

0

0

Heyrúlluplast og stórsekkir - hreint

0

0

Málmumbúðir/brotajárn

0

0

Glerumbúðir, s.s. flöskur og krukkur

0

0

Garðaúrgangur án aðskotahluta

0

0

Endurnýtanlegir hlutir í nytjagám

0

0

Hjólbarðar

0

0

Raftæki

0

0

Rafhlöður og rafgeymar**

0

0

Málning og spilliefni**

0

0

Gjöld fyrir óflokkaðan úrgang Kr./kg Kr./m³

Blandað, pappír og plast (endurvinnsluefni)

33

4.125

Gjöld fyrir óflokkaðan úrgang kr./klst.

Óflokkaða farma eða endurvinnanlega farma sem innihalda óhreint efni, að undanskildu blönduðum pappír og plasti.

11.385


* Ekki er tekið við kjöt- og sláturúrgangi, seyru og fitu, sóttmenguðum úrgangi, brotajárni sem inniheldur spilliefni eða veiðarfærum á söfnunarstöð.
** Fyrir rafhlöður eða rafgeyma og spilliefni án úrvinnslugjalds er heimilt að innheimta gjöld fyrir útlögðum förgunarkostnaði.

5. gr. Móttökugjöld á urðunarstað.
Fyrir farma á urðunarstað skulu eftirfarandi gjöld greidd fyrir hvert kíló samkvæmt vigt á hafnarvog sveitarfélagsins.

Úrgangstegund Kr./kg

Blandaður/grófur úrgangur: Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangstegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang.

57

Kjöt- og sláturúrgangur

39

Seyra og fita

39

Matarleifar í moltugerð

25


Aðeins fyrirtækjum sem hafa heimild sveitarfélagsins og eru með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint á urðunarstaðinn í Lóni. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila urðunarstaðar.

Innihaldi farmar losunaraðila annan úrgang en þann sem heimilt er að losa á urðunarstaðinn, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.
 
6. gr. Aðfararheimild.
Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.

7. gr. Lagaheimild og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1727/2024.

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 15. maí 2025.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 15. maí 2025.
F.h. bæjarstjóra,
Jóna Benný Kristjánsdóttir varabæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 23. júní 2025
 

 
 

Niðurgreiðslur til dagforeldra eru þær sömu og foreldra sem ekki koma börnum sínum að á leikskóla við 12 mánaða aldur.

Liður Verð

Flokkur 1

77.420 kr.

Flokkur 2

99.657 kr.

Niðurgreiðsla á klst. í flokki 1

484 kr.

Niðurgreiðsla á klst. í flokki 2

623 kr.

Flokkur 1 – Giftir foreldrar eða foreldrar í sambúð. Niðurgreiðsla á mánuði. 
Flokkur 2 – Einstæðir foreldrar

Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra, PDF skjal: SMELLA HÉR

Reglur um foreldragreiðslur, heimagreiðslur vegna gæslu barns, PDF skjal:  SMELLA HÉR




 

Gjaldskrá skólamáltíða 1.8. 2025 – 31.7. 2026

Skólamáltíðir greiðast fyrirfram með gjalddaga 2. hvers mánaðar og eindaga þann 17. hvers mánaðar

Liður Verð

Gjald fyrir skólamáltíð nemenda á dag

0 kr.

Gjald á mánuði miðað við 21 dag

0 kr.

Gjald fyrir skólamáltíðir starfsfólks

892 kr.

Gjald á mánuði miðað við 21 dag

18.795 kr.



 

Í Kátakoti er rekin frístund fyrir börn í 1. – 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar eftir kennslu á daginn til 16:15.

Fjöldi daga í viku 1.8. 2025- 31.7. 2026

1

3.093 kr.

2

6.035 kr.

3

8.834 kr.

4

11.483 kr.

5

13.986 kr.

Tímagjald fyrir staka tíma *

412 kr.

Fæðisgjald **

158 kr.

*Boðið er upp á að greiða fyrir stakan tíma, þetta á við um börn sem þurfa mjög litla vistun (minna en klukkustund, fara svo í íþróttir og síðan heim) og kannski bara 1 sinni eða tvisvar í viku. Taka þarf fram hvaða dag greitt er fyrir. Foreldrar sem nota tímagjald geta líka greitt fæðisgjald og þurfa þá að skrá það.

**Fæðisgjald leggst ofan á hvern skráðan dag.

Veittur er systkinaafsláttur: 50% með öðru barni og 100% með þriðja barni. Systkinaafsláttur er tengdur á milli skólastiga og kemur afslátturinn á elsta barn.

 Gjaldskrá fyrir Kátakot fylgir vísitölum framfærslukostnaðar og neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert.

Síðdegishressing í Þrykkjunni 2025-2026

Þrykkjan er opin frá 14:20 -16:00 fyrir alla nemendur í 5. – 10. bekk á virkum dögum á starfstíma skóla. 

Í Þrykkjunni geta nemendur lært, spjallað, leikið sér ásamt ýmsu öðru og sótt aðrar frístundir þaðan. Einnig geta foreldrar þeirra skráð þá í síðdegishressingu og þá bíðst nemendum að fara í mötuneyti skólans og fá síðdegishressingu sambærilega þeirri og boðið er upp á í Kátakoti. 

Gjald fyrir síðdegishressingu er 158 kr. krónur á dag. 

Nauðsynlegt er að skrá barn í síðdegishressingu í Þrykkjunni en hægt er að velja einstaka daga í vikunni eða alla daga vikunnar 

Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu Þrykkjunnar fylgir vísitölum framfærslukostnaðar og neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert
  

1. gr. 
Gagnaveita Hornafjarðar ehf. á og rekur ljósleiðarakerfi í Sveitarfélaginu Hornafirði. Gagnaveitu Hornafjarðar ehf.er heimilt að selja aðgang að ljósleiðara samkvæmt gjaldskrá og reglum þessum. 

2. gr. 
Eigendur íbúðarhúsnæðis í sveitafélaginu geta óskað eftir að tengjast ljósleiðarkerfinu. Eigendur sumarhúsa og lögaðila (fyrirtæki og rekstraraðilar ) í Sveitarfélaginu Hornafirði geta óskað eftir því að tengjast ljósleiðarakerfinu. Umsókn um tengingu skal berast í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Lagnir utanhúss og inn fyrir húsvegg skulu vera í eigu Gagnaveitu Hornafjarðar ehf. en lagnir innanhúss vera á ábyrgð húseiganda. Samráð skal vera við landeigendur um staðsetningu lagna og hentugustu lagnaleiðir. 

Gjald miðast við áskrift og skal innheimt mánaðarlega 

Fjarskiptafélögum, er veittur aðgangur að ljósleiðarakerfinu að undangengnum samningum um m.a.gjaldtöku og þjónustu sbr. 5. gr. og 6.gr. 

3. gr. 
Einungis starfsmenn eða þjónustuaðilar á vegum Gagnaveitu Hornafjarðar mega annast útsetningu á ljósleiðarastreng, lagningu tenginga eða breytingar á ljósleiðarakerfinu. Gagnaveita Hornafjarðar tengir viðkomandi notanda við ljósleiðarakerfið að hans beiðni enda hafi viðkomandi uppfyllt eða samþykkt skilyrði þess að tengjast ljósleiðaranum. Sama á við um samninga, aðgang og tengingar fjarskiptafélaga sem þjónusta notendur með tengingum sínum. 

4. gr.
 Allar skemmdir sem kunna að vera gerðar á ljósleiðaranum eða búnaði tengdum honum skulu að fullu greiddar af þeim sem tjóninu veldur. 5. gr. Gjöld notenda fyrir afnot af ljósleiðara Gagnaveitu Hornafjarðar (án vsk) eru sem hér segir:

1.  Mánaðargjald fyrir heimtaug 2.500 kr. 
2.  Leiga á aðstöðu í tækjaskáp Gagnaveitu Hornafjarðar 18.250 kr. á mánuði fyrir hálft skáparými, 36.500 kr. á mánuði fyrir heilt skáparými. 
3.  Flutningur þjónustu á aðra heimtaug 3.500 kr., greitt af fjarskiptafélagi. 
4.  Stofngjald/tengigjald ljósleiðara tengingar 280.000 kr. fyrir Ísland ljóstengt. 
5.  Stofngjald/tengigjald fyrir þá sem eru ekki innan Ísland ljóstengt er 280.000 kr. að auki skv. raunkostnaði við að leggja ljósleiðara frá stofnstreng að tengistað.

Heimilt er að jafna út kostnaði í sumarhúsahverfum þannig að hver tengistaður greiði sama gjald óháð raunkostnaði

6. gr. 
Leiga á ljósþráðum innan kerfisins. Fjarskiptafélögum stendur til boða að leigja ljósþræði til annarra nota en tengingu endanotenda. Vegalengdir miðast við loftlínu á milli staða og miðast gjaldtaka við hvern hafinn kílómeter. Miðað er við að ekki þurfi að gera breytingar á streng. Ef gera þarf breytingar þá bætist tíma- og tækjakostnaður við í samræmi við umfang breytinganna. Að öðru leiti er ekkert stofn- eða upphafsgjald vegna leigu. Öll verð eru án vsk.

Leigugjald fyrir ljósleiðaraþræði í streng er eftirfarandi:

Fjöldi þráða Kr./Km á mánuði

1 þráður

5.576,-

2 þræðir

6.969,-

3 þræðir

8.363,-

4 þræðir

9.757,-


7. gr. 
Gjaldskrá þessi tekur breytingum samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar. 

