Fara í efni

Almannavarnanefnd

46. fundur
24. febrúar 2014 kl. 12:15 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson formaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður
Páll Björnsson aðalmaður
Einar Sigurjónsson varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Matthildur Ásmundardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hópslysaáætlanir
Málsnúmer 201402050
Formaður nefndi að koma þurfi hópslysaáætlunum sem í gildi eru í sveitarfélaginu betur á framfæri. Að hægt sé að nálgast allar áætlanir á einum stað. Minnti á að fara þurfi reglulega yfir áætlanirnar með viðbragðsaðilum til að allir séu meðvitaðir um viðbrögð í neyð. Einar nefndi að gott væri að koma upp reglulegum æfingum í tenglsum við viðbrögð og tóku fundarmenn undir það. Jónas nefndi að ekki sé algengt að flugslysaáætlanir séu virkjaðar, mætