Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

12. fundur
16. apríl 2021 kl. 09:30 - 10:15
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Gestur Leó Gíslason verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn Svínafell 1 Austurbær, sumarhús
Málsnúmer 1211098
Halldór Þorsteinsson sótti um byggingarleyfi fyrir sumarhús að Svínafelli þann 29.11.2012. Húsið hefur ekki verið skráð í fasteignaskrá, en að sögn eiganda var húsið byggt 2014/2015. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti erindi að sínu leyti þann 05.12.2012.
Byggingarleyfi samþykkt fyrir þegar byggt hús skv. 13.gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
2.
Byggingarleyfisumsókn - Hnappavellir 1, niðurrif mhl 15 F2182090
Málsnúmer 202101033
Gísli Sigurjón Jónsson sækir um leyfi til niðurrifs geymslu mhl 15 á Hnappavöllum 1 skráð byggingarár 1922. Að sögn eiganda um gamlan bústaðabæ ræðir byggðan 1925.Til staðar er umsögn Minjastofnunar Íslands.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. mannvirkjalaga. Sveitarfélagið hvetur eiganda að kanna möguleika á að varðveita húsið. Hægt er m.a. að sækja um styrk úr húsafriðunarsjóði Minjastofnunar Íslands.
3.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 25A-E, raðhús
Málsnúmer 202101056
JEK ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhús á Víkurbraut 25A-E. Um er að ræða íbúðir fyrir aldraða. Bæjarstjórn hefur heimilað óveruleg frávík frá deiliskipulagi þann 11.02.2021.
Byggingarleyfi samþykkt þann 16.03.2021 skv. 13.gr. mannvirkjalaga.
4.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 7, einbýlishús
Málsnúmer 202101088
Jón Vilberg Gunnarsson sækir um byggingarleyfi til að reisa eibýlishús á Hagaleiru 7. Bæjarstjórn hefur heimilað óveruleg frávík frá deiliskipulagi þann 11.02.2021.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. mannvirkjalaga.
5.
Byggingarleyfisumsókn: Akurnes - geymsla
Málsnúmer 201903003
Akurnesbúið ehf. sækir um byggingarleyfi til að byggja kalda geymslu á Akurnesi. Bæjarstjórn samþykkti að falla frá grenndarkynningu þann 15.04.2021.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. mannvirkjalaga.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 11, einbýlishús
Málsnúmer 202103094
Anna Regína Heiðarsdóttir og Hlynur Kristjánsson sækja um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á Hagaleiru 11. Bæjarstjórn samþykkti að falla frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkyningu þann 15.04.2021.
Byggingaráform samþykkt skv. 11.gr. mannvirkjalaga.
7.
Stöðuleyfisumsókn: Víkurbraut 29 Skjólgarður: Gámur
Málsnúmer 202103103
Vigdísarholt ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir skrifstofugám við Skjólgarð á meðan nýtt húsnæðið er í byggingu. Bæjarráð Hornafjarðar veitti jákvæða umsögn f.h. lóðareiganda þann 13.04.2021.
Stöðuleyfi samþykkt til 12 mánaða sbr. 2.6.1.gr. byggingarreglugerðar 112/2012.