8. gr. 
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur rétt til að loka fyrir aðgang gagnvart þeim notendum sem vanrækja að greiða áskriftargjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun skal viðkomandi notandi greiða.
9. gr. 
Eftirlitsmaður Sveitarfélagsins Hornafjarðar skal hvenær sem er hafa frjálsan aðgang að öllum búnaði eða kerfum sem tengd eru við ljósleiðara Gagnaveitunnar. Húseiganda er skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum eftirlitsmanns um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á notkun ljósleiðarans.
 
10. gr. Stofngjöld verða innheimt þegar framkvæmdir byrja en heimilt er að dreifa greiðslu þeirra á 14 mánuði.

Gjaldskrá tekur verðlagsbreytingum 1. janúar ár hvert skv. ákvörðun bæjarstjórnar. 

Gjaldskráin var samþykkt í bæjarstjórn þann 12. desember 2019. 
Tímabundin breyting á gjaldskrá varðandi fjölgun gjalddaga var samþykkt í bæjarráði þann 17. febrúar 2021 og gildir til 21. desember 2021. 
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri

1 Samþykkt að veita frest í allt að 14 mánuði á fundi bæjarráðs til 21. desember 2021.





 

Gjaldskrá á PDF SMELLA HÉR

Gjaldskrá er bundin neysluvísitölu og uppreiknast 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á vísitölu, grunnvísitala skal aldrei vera lægri en 365,5 stig. Greiðslur fyrir vinnu starfsmanna eru innheimtar í samræmi við laun þeirra og fylgja þær kjarasamningsbreytingum. Þegar um útleigu á húsnæði er að ræða þurfa leigutakar sjálfir að setja upp borð, stóla og annan búnað sem þeir vilja nota. Einnig tæma þeir allt rusl og þrífa áður en þeir skila húsnæðinu sjá nánar reglur um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins. 

Þeir aðilar sem óska eftir að leigja húsnæði á vegum sveitarfélagsins geta leitað beint til viðkomandi forstöðumanns, sjá upplýsingar neðst við hvert hús eða fengið upplýsingar í afgreiðslu Ráðhússins um fyrirkomulag útleigu afgreidsla@hornafjordur.is  eða í síma 470-8000.
 


Hofgarður

Í Hofgarði er rekinn grunn- og leikskóli og ef óskað er eftir að leigja húsnæðið á starfstíma skólans þarf að gera það í samráði við skólastjóra.
Öll félagsaðstaða með borðum og stólum.

Tími Verð

1 dagur/sólarhringur

47.179 kr.

1 klst.

7.818 kr.

Áróra Gústafsdóttir skólastjóri - arora@hornafjordur.is  - 8201917 
Halldóra Oddsdóttir húsvörður - loaodds@hornafjordur.is  - 8643067
 

Hrollaugsstaðir

Öll félagsaðstaða með borðum og stólum.

Tími Verð

1 dagur/sólarhringur

47.179kr.

1 klst.

7.818 kr.

Björn Þór Imsland yfir fasteignum hjá sveitarfélaginu - bjorni@hornafjordur.is  - 8948413 
Aðalbjörg Bjarnadóttir eftirlitsmaður með húsinu - 6912541
 

Holt 

Öll félagsaðstaða með borðum og stólum.

Tími Verð

1 dagur/sólarhringur

35.110 kr

1 klst.

6.035 kr.

Björn Þór Imsland yfir fasteignum hjá sveitarfélaginu -  bjorni@hornafjordur.is - 8948413


Mánagarður

Í Mánagarði eru tveir salir. Annar salurinn er íþróttasalur en hinn salurinn er ætlaður undir leiklistarstarfsemi. Hægt er að leigja salina út undir viðburði í samráði við forstöðumann íþróttamannvirkja.

Tími Verð

Leiklistarsalur án borða og stóla:

1 dagur/sólarhringur

4.7179 kr.

1 klst.

7.818 kr.

Leiklistarsalur með borðum og stólum fyrir 100-150 gesti:

1 dagur/sólarhringur

78.723 kr.

1 klst.

11.795 kr.

Stærri salur í Mánagarði:

1 dagur/sólahringur fyrir ca 200 -250 manns

99.674 kr.

1 klst. (einungis hægt yfir sumartímann)

7.819 kr.

Þegar stærri salurinn í Mánagarði er leigður út undir veislur eða stærri viðburði þá þarf að tæma fimleikaáhöld úr salnum í samráði við fimleikadeildina og flytja stóla, svið og drapperingar sé þess óskað. Hægt er að kaupa þá þjónustu af fimleikadeildinni eða öðrum félagasamtökum í sveitarfélaginu og þarf þá að greiða sérstaklega fyrir hana. Leigutaki óskar eftir verðtilboði frá félagasamtökunum.

Gunnar Ingi Valgeirsson forst.m. íþróttamannvirkja - gunnaringi@hornafjordur.is - 8991968
 

Fundarhúsið í Lóni 

Með borðum og stólum

Tími Verð

1 dagur/sólarhringur

1 klst.

Björn Þór Imsland yfir fasteignum hjá sveitarfélaginu - bjorni@hornafjordur.is  - 8948413
 

Grunnskólar

Tími Verð

Skólastofa hver klst.

3.154 kr.

Skóla- og íþróttahópar, gisting pr. einstakling

1.224 kr.

Aðgangur að heimilisfræðistofu hvert skipti allt að 4 klst.

6.732 kr.

Kristín Gestsdóttir skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar - kristinge@hornafjordur.is - 8986701 
Áróra Gústafsdóttir skólastjóri í Hofgarði - arora@hornafjordur.is  - 8201917
 

Sundlaug

Tími Verð

Leiga á braut

5.008 kr.

Öll laugin utan almenns opnunartíma - Fyrsta klst.

274.300 kr.

Öll laugin utan almenns opnunartíma - Önnur klst.

137.150 kr.

Öll laugin utan almenns opnunartíma - Hver klst. eftir það

68.575 kr.

Gunnar Ingi Valgeirsson forst.m. íþróttamannvirkja - gunnaringi@hornafjordur.is - 8991968
 

Íþróttahúsið á Höfn

Tími Verð

½ salur í 1 dag/sólarhring þegar ekki þarf að breyta salnum

39.363 kr.

Allur salurinn í 1 dag/sólarhring

62.952 kr.

Allur salurinn í dag/sólarhring fyrir ca f. 300-500 manns

126.040 kr.

Leiga á sal 1 klst.

10.973 kr

Ef nota á íþróttahúsið undir veislur eða stærri viðburði þá þarf að setja hlífðargólf á salinn, setja upp drapperingar, svið, færa inn húsgögn og e.t.v. fleira. Hægt er að kaupa þá þjónustu af félagasamtökum í sveitarfélaginu og þarf að greiða sérstaklega fyrir hana. Óska þarf eftir verðtilboði frá félagasamtökunum.

Gunnar Ingi Valgeirsson forst.m. íþróttamannvirkja - gunnaringi@hornafjordur.is - 8991968
 

Sindrabær

Sindrabær er fyrst og fremst tónlistarskóli og tónlistarhús. Sú staðreynd setur útleigu ákveðnar skorður.

Tími Verð

Salur án borða og stóla/bíósalur:

1 dagur/sólarhringur

47.179 kr.

1 klst.

7.818 kr.

Salur með borðum og/eða stólum fyrir 100 – 150 gesti:

1 dagur/sólarhringur

78.724 kr.

1 klst.

11.795 kr.

Jóhann Morávek skólastjóri Tónskóla A- Skaft - joimor@hornafjordur.is -  6612879


Þrykkjan 
Félagsmiðstöð fyrir börn og ungmenni. Um útleigu á henni gilda ákveðnar reglur til viðbótar almennum reglum.

Tími Verð

1 klst.

6.120 kr.

Emil Morávek tómstundafulltrúi -  emilmoravek@hornafjordur.is  - 6913750
 

Borð og stólar milli húsa

Leigutaki sækir og skilar viðbótar borðum og stólum.
 

Tími Verð

Leiga á sólarhring fyrir staka stóla pr. stykki

316 kr.

Leiga á sólarhring fyrir stök borð pr. stykki

316 kr.

Gunnar Ingi Valgeirsson forst.m. íþróttamannvirkja - gunnaringi@hornafjordur.is - 8991968
Björn Þór Imsland yfir fasteignum hjá sveitarfélaginu - bjorni@hornafjordur.is  - 8948413

Sveitarfélagið Hornafjörður 
Sigurjón Andrésson Bæjarstjóri 
Samþykkt í bæjarstjórn 7. mars 2024


 

1.gr. Almenn ákvæði 
Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003. Gjaldskráin er við það miðuð að Hornafjarðarhöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna sbr. 3. gr. 5. tölulið hafnalaga. 

2.gr. Um gjaldtöku tengdri stærð skipa 
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969. 

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

3.gr. Skipagjöld 
3.1 Lestargjöld: 
Af öllum skipum skal greiða lestagjald 20,66 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði. 

3.2 Bryggjugjöld: 
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi: 
Skip við bryggju 5,80 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 128,64 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 15. 820 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 BT greiði þó aldrei lægra en 9.203 kr. á mánuði. 

Lægsta gjald fyrir einstaka komu til hafnarinnar skal vera 5.796 kr.

4.gr. Vörugjöld 
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. 

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi: 
a) Umbúðir sem endursendar eru. 
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna. 
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
4.1 Vörugjaldskrá: 1. fl.: Gjald 449 kr. fyrir hvert tonn:

Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.: Gjald 825 kr. fyrir hvert tonn: 
Lýsi og fiskimjöl. 
3. fl.: Gjald 899 kr. fyrir hvert tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávexti.

4. fl.: Gjald 1,60%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.

Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.

Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess.

Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er 9.132 kr. hvert tonn. 
Lágmarksgjald í öllum flokkum er 345 kr.

5.gr. Hafnsögugjöld 
Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá aðra leið: Fyrir leiðsögu til og frá höfninni 7.042 kr. fyrir hvert skip, auk 11,24 kr. fyrir hvert brúttótonn.

5.1 Þjónusta lóðsbátsins Björns lóðs samkvæmt tímagjaldi án mannskaps

Liður Verð

Tímagjald Björn Lóðs

45.178 kr.

Flutningur Hafnsögumanns

45.178 kr.

Tímagjald hafnarstarfsmanns dagvinna

5.957 kr.

Tímagjald hafnarstarfsmanns yfirvinnu

10.048 kr.

Lágmarksgjald vegna útkalls

125.565 kr.


5.2 Festargjöld

Liður Verð

Fyrir hvern festarmann í dagvinnu.

5.967 kr.

Fyrir hvern festarmann í yfirvinnu

10.048 kr.


5.3 Farþegagjald

Liður Verð

Gjald fyrir hvern farþega á skemmtiferðaskipum

318 kr.


6.gr. Þjónustugjöld

6.1 Vatnssala

Liður Verð

Vatnsafgreiðslugjald dagvinnutíma

13.760 kr./hver afgreiðsla utan

Vatn til skipa

515 kr./m3

Vatn til stærri.

3.520 kr./mán.

Vatn til heimasmábáta

2.058 kr./mán.


6.2 Sorpgjald
Sorpurðunargjald fer eftir gjaldskrá sveitarfélagsins.

Fyrir sorphirðu rukka starfsmenn hafnarinnar:

Liður Verð

Fyrir hverja sérferð

11.202 kr.

Sérferð utan dagvinnu

17.296 kr.

Almennt sorpgjald, stærð skips < 10 tonn

762 kr./mán.

Almennt sorpgjald, stærð skips 10-100 tonn

3.608 kr./mán.

Almennt sorpgjald, stærð skips > 100 tonn

5.547 kr./mán.

Fyrir hverja losun

9.796 kr.


Samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 og reglugerð nr.1200 frá 2014 ber skipstjóri ábyrgð á að úrgangi frá skipi sé skilað til hafnar eða viðurkennds þjónustuaðila áður en látið er úr höfn.

Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningarlaust skila fyrir komu skips til hafnar útfylltu eyðublaði til hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað skal á land. Misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar.

 Skip sem óska eftir að Hornafjarðarhöfn taki á móti úrgangi skal tilkynna um það að lágmarki 24 klst. fyrir komu til hafnar

Öll skip sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu skip greiða eftirfarandi vegna úrgangs:

a) Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 1,14 kr. á brt. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 8.109 kr. og hámarksgjald 67.578 kr.

b) Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a) má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,54 kr. á brt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.433 kr. og hámarksgjald 33.789 kr.

c) Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.

d) Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metrar að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í Hornafjarðarhöfn skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Mánaðargjaldið skal vera 8.109 kr. á mánuði.

e) Förgunargjald: Óski skipstjóri eða eigandi skips eftir að tekið verði á móti úrgangi frá skipinu skal hann hafa samband við viðurkenndan móttökuaðila skv. ábendingu hafnarinnar eða óska eftir því að höfnin annist móttöku á úrganginum. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er 16.219 kr. á hvern rúmmetra og lágmarksgjald einn rúmmetra. Kjósi skipstjóri eða eigandi skips að óska eftir þjónustu viðurkennds aðila þá greiðir hann kostnað við þá þjónustu. Skipstjóri og/eða eigandi skips ber ábyrgð á að útfylltu eyðublaði um magn og tegund sorps sé skilað til hafnarinnar, en misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar.

f) Förgunargjald: Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr.hafnalaga skulu eftir sem áður greiða fyrir losun sorps og förgun þess ef óskað er eftir þjónustu hafnar eða viðurkends móttökuaðila eftir gjaldskrá.

g) Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um skil á sorpi eða tilkynningum skv. 2. og 3. gr. gjaldskrár þessarar skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.

6.3 Vogargjald

Liður Verð

Almenn vigtun

217 kr./tonn

Lágmarksgjald fyrir einstaka vigtun

1.292 kr.

Skráningargjald afla

143 kr./tonn

Yfirvinna vigtarmanns

10.048 kr. pr. klst.


Magnafsláttur er veittur á skráningargjaldi fyrir uppsjávarfisk (síld, loðnu o.fl.) skv. eftirfarandi reglum:

Liður Verð

1 - 10.000 tonn á ári

46,39 kr./tonn

10.001 - 20.000 tonn á ári

23,20 kr./tonn

20.001 og meira á ári

11,59 kr./tonn


6.4 Kranagjald

Liður Verð

Kranagjald (hámark 10 skipti á mán.)

1.179 kr.


6.5 Raforkusala

Liður Verð

Almennt raforkugjald án vsk.

21,74 kr./kwst.


Tengigjald
 

Liður Verð

Hver afgreiðsla utan dagvinnutíma

18.161 kr.


6.6 Geymslugjald á eða við hafnarbakka 159 kr. á m2 í viku. Eftir þann tíma reiknast til viðbótar 3.335-kr. á dag.
6.7 Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða

Liður Verð

Öryggisgjald fyrir hverja skipakomu

50.742 kr.

Öryggisgæsla og framvernd í dagvinnu

11.907 kr.

Öryggisgæsla og framvernd í yfirvinnu

20.097 kr.


6.8 Leiga á gámasvæði-geymsla bátakerra

Liður Verð á mánuði Verð á ári

Lóð fyrir 40 feta gám

2.899 kr.

34.788 kr.

Lóð fyrir bátakerru

2.899 kr.

34.788 kr.

Geymsla á geymslusvæði

46,39 kr. p. ferm.


6.9 Leiga mælingatækja:

Liður Verð

GPS Base og Rover

5.075 kr. klst.

Tæki til dýptarmælinga

21.746 kr. p. dagur


7.gr. Aðstoð Björns lóðs við hjálparvana skip 
Fyrir skip sem eiga komast til hafnar á eigin vélarafli (hjálparvana) en eru þó ekki í yfirvofandi hættu fer um greiðslu samkvæmt samkomulagi frá 16. september 1987 milli Samsteypu ísl. fiskiskipatrygginga annars vegar og Landhelgisgæslu Íslands annars vegar og Landhelgisgæslu Íslands og SFS hins vegar (á við skip 100 brl. eða stærri).

7.1 Skip innan við 100 brúttótonn:

Liður Verð

Grunngjald

186.215 kr.

Fyrir hverja rúmlest 20-70

3.262 kr.

Fyrir hverja rúmlest 70-100

5.198 kr.

Tímagjald í lausakeyrslu

45.178 kr.

Tímagjald fyrir báta í drætti

60.457 kr.

Tímagjald f. lausakeyrslu og drætti f. báta <20 brt.

45.178 kr/klst

Að auki kemur tímagjald áhafnar:

5.953 kr. dagvinna

10.048 kr. yfirvinna


7.2 Skip stærri en 100 brúttórúmlestir:
Upphæðir vegna aðstoðar við skip stærri en 100 brúttó rúmlestir er vísað í kjaramálakafla Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. www.sfs.is.

8.gr. Um innheimtu og greiðslu gjalda 
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hornafjarðarhafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

9.gr. Tryggingar vegna gjaldheimtu 
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. Hafnalaga nr. 61/2003. Hornafjarðarhöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

10.gr. Virðisaukaskattur 
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hornafjarðarhöfn er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laga nr. 50/1998 um virðisaukaskatt.

11.gr. Gildistaka 
Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn Kt: 650371-2409 er skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og birtist til eftirbreytni þeim, sem eiga hlut að máli. Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2025 jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn nr. 323/2021.

Sveitarfélaginu Hornafirði, desember 2024
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri






 

Liður Verð

Stakir tímar fullorðnir / Adults

1.400 kr.

10 miða kort fullorðnir / Adults 10 round card

6.300 kr.

30 miða kort fullorðnir / Adults 20 round card

15.500 kr.

Árskort fullorðnir / Adults annual pass

35.000 kr.

67 ára og eldri stakir tímar / 67 years and older

600 kr.

10 miða kort 67 ára og eldri / 67 years and older 10 round card

2.900 kr.

30 miða kort 67 ára og eldri / 67 years and older 30 round card

7.000 kr.

Árskort 67 ára og eldir / 67 years and older annual pass

15.500 kr.

Öryrkjar / disabled

0 kr.

Börn að 18 ára - miðað við árið

0 kr.

Leiga á handklæði / Rental Towel

1.000 kr.

Leiga á sundfötum / Rental swimsuit

1.000 kr.

Bleyjur / Swimming diapers

450 kr.

Símtal / Phone call

55 kr.

Leiga til námskeiðshaldara / Rent to course organizers

4.700 kr.

*67 ára og eldri með lögheimili í sveitarfélaginu Hornafirði geta óskað eftir heilsueflingastyrk frá sveitarfélaginu sem greiðir niður árskortið. * People aged 67 and older with legal residence in the municipality of Hornafjörður can request a health promotion grant from the municipality, which will pay off the annual card.

Gildir 1.8. 2025 -31.7. 2026

Gjaldskrá barna Á önn Á ári

Fyrsta barn

42.633 kr

85.267 kr.

Annað barn

31.979 kr

63.959 kr.

þriðja barn

21.317 kr.

42.633 kr.

Gjöld miðað við tvö systkini

74.613 kr.

149.226 kr

Gjöld miðað við þrjú systkini

95.930 kr.

191.859 kr.

Með öðru barni er veittur 25 % afsláttur 
Með þriðja barni er veittur 50 % afsláttur 
Afsláttur kemur á elsta barn

Gjaldskrá fullorðinna Á önn Á ári

Gjaldskrá fullorðinna

65.324 kr.

130.649 kr.

Hálft nám

32.663 kr.

65.325 kr.

Gjaldskrá annað Á önn Á ári

Auka hljóðfæri í fullu námi

21.424 kr.

42.849 kr.

Auka hljóðfæri í hálfu námi

10.712 kr.

21.423 kr

Bóklegt nám, hóptími

10.712 kr.

21.423 kr.

Gjaldskrá fyrir Tónskólann fylgir vísitölum framfærslukostnaðar og neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert.
 

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda  SMELLA HÉR

1. gr.
Af hundum í Sveitarfélaginu Hornafirði skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar nr. 933/2015 um hundahald í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis.

2. gr.
Af hundum skal innheimta gjald sem hér segir:

Skráningargjald 18.000 kr.
Skráningargjald eftir útrunnin frest er 20.000 kr. samkvæmt 4. gr. samþykktarinnar

3. gr.
Árlegt leyfisgjald er 14.000 kr..

Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitarfélagsins.

4. gr.

Handsömunargjald hunda skal vera skv. 12. gr. samþykktar nr. 933/2015. Við afhendingu handsamaðs hunds skal greiða kr. 16.000. Þurfi að vista hund yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð kr. 6.500 fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhring.

Ef til aflífunar hunds kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan útlagðan aflífunarkostnað.

5. gr.
Gjalddagi skv. 3. gr. er 1. ágúst og eindagi er 1. september ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Við afskráningu hunds skal endurgreiða árlegt leyfisgjald í hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru á árinu.

6. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með vísun til heimilda í samþykkt um hundahald í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 933/2015 og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum.

Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur eldri gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds úr gildi.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 16. júní 2017.

Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 25. júlí 2017

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda  SMELLA HÉR

1. gr.
Eigendur katta í Sveitarfélaginu Hornafirði skulu greiða gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar nr. 912/2015 um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis.

2. gr.
Vegna hvers kattar skal innheimt skráningargjald sem hér segir:

Fyrsta skráningargjald 10.000 kr. gildir fram að næsta gjalddaga.
Skráning eftir útrunnin frest er 15.000 kr. samkvæmt 4. gr. samþykktarinnar.

3. gr.
Árlegt leyfisgjald er 6.000 kr.

Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitarfélagsins.

4. gr.
Handsömunargjald katta skal vera skv. 11. gr. samþykktar nr. 912/2015. Við afhendingu handsamaðs kattar skal greiða kr. 8.000. Þurfi að vista kött yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð kr. 6.500 fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhring.

Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan útlagðan aflífunarkostnað.

5. gr.
Gjalddagi skv. 3. gr. er 1. ágúst og eindagi er 1. september ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Við afskráningu á ketti skal endurgreiða árlegt leyfisgjald í hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru á árinu. Ef til aflífunar kattar kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan áfallinn kostnað.

6. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með vísun til heimilda í samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 912/2015 og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum. Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur eldri gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds úr gildi.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 16. júní 2017.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 25. júlí 2017

1. gr. Gjöld skv. gjaldskrá þessari.
Við útgáfu byggingarleyfa og vegna annarrar þjónustu sem embætti byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar veitir skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um. Gjaldtakan er byggð á heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010, lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og á rekstraráætlun embættisins.

2. gr. Byggingagjöld vegna byggingarleyfisskyldra framkvæmda.
Neðangreind gjöld miðast við eina yfirferð aðal- og séruppdrátta sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna að innan sem utan. Innifalið í gjaldinu eru byggingarleyfisgjald, lögbundið byggingareftirlit, vottorð vegna öryggis- og lokaúttektar, staðfestingar eignaskiptayfirlýsinga (ef við á) og skjalavistun. Fyrir önnur gjöld sem til falla fer eftir 4. gr. gjaldskrár þessarar.

2.1 Íbúðarhús.

Liður Verð

2.1.1 Einbýlishús

154.000 kr.

2.1.2 Parhús, tvíbýlishús, raðhús með allt að þrem íbúðum

198.000 kr.

2.1.3 Fjöleignarhús með allt að sjö íbúðum sem falla ekki undir 2.1.2

275.000 kr.

2.1.4 Fjöleignarhús með átta íbúðum eða fleiri

343.750 kr.


2.2 Aðrar byggingar.

Liður Verð

2.2.1 Brúttóflatarmál allt að 200 fermetrar

148.500 kr.

2.2.2 Brúttóflatarmál 200 - 1.000 fermetrar

214.500 kr.

2.2.3 Brúttóflatarmál yfir 1.000 fermetrar

332.750 kr.

2.2.4 Sérstaklega flókin mannvirki *1

reiknað sérstaklega

*1 Mannvirki telst sérstaklega flókið ef það fellur undir flokk CC3 samkvæmt töflu B1 í þjóðarviðauka við ÍST EN 1990:2002/NA:2011.
 
2.4 Ráðning skoðunarstofu.
Bæjarstjórn er heimilt, sbr. 3.3.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, að ákveða að skoðunarstofa annist sérstaka þætti byggingareftirlits. Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm getur byggingarfulltrúi ákveðið að faggilt skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir vegna viðkomandi framkvæmdar í heild eða að hluta. Ráðning skoðunarstofu og greiðsla kostnaðar fyrir þjónustu hennar er í höndum eigenda mannvirkis. Í slíkum tilvikum eru byggingagjöld, sbr. 2. gr. gjaldskrár þessarar, reiknuð sérstaklega og greidd fyrir þá þætti þjónustu embættis byggingarfulltrúa sem það veitir.

2.5 Heimild til lækkunar byggingagjalda.
Við sérstakar aðstæður getur bæjarstjórn ákveðið að lækka byggingagjöld af einstökum nýbyggingum og breytingum eldri bygginga í sveitarfélaginu.

3. gr. Byggingagjöld vegna byggingarheimilda.
Neðangreind gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna að innan sem utan. Innifalið í gjaldinu eru byggingarleyfisgjald, lögbundið byggingareftirlit, vottorð vegna öryggis- og lokaúttektar, staðfestingar eignaskiptayfirlýsinga (ef við á) og skjalavistun. Önnur gjöld sem til falla fara eftir 4. gr. gjaldskrár þessarar.

Liður Verð

3.1.1 Byggingarheimild

86.130 kr.


4. gr. Gatnagerðargjald.
Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Sveitarfélaginu Hornafirði skal greiða gatnagerðargjald, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja. Gjaldskráin gildir jafnt fyrir leigulóðir og eignarlóðir þar sem sveitarfélagið stendur að gatnagerð.

4.1 Útreikningur gatnagerðargjalda.
Af hverjum brúttófermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar samkvæmt verðgrunni fyrir gatnagerðargjald, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Allar fjárhæðir í þessari gjaldskrá taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á verðgrunni.

Liður %

4.1.1 Einbýlishús

7%

4.1.2 Önnur íbúðarhús (s.s. par-, rað-, tvíbýlis-, keðju- og fjölbýlishús)

6,5%

4.1.3 Verslunar-, skrifstofu-, þjónustu-, iðnaðar- og geymsluhúsnæði og annað atvinnuhúsnæði

6,2%

4.1.4 Hesthús og önnur hús í þéttbýli

5%


Við úthlutun lóðar skal lóðarleigjandi greiða staðfestingargjald sem er óafturkræft. Af íbúðarhúsalóðum er upphæð staðfestingargjalda 500.000 kr. fyrir hverja íbúðareiningu. Þar sem við á skal miða við lágmarksfjölda eininga samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Af öðrum lóðum er staðfestingargjald 1.000.000 kr.

Bæjarráði er heimilt að ákveða annað staðfestingargjald af einstökum lóðum eða hverfum hvenær sem er. Staðfestingargjald gengur upp í gatnagerðargjald og/eða byggingagjöld eftir atvikum.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk sbr. 1. mgr. skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

4.2 Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.
Eftirtaldar byggingar eru undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds:

a. Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
b. Smáhýsi, eins og þau eru skilgreind í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Fyrir stærri garðhús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir hesthús.
c. Óupphituð svalaskýli og sólskálar íbúðarhúsa sem eru 20 m² eða minni.

4.3 Heimild til lækkunar eða niðurfellingar gatnagerðargjalds.
Bæjarstjórn getur lækkað eða fellt niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, sbr. ákvæði 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Bæjarstjórn er heimilt að hækka eða lækka gjaldskrá gatnagerðargjalds um allt að 35% vegna breytilegs kostnaðar við undirbyggingu og frágang gatna eftir hverfum, m.a. vegna kostnaðar við land, jarðvegsdýpi, stærð lóðar við götu, staðsetningu lóðar, verðmæti lóðar, þversnið lóðarfrágangs o.fl.

4.4 Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.
Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Sveitarfélagið Hornafjörð fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem bæjarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir hljóðan áður gerðra samninga.

4.5 Áfangaskipting framkvæmda.
Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur bæjarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skal gatnagerðargjald hverju sinni greiðast samkvæmt þeirri samþykkt sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.

Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir á sérhverjum byggingaráfanga.

Verði áfangaskipting heimiluð falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar.

5. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld embættis byggingarfulltrúa.
Fyrir neðangreinda umsýslu ber að greiða eftirtalin gjöld, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Liður Verð

5.1.1 Hver endurskoðun aðal- eða séruppdrátta

20.900 kr.

5.1.2 Endurnýjun byggingarleyfis án breytinga

13.750 kr.

5.1.3 Vottorð um byggingarstig (t.d. fokheldisvottorð)

12.650 kr.

5.1.4 Umsagnir vegna umsóknar um rekstrarleyfi og aðrar umsagnir

19.800 kr.

5.1.5 Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar

     - fast gjald

25.850 kr.

     - fyrir hverja einingu

5.500 kr.

5.1.6 Breyting á lóðarleigusamningi

11.000 kr.

5.1.7 Breytingar á mæliblöðum

11.000 kr.

5.1.8 Útkall þegar verk reynist ekki úttektarhæft; aukaúttekt

18.150 kr.

5.1.9 Leyfi til niðurrifs mannvirkja

26.950 kr.

5.1.10 Önnur þjónusta skv. tímagjaldi

11.000 kr.


6. gr. Stöðuleyfi.
Stöðuleyfisgjöld eru innheimt í samræmi við 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og kafla 2.6. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Varðandi götu- og torgsöluhús er vísað til samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Liður Verð

6.1 Afgreiðsla og útgáfa stöðuleyfis

24.200 kr.

6.2 Endurnýjun stöðuleyfis án breytinga

15.950 kr.

6.3 Aukagjald vegna eftirlits með fleiri en einum lausafjármun

4.400 kr.


7. gr. Tilkynning um framkvæmd.
Vegna tilkynningarskyldra framkvæmda sbr. 2.3.6. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 greiðist afgreiðslu- og þjónustugjald 21.450 kr. Innifalið í gjaldi er móttaka og skráning erindis, yfirferð m.t.t. samræmis við skipulag, svör við fyrirspurnum og almenn umsýsla.

8. gr. Önnur gjöld.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að innheimta önnur þjónustugjöld en mælt er fyrir um í gjaldskrá þessari, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 enda nemi þau ekki hærri fjárhæð en sem samsvarar kostnaði við að veita þjónustuna.

9. gr. Breytingar á fjárhæð gjalda.
Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við launavísitölu í janúar 2021 (778,6 stig – grunnur frá 1989) og breytast 1. janúar ár hvert, til samræmis við breytingar á vísitölunni.

10. gr. Kæruheimildir.

10.1 Gatnagerðargjald.

Aðili máls getur skotið ákvörðun samkvæmt gjaldskrá þessari til úrskurðar ráðherra skv. 11. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að aðili fékk vitneskju um ákvörðunina. Kæruheimild þessi skerðir þó eigi rétt aðila til að höfða mál fyrir dómstólum

Komist ráðherra að þeirri niðurstöðu að ákvörðun sveitarfélagsins hafi ekki verið í samræmi við lög getur hann ógilt ákvörðunina og eftir atvikum lagt fyrir sveitarstjórn að taka nýja ákvörðun.

10.2 Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari.

Aðilar máls geta kært ákvörðun samkvæmt gjaldskrá þessari til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála skv. 59. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki. Kærufrestur er einn mánuður frá því að aðila varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra til nefndarinnar skal vera skrifleg og undirrituð, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

11. gr. Lagaheimild.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar nr. 1708/2021.

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 14. desember 2023.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 9. janúar 2024
 

1. gr. Almennt 
Vegna skipulagsgerðar, framkvæmdaleyfa og annarrar þjónustu sem umhverfis- og skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar veitir skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um. Gjaldtakan er byggð á heimild í skipulagslögum nr. 123/2010, með síðari breytingum. 

2. gr. Framkvæmdaleyfi
Framkvæmdaleyfisgjald er innheimt skv. 20. gr. skipulagalaga nr. 123/2010. Innifalið í framkvæmdaleyfisgjaldi er kostnaður sveitarfélagsins vegna útgáfu og undirbúnings leyfisveitingar auk kostnaðar við eftirlit að undangengnum breytingum á skipulagi.

2.1. Framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021:

Liður Verð

2.1.1. Aðkeypt vinna og auglýsingar

skv. reikningi.

2.1.2. Umsýsla, útgáfa og undirbúningur leyfisveitingar

14.970 kr. klst.

2.2. Aðrar framkvæmdir

183.721 kr.

2.3. Eftirlit umfram viðmiðunargjald

14.970 kr. klst.


3. gr. Aðalskipulag 
Fyrir breytingar á aðalskipulagi og skipulagsvinnu eru innheimt gjöld skv. 20. og 36. gr. skipulagalaga nr. 123/2010. 

3.1. Breyting á aðalskipulagi skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga:

Liður Verð

3.1.1. Vinna við breytingu á uppdrætti/greinargerð, aðkeypt þjónusta.

skv. reikningi.

3.1.2. Umsýslu- og auglýsingakostnaður

353.833 kr.

3.1.3. Við sérlega umfangsmiklar breytingar, s.s. vegna framkvæmda sem falla undir 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er heimilt að innheimta raunkostnað skv. tímaskráningu starfsmanna og auglýsingakostnað skv. reikningum

14.970 kr. klst.


3.2. Óveruleg breyting á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga:

Liður Verð

3.2.1. Breytingar á aðalskipulagsuppdrætti, aðkeypt þjónusta

skv. reikningi.

3.2.2. Umsýslu- og auglýsingakostnaður

146.977 kr.


4. gr. Deiliskipulag
Fyrir gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á deiliskipulagi fer eftir ákvæðum 38. og 43. gr. skipulagalaga nr. 123/2010. 

4.1. Nýtt deiliskipulag skv. 1.mgr. 38. gr. skipulagslaga:
 

Liður Verð

4.1.1. Deiliskipulagsgerð, aðkeypt þjónusta

skv. reikningi.

4.1.2. Umsýslu og auglýsingarkostnaður

296.675 kr.

4.1.3. Við sérlega umfangsmikil deiliskipulög, s.s. vegna framkvæmda sem falla undir 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er heimilt að innheimta raunkostnað skv. tímaskráningu starfsmanna og auglýsingakostnað skv. reikningum

14.970 kr. klst.


4.2. Veruleg deiliskipulagsbreyting skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga:
 

Liður Verð

4.2.1. Veruleg breyting á deiliskipulagi, aðkeypt þjónusta

skv. reikningi.

4.2.2. Umsýslu og auglýsingarkostnaður

259.931 kr.


 4.3. Óveruleg deiliskipulagbreyting skv. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga:
 

Liður Verð

4.3.1. Óveruleg breyting á deiliskipulagi, aðkeypt þjónusta

skv. reikningi.

4.3.2. Umsýslu og auglýsingakostnaður skv. 2. mgr.

142.894 kr.

4.3.3. Umsýslu og auglýsingakostnaður skv. 3. mgr.

79.612 kr.


5. gr. Grenndarkynning og önnur þjónustugjöld
Um grenndarkynningar og aðra þjónustu fer eftir ákvæðum 43. og 44. gr. skipulagslaga. Þegar grenndarkynning felur í sér vinnu skipulagsfulltrúa með öðrum hætti en með auglýsingu í blaði eru innheimt gjöld skv. neðangreindum liðum:
 

Linkur Verð

5.1. Grenndarkynning á leyfisumsókn.

79.612 kr.

5.2. Fyrir afhendingu landupplýsinga fyrir skipulagsvinnu.

14.970 kr. klst.

5.3. Tímagjald starfsmanna Umhverfis- og skipulagssviðs.

14.970 kr. klst.

       Þegar grenndarkynning er umfangsmeiri en ofangreind meðalgjöld gefa til kynna er heimilt að innheimta aukagjald skv. tímagjaldi skipulagsfulltrúa.

6. gr. Önnur þjónustugjöld 
Sveitarfélaginu Hornafirði er heimilt að innheimta önnur þjónustugjöld en mælt er fyrir um í gjaldskrá þessari, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslög nr. 123/2010, enda nemi þau ekki hærri fjárhæð en sem nemur kostnaði við að veita þjónustuna. Fyrir viðameiri verkefni er heimilt að innheimta gjöld eftir framvindu.

7. gr. Vísitölubinding gjalda
Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við launavísitölu í janúar 2025 (158,0 stig – grunnur frá mánaðarlegu launavísitölu helstu launþegahópa frá 2015) og breytast 1. janúar ár hvert, til samræmis við breytingar á vísitölunni.

8. gr. Kæruheimild
Aðilar máls geta kært ákvörðun samkvæmt gjaldskrá þessari til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála skv. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá því að aðila varð kunnugt, eða mátti vera kunnugt, um ákvörðunina. Kæra til nefndarinnar skal vera skrifleg og undirrituð, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

9. gr. Lagaheimild 
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá embættis embættis umhverfis- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar dags. 09. desember 2021.

Samþykkt í bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 01. júlí 2025. 
Jóna Benný Kristjánsdóttir staðgengill bæjarstjóra
 

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda SMELLA HÉR


I. KAFLI

1. gr.
Verkefni Slökkviliðs Hornafjarðar (SH) ákvarðast annars vegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af ákvæðum í samþykktum SH.
 

2. gr.
SH innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
 

3. gr.
Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum og/eða fellur að markmiðum sem SH eru sett í samþykktum.
 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.
Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 3. mgr. 12. gr. sömu laga.
 

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 19.660 kr.
 

5. gr. Öryggisvaktir á mannvirki.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 78.640 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.
 

6. gr. Lokun mannvirkis.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 78.640 kr. auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.
 

7. gr. Dagsektir.
Innheimta skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
 

8. gr. Öryggis- og lokaúttektir.
Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar. Innheimtar eru 68.690 kr. fyrir lokaskoðun eldvarnaeftirlits og 44.650 kr. fyrir öryggisskoðun. Fyrir stærri úttektir skal að auki innheimta 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.
 

9. gr. Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.
Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 19.660 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 78.640 kr., auk 19.660 kr., fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
 

10. gr. Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.
Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.
 

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 28.000 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár, og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

11. gr.
Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins samkvæmt samþykktum SH, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.
 

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 19.660 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 26.541 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 212.328 kr.
 

12. gr. Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.
Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla ekki undir lögin. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn, loftförum sem eru á jörðu niðri, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni utan gildissviðs laganna.
 

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 157.280 kr. auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
 

13. gr. Viðbúnaður vegna upphreinsunar.
Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Slökkviliðsstjóri skal innheimta samkvæmt gjaldskrá fyrir vinnu við upphreinsun, efni sem notuð eru til upphreinsunar, meðhöndlun og förgun þeirra, ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 157.280 kr., auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
 

14. gr. Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.
Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 157.280 kr., auk 19.660 fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
 

15. gr. Ráðgjafarþjónusta.
Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinna er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
 

16. gr. Tækjaleiga.
Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem ekki er hægt að leigja hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða vatnssugur, slökkvibíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhvers atburðar sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki SH skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 78.640 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.
 

17. gr. Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.
Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi, þar sem lögreglustjóri gefur ekki heimild til flutninga nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 78.640 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.
 

18. gr. Annað.
Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning SH. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 78.640 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 19.660 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.
 

IV. KAFLI

Innheimta.

19. gr.
Sveitarfélagið Hornafjörður annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 3. gr. til og með 10. gr. fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.
 

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

20. gr.
Gjaldskrá þessi er samin af Slökkviliði Hornafjarðar og samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar 13. febrúar 2025, með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Gjaldskráin er bundin neysluvísitölu og uppreiknast 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á vísitölu miðað við grunnvísitölu í janúar 2025, grunnvísitala skal aldrei vera lægri en 365,5 stig.

Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 395/2014.

Hornafirði, 17. mars 2025.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 31. mars 2025

2025

Vöruhús aðstaða Tími Verð í kr.

Leiga á einu Fab Lab tæki. Þegar verið er að framleiða vöru sem búið er að hanna (smáframleiðsla)

1 klst.

8.250

Leiga á Fab Lab smiðjunni til námskeiðhaldara

1 klst.

5000

Leiga á Fab Lab aðstöðu til námskeiðhaldara (án Fab Lab tækja)

1 klst.

2400

Fatahönnunarstofa til námskeiðshaldara

1 klst.

3800

Fatahönnunarstofa aðstaða fyrir frumkvöðla í fatahönnnun (fá lykil)

Mánuður

5900

Myndmenntastofa til námskeiðshaldara

1 klst.

3750

Smíðastofa til námskeiðshaldara

1 klst.

3750

Textilstofa til námskeiðshaldara

1 klst.

3750

Salur á miðhæð,fjölnota rými (listsýningar og viðburðir tengt list- og verkgreinum)

1 eining

5900

Ljósmyndastúdíó til námskeiðshaldara

1 klst.

3750

Ljósmyndastúdíó lítil notkun (engin ljós)

1 klst.

1200

Ljósmyndastúdíó meiri aðgangur (fá lykil)

Mánuður

5900

Keramik aðstaða

1 klst.

1200

Keramik aðstaða meira aðgangur (fá lykil)

Mánuður

5900

Málmsmíðastofa til námskeiðshaldara

1 klst.

3750

Tónlistarherbergi gjald á hverja hljómsveit (Allt upp í fjórar hljómveitir með eitt herbergi)

Mánuður

5900

Hljóðupptökuherbergi (Öll hljóðfæri og hljóðupptökubúnaður er í einkaeigu)

1 klst.

1200

Fab Lab efni Magn Verð í kr.

Plexigler glært, 3mm

60x30cm

2.700

Plexigler litað, svart og hvítt, 3mm

60x30cm.

4.000

Plexigler neon litað, 3mm

60x30cm

4.200

Plexigler glært, 6mm

60x30cm

4.700

Plexigler litað, svart og hvítt, 6mm

60x30cm

5.300

Plexigler neon litað, 6mm

60x30cm

6.800

Birki krossviður, 4mm 122 x244

30x30cm

700

Birki krossviður, 6mm 122 x244

30x30cm

950

Birki krossviður, 9mm 122 x244

30x30cm

1.350

Birki krossviður, 12mm 122 x244

30x30cm

1.500

Birki krossviður, 3mm, sér fyrir laser

60x30cm

2.100

Límmiðafólía (inni-500) með transferfilmu, 60cm x 100cm (Hægt að kaupa allt frá 25cm af rúllu)

60x100cm

2.100

Gluggafilma sandblásturáferð með transferfilmu, 60cm x 100cm (Hægt að kaupa allt frá 25cm af rúllu)

60x100cm

2.500

Fólíur til að strauja á efni 50x100cm (Hægt að kaupa allt frá 25cm af rúllu)

50x100cm

3.150

PLA fyrir þrívíddarprentara

1 gramm

20

Resin fyrir Anycubic resin prentara

100 mm

1.250

Mótagerð (Mayku) EVA fyrir matargerð

1 stykki

2.400

Mótagerð (Mayku) PETG

1 stykki

1.250

Mótagerð (Mayku) HIPPS

1 stykki

1.050

 

Götu‐ og torgsala glæðir bæinn lífi og eykur við fjölbreytni í starfsemi og þjónustu á svæðinu. Samþykkt þessi gildir fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og er ætlað að stuðla að því að vel sé að þessum málaflokki staðið, sölustarfsemi sé í sátt við nærumhverfi sitt og að upplýsingar séu aðgengilegar og gagnsæjar.

Gjaldskrá febrúar 2016 - götu- og torgsöluleyfi

Staðsetning Fjöldi stæða Leigugjald kr. Tímabil

Akurey/smábátabryggja

2

Kr. 105.000.- mv. allt að 15 m² vagn. / Verð utan stöðuleyfis

Allt árið

Svæði á móts við Gömlubúð

3

Kr. 105.000.- mv. allt að 15 m² vagn. / Verð utan stöðuleyfis

Allt árið

Við Sundlaug Hafnar

3

Kr. 105.000.- mv. allt að 15 m² vagn. / Verð utan stöðuleyfis

Allt árið

Miðsvæði við Miðbæ

3

Kr. 105.000.- mv. allt að 15 m² vagn. / Verð utan stöðuleyfis

Allt árið

Ath. verðskrá tekur breytingum samkvæmt þróun á fastaeignagjöldum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Linkur á Samþykkt og Gjaldskrá um götu- og torgsölu: SMELLA HÉR

Fyrirkomulag: 
Sveitarfélagið Hornafjörður býður aðilum sem sinna störfum óháð staðsetningu upp á að leigja skrifstofuaðstöðu á annarri hæð í Miðbæ á Höfn. Um er að ræða sameiginlega skrifstofuaðstöðu fyrir allt að fimm aðila, með aðgengi að kaffistofu og fundaraðstöðu. Aðstaðan hæfir jafnt fyrir ný störf sem og eldri sem unnin geta verið án staðsetningar.
Gjaldskrá:

Tímabil Leiguverð

Leiga fyrir einn mánuð

25.000 kr.

Leiga fyrir eina viku

8000 kr.

Innifalið í leigu er rafmagnskostnaður, nettenging og þrif á sameign. Sveitarfélagið Hornafjörður annast einnig aðrar greiðslur sem falla til vegna Húsfélagsins Litlubrú 1.

Leiguverðið miðast við vísitölu neysluverðs 31. ágúst 2022 og uppreiknast árlega m.v. sömu dagssetningu. Til að koma til móts við frumkvöðla sem vinna að þróun á vöru eða þjónustu býður sveitarfélagið upp á aðstöðuna með 50% afslætti til allt að 12 mánaða.Samþykkt í Bæjarráði Hornafjarðar 02.03.2023
 
Samþykkt í Bæjarráði Hornafjarðar 02.03.2023

1. gr. Gildissvið.

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðenda  SMELLA HÉR

Gjaldskrá þessi er sett með vísan til X. kafla og 3. mgr. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Notendur greiða fyrir akstursþjónustu sem veitt er á vegum stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Nánar er fjallað um akstursþjónustu í reglum sem sveitarfélagið hefur sett sér um akstursþjónustu aldraðra, nr. 60/2025, og reglum sveitarfélagsins um akstursþjónustu fatlaðra, nr. 59/2025.

2. gr. Svæðisskipting þjónustusvæðis.
Við ákvörðun fjárhæðar gjalds fyrir akstursþjónustu er horft til gjaldskrár Strætó bs innan sveitarfélagsins. Sveitarfélaginu er skipt upp í 8 gjaldsvæði með eftirfarandi hætti.

Svæðisskipting:

1

0-2 km

Höfn, innanbæjar

2

2-20 km

Hafnarnes – Hoffell

3

21-40 km

Viðborðssel – Flatey

4

41-60 km

Skálafell – Kálfafell

5

61-80 km

Hali – Jökulsárlón

6

81-100 km

Ekkert lögbýli

7

101-120 km

Hnappavellir – Hof

8

121-140 km

Sandfell – Skaftafell


3. gr. Fjárhæð gjalds.
Fjárhæð fargjalds fer annars vegar eftir akstri innan gjaldsvæðis í samræmi við 2. gr. í gjaldskrá þessari, og hins vegar eftir flokkun akstursþjónustu. Ástæður akstursþjónustu er skipt upp í 3 flokka sem eru eftirfarandi:

  1. Akstursþjónusta í dagdvöl aldraðra í Ekru eða dagþjónustu fatlaðs fólks í Miðgarði:

    1. Akstur í dagvist aldraða og dagþjónustu fatlaðs fólks er gjaldfrjáls.

  2. Akstursþjónusta í nauðsynlega þjónustu. Nauðsynleg þjónusta er t.d. á heilsugæslu Heilsustofnunar Suðurlands á Höfn, til sjúkraþjálfara, tannlæknis, í banka, í matvöruverslun eða í hárgreiðslu:

    1. Akstur í nauðsynlega þjónustu miðast við hálft verð gjaldskrár Strætó bs á svæðinu.

  3. Önnur akstursþjónusta:

    1. Akstur vegna erinda sem ekki flokkast til nauðsynlegrar þjónustu nýtur ekki forgangs við veitingu þjónustu. Fyrir hann er rukkað fullt gjald skv. gjaldskrá Strætó bs á svæðinu.


Gjaldskrá akstursþjónustu er eftirfarandi:
 

Svæði Skilgreining Miðgarður / Ekran Önnur nauðsynleg þjónusta Annar akstur

1

Höfn, innanbæjar

0 kr.

150 kr.

300 kr.

2

2-20 km

0 kr.

300 kr.

600 kr.

3

21-40 km

0 kr.

450 kr.

900 kr.

4

41-60 km

0 kr.

600 kr.

1.200 kr.

5

61-80 km

0 kr.

750 kr.

1.500 kr.

6

81-100 km

0 kr.

950 kr.

1.900 kr.

7

101-120 km

0 kr.

1.100 kr.

2.200 kr.

8

121-140 km

0 kr.

1.250 kr.

2.500 kr.

Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur frá einum stað til annars innan þjónustusvæðis.

 


4. gr. Aðrir farþegar/aðstoðarmenn.
Notendum er heimilt að hafa með sér annan farþega sé það tekið fram þegar pantað er og greiðir notandinn þá sama verð fyrir hann. Börn undir sex ára aldri í fylgd með fötluðum foreldrum greiða ekkert gjald.

Geti notandi ekki ferðast einn að mati matsnefndar „Þjónustunnar heim“ er hægt að krefjast þess að aðstoðarmaður fylgi notanda. Fyrir aðstoðarmann er ekki greitt fargjald.

5. gr. Gjaldskylda ónýttrar þjónustu.
Greiða skal fyrir pantaðar ferðir þegar forföll hafa ekki verið tilkynnt.

Afpanta skal ferð með a.m.k. 2 klst. fyrirvara, að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

Mæti notandi ekki á upphafsstað ferðar á tilsettum tíma telst ferðin einnig með í uppgjöri.

6. gr. Innheimta gjalds.
Gjaldið er innheimt með greiðsluseðli um hver mánaðamót. Allar ferðir umfram úthlutaðar ferðir eru greiddar að fullu af notanda.



Hornafirði, 10. janúar 2025.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2025

 

1. gr. Gildissvið 
Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/0218, og 85. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og 26. gr. laga um félagsþjónustusveitarfélaga nr. 40/1991. 

2. gr. Greiðslur til stuðningsfjölskyldna
 
Gjaldskrá:

Flokkur Greiðsla á sólarhring

1

50.465 kr.

2

39.052 kr.

3

33.072 kr.

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna eru skattskyldar verktakagreiðslur en draga má frá kostnað samkvæmt reglum Ríkisskattstjóra.

3. gr. Fyrirkomulag greiðslna 
Sveitarfélagið Hornafjörður greiðir stuðningsfjölskyldu barns þóknun fyrir hvern sólarhring sem barnið dvelur hjá fjölskyldunni. Greiðslur eru stigskiptar eftir umfangi fötlunar og/eða umönnunarþörf.

Greiðslur til stuðningsforeldra fatlaðra barna taka mið af umönnunarflokki barnsins samkvæmt Tryggingastofnun ríkisins1 og niðurstöðum SIS-C mats frá Ráðgjafa- og greiningarstöð. Greiðslur til stuðningsforeldra fyrir dvöl hluta úr sólarhring miðast við hálft og heilt sólarhringsgjald. Fyrir dvöl sem varir í um 7 til 10 klst. einn dag í mánuði greiðist hálfur sólarhringur. Ef dvölin er tvisvar í mánuði þá er greitt fyrir einn sólarhring og þannig koll af kolli.

Sé þjónusta stuðningsfjölskyldna veitt fyrir tilstilli barnaverndarþjónustu fá stuðningsfjölskyldur alla jafna greitt skv. umönnunarflokki nr. 2 hjá Tryggingastofnun ríkisins og þegar þjónusta er veitt fyrir tilstilli félagsþjónustu þá fá stuðningsfjölskyldur alla jafna greitt samkvæmt umönnunarflokki nr. 3. Fjárhæð greiðslna er sem hér segir.

4. gr. 
Gjaldskrá þessi öðlast gildi þann 1. janúar 2025 og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis.

1 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, (1997). Reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna, nr. 504/1997. 

Sótt af: Island.is

 

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda SMELLA HÉR

1. gr. Almennt.
Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld vegna meðferðar úrgangs í sveitarfélaginu í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði, nr. 236/2018.

2. gr. Íbúðarhúsnæði.
Sorpgjald samkvæmt þessari grein er samanburður af föstu gjaldi og breytilegu gjaldi. Breytilegt gjald er lagt á í samræmi við fjölda og tegund sorptunna sem húseigandi sótti um.

 

 

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda SMELLA HÉR

1. gr. Almennt.
Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og gjald fyrir hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu skv. gjaldskrá þessari, sbr. III. kafla samþykktar um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 669/2016.

2. gr. Tengigjald fráveitu.
Eiganda eða rétthafa fasteignar sem tengst getur fráveitu Sveitarfélagsins Hornafjarðar ber að greiða gjald fyrir tengingu við fráveitukerfi sveitarfélagsins. Gjaldið skal innheimt við útgáfu byggingarleyfis og skal vera eftirfarandi:

2.1.

Fyrir hverja tengingu allt að 150 mm

90.000 kr.

2.2.

Fyrir hverja tengingu yfir 150 mm

190.000 kr

Innifalið í stofngjaldi er tengistútur sem nær inn fyrir lóðarmörk.
Tengigjald fráveitu tekur breytingum í samræmi við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar sem er 159,3 stig í desember 2021.

3. gr. Fráveitugjald.
Fráveitugjald skal greitt af öllum húseignum sem tengjast fráveitukerfi sveitarfélagsins eða geta tengst því enda sé tenging fyrir hendi við mörk fasteignar.

Álagningarstofn fyrir fráveitugjald skal vera 0,335% af fasteignamati fasteignar í heild, sbr. 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.
Fráveitugjald er innheimt með fasteignagjöldum.

4. gr. Rotþróargjald.
Fyrir hvert íbúðar-, sumar- eða frístundahús innan marka sveitarfélagsins með eigin fráveitu, eða fráveitu sem ekki er tengd holræsakerfi í eigu sveitarfélagsins, skal greiða árlegt rotþróargjald, sbr. 5. mgr. 9. gr. samþykktar um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 669/2016.
Ársgjald fyrir tæmingu rotþróa tekur mið af raunkostnaði við tæmingu sem á sér stað þriðja hvert ár.

Stærð rotþróa Eining Ársgjald Raunkostnaður tæmingar

0 – 4.000 l

Pr. rotþró

13.000 kr.

39.000 kr.

4.001 – 6.000 l

Pr. rotþró

15.000 kr.

45.000 kr.

+6.000 l

Pr.rúmmetra

6.400 kr.

6.400 kr.

Förgunargjald er samkvæmt gjaldskrá fyrir söfnunarstöð sorps á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Rotþróargjald miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að nota lengri barka en 50 metra. Þurfi að nota lengri barka, allt að 100 metra, bætast við 11.200 kr.

Sé ekki unnt að tæma rotþró í reglubundinni yfirferð og því þurfi að fara aukaferð, skal húseigandi greiða endurkomugjald til viðbótar við önnur rotþróargjöld. Endurkomugjald er 50% álag á raungjald fyrir tæmingu miðað við stærð rotþróar.

Ef fleiri en eitt íbúðar-, sumar- eða frístundahús er tengt rotþró skal rotþróargjaldi deilt með jöfnum hætti á fasteignir, nema ef sýnt er fram á aðra eignar- eða notkunarskiptingu á þrónni.

5. gr. Endurskoðun gjaldskrár.
Gjaldskrá þessa skal umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

6. gr. Lögveðsréttur.
Fráveitugjaldi og tengigjaldi ásamt innheimtukostnaði og vöxtum fylgir lögveðsréttur í fasteigninni í tvö ár frá gjalddaga sbr. 3. mgr. 16. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.

7. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, með síðari breytingum, og 9. gr. reglugerðar um fráveitur sveitarfélaga nr. 982/2010 og öðlast gildi við birtingu.

Frá sama tíma falla úr gildi gjaldskrá fyrir hreinsun á rotþróm í Sveitarfélaginu Hornafirði frá 2008 og gjaldskrá embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar nr. 291/2014 er varðar fráveitu.

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 9. desember 2021.

Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 28. desember 2021

 

1. gr. Gildissvið 
Með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og málefni aldraðra nr. 125/1999. Notendur greiða fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf og mat. 

2. gr. Félagsleg heimaþjónusta 
Gjald fyrir heimaþjónustu fer eftir lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Aldrei er innheimt fyrir meira en tveggja (2) tíma aðstoð við heimilisstörf vikulega, eða átta (8) tíma á mánuði. Fullt tímagjald fyrir félaglega heimaþjónustu er 2300 kr. á tímann. Afsláttur vegna tekna er veittur skv. 6. gr. gjaldskrár þessarar. 
3. gr Dagdvöl og matarþjónusta

Flokkur Verð

Heimsendur matur

1.484 kr.

Hádegismatur í Ekrunni og Miðgarði

1.484 kr.

Kaffi í Ekrunni

275 kr.**

Kaffimeðlæti í Ekrunni

575 kr.**

Dagdvöl aldraðra með mat

1.619 kr.***

*Gjaldskrá fylgir innkaupaverði frá birgja 
**Gjaldskrá endurskoðuð árlega 
***Skv. reglugerð nr.1245/2016 um dagdvöl aldraðra


4. gr. Innheimta 
Reikningar fyrir ofangreinda þjónustu eru sendir notendum mánaðarlega, í upphafi næsta mánaðar eftir að þjónustan er innt af hendi. 

5. gr. Fylgigögn með umsókn 
Til að hægt sé að sækja um afslátt af gjaldi fyrir heimaþjónustu þurfa eftirtalin gögn að fylgja með umsókn um heimaþjónustu, launa- eða greiðsluseðlar þriggja undangenginna mánaða og afrit af nýjasta skattframtali hverju sinni

Árlega er kallað eftir endurnýjun umsókna um niðurfellingu gjalds og tekjuupplýsingum. Kjósi notendur af einhverjum ástæðum að skila ekki inn umsókn og tekjuupplýsingum fyrir tilskilinn tíma greiða þeir fullt gjald.

6. gr. Tekjumörk árið 2025 
Við ákvörðun tekjumarka er miðað við viðmiðunargreiðslur almannatrygginga til lífeyrisþega í janúar ár hvert. Fyrir árið 2025 eru það: 

  • Einstaklingar með tekjur undir 435.338,- krónum á mánuði
  • fólk sem heldur heimili saman, hvort með tekjur undir 347.521,- krónur á mánuði, 

Undanþegnir gjaldskyldu félagslegrar heimaþjónustu eru: 

  • Einstaklingar og hjón sem hafa tekjur undir framangreindum tekjuviðmiðum 

50% afslátt af félagslegri heimaþjónustu fá: 

  • Einstaklingar og hjón sem eru með allt að 25% hærri tekjur en framangreind tekjuviðmið 

Notendur greiða ekki fyrir fleiri en 8 klukkustundir á mánuði.


Tekjumörk einstaklinga:

Neðri mörk Efri mörk Gjaldflokkar Kr. / klst.

0

435.338

Flokkur 0

0

435.339

544.173

Flokkur I

1150

544.174

Flokkur II

2300


Tekjumörk hjóna og sambýlisfólks:

Neðri mörk Efri mörk Gjaldflokkar Kr. / klst.

0

695.042

Flokkur 0

0

695.043

868.803

Flokkur I

1150

868.804

Flokkur II

2300



Sjá reglur fyrir frekari upplýsingar: SMELLA HÉR


7.gr. Málskot 
Heimilt er að skjóta ákvörðunum starfsmanna um þjónustuna og gjaldtöku til velferðarnefndar Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Skal það gert skriflega og innan fjögurra vikna frá því notanda var kunnugt um ákvörðun matsteymis Þjónustunnar heim. 

Ákvörðun velferðarnefndar má skjóta til Úrskurðarnefndar velferðarmála, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Skal það gert skriflega og innan þriggja mánaða frá því notanda var kunnugt um ákvörðun velferðarnefndar. 

Starfsmaður velferðarsviðs skal leiðbeina umsækjendum um hvernig skuli skjóta ákvörðunum til úrskurðarnefndar velferðarmála. 

8. gr. Gildistaka 

Gjaldskrá þessi öðlast gildi þann 1. janúar 2025 og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis. 

Samþykkt í bæjarstjórn 13.02.2025.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri

 

Verklagsreglur þessar fjalla um garðslátt og gjald fyrir íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar. 

1. Notendur félagslegrar heimaþjónustu og aðrir sem velferðarsvið metur til þess fá niðurgreiðslur á garðslætti yfir sumarið. Eiga þeir rétt á garðslætti í fjögur skipti yfir sumartímann samkvæmt reglum um félagslega heimaþjónustu.* 

Gjald: Lítill garður: 2.815 kr. stór garður (yfir 1.000 m2 heildar stærð lóðar) 3.378 kr. 

2. Eldri borgarar og öryrkjar í sveitarfélaginu eiga rétt á niðurgreiðslu á garðslætti í fjögur skipti yfir sumartímann.* 

Gjald: Lítill garður: 5.630 kr. stór garður (yfir 1.000 m2 heildar stærð lóðar): 8.445 kr. 

*Reglurnar gilda ekki yfir þá sem búa í fjölbýlishúsi, sameignir þurfa að sjá um garðslátt sjálfar. Umsóknarferli gegn um afgreiðslu í Ráðhúsi afgreidsla@hornafjordur.is, sýna þarf skírteini um örorku eða ellilífeyri. 

Umsóknin er afgreidd í afgreiðslu sveitarfélagsins. 

Gjaldskráin er vísitölutengd og er uppreiknuð í upphafi árs.

Samþykkt í bæjarráði 16.febrúar 2023. 
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri

GJALDSKRÁ vegna refa- og minkaveiða í Sveitarfélaginu Hornafirði

 1. gr. Almennt
Sveitarfélagið Hornafjörður greiðir fyrir veiðar á refum og minkum innan sveitarfélagsins í samræmi við reglur um refa og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Um veiðar þessar gilda ákvæði laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim, einkum reglugerð nr. 437/1995, um refa- og minkaveiðar með síðari breytingum á reglugerðum.

2. gr. Refaveiði 
Fyrir hvert unnið dýr skal greiða 11.000 kr. þeim er rétt eiga á greiðslu skv. reglum um refa og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Einungis samningsbundnum veiðimönnum er greitt fyrir veiðar á grenjatímabilinu sem stendur yfir frá 1. maí til 31. júlí ár hvert.

Utan grenjatíma er samningsbundnum veiðimönnum greitt fyrir hlaupadýr sem og þeim sem landeigandi á viðkomandi svæði hefur tilnefnt til veiða á hlaupadýrum. 

3. gr. Minkaveiðar 
Sveitarfélagið Hornafjörður ræður veiðimenn til minkaveiða og greiðir þeim 8.000 kr. fyrir hvert unnið dýr. 

Veiðimenn skulu að jafnaði veiða á tímabilinu 20. apríl til 30. júní, en heimilt er að veiða mink allt árið. 

4. gr. Skilyrði fyrir greiðslum 
Veiðimenn skuldbinda sig til að fylgja reglum um refa og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til þess að halda eftir greiðslu ef veiðiskýrsla er ófullnægjandi og/eða óútfyllt. 

Reikningum vegna veiðitímabilsins skal skilað eigi síðar en 10. september en þá þarf að samþykkja af umhverfis- og skipulagssviði áður en þeir eru greiddir. 

5. gr. Endurskoðun gjaldskrár 
Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. 

6. gr. Gildistaka 
Gjaldskrá þessi byggir á reglum um refa og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði og öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma falla úr gildi reglur um refa og minkaveiði í Austur-Skaftafellssýslu frá 5. apríl 2013.

Gjaldskrá leikskóla í Sveitarfélaginu Hornafirði 1.8.2022-31.7.2023

Fjöldi klst. á dag Tími Almenn gjöld Gjöld forgangshópa

4

mánaðargjald

12.615 kr.

8.831 kr.

5

mánaðargjald

15.769 kr.

11.038 kr.

6

mánaðargjald

18.923 kr.

13.249 kr.

7

mánaðargjald

22.077 kr.

15.454 kr.

8

mánaðargjald

25.231 kr.

17.662 kr.

15 mín gjald

877 kr.

0 kr.

60 mín gjald

3.154 kr.

2.208 kr.

Veittur er systkinaafsláttur; 50% með öðru barni og 100% með þriðja barni. Systkinaafsláttur er tengdur á milli skólastiga þannig að foreldrar sem eiga börn í Kátakoti fá systkinaafslátt þar.

 

Fæðisgjöld leikskóla á mánuði 

Morgunmatur

2.423 kr.

Hádegisverður

6.142 kr.

Síðdegishressing

2.423 kr.

Samtals

10.988 kr.

Gjaldskrá fyrir leikskólavist fylgir vísitölu neysluverðs og er uppreiknuð 1. ágúst ár hvert.

Sækja gjaldskrá af vef Stjórnartíðinda SMELLA HÉR

1. Vatnsgjald

  • Greitt árlega af öllum fasteignum tengdum vatnsveitu.
  • Reiknað sem 0,155% af fasteignamati.
  • Innheimt með fasteignagjöldum.

2. Notkunargjald

  • Fyrirtæki og aðrir sem nota vatn í atvinnuskyni greiða notkunargjald.
  • Reiknað eftir mæli (eða áætlun ef mæling er ekki möguleg).
  • Verð: 35 kr./m³.

3. Mælaleiga

  • Vatnsveitan útvegar löggilta vatnsmæla.
  • Notandi greiðir árlega:
    • Mælir ≤ 40 mm: 23.000 kr.
    • Mælir 40–63 mm: <47.000 kr.
    • Stærri mælir: verð reiknað sérstaklega.

4. Heimæðargjald

  • Greitt við byggingarleyfi eða afhendingu heimæðar.
  • Gildir einnig við endurnýjun heimæða sem ekki eru í eigu vatnsveitunnar.
  • Innifalið: allt að 50 m lögn. Viðbót: 2% á hvern metra yfir 50 m.
    • Tenging ≤ 40 mm: 300.000 kr.
    • Tenging 40–63 mm: 410.000 kr.
    • Stærri tengingar: verð reiknað sérstaklega.

5. Vísitölubinding

  • Öll gjöld nema vatnsgjald fylgja vísitölu byggingarkostnaðar (159,3 stig í des. 2021).

6. Lögveðsréttur

  • Vatnsgjald og heimæðargjald hafa lögveðsrétt í viðkomandi fasteign í allt að 2 ár frá gjalddaga.

7. Gildistaka

  • Gjaldskráin tók gildi við birtingu og leysti af hólmi eldri gjaldskrá frá 2014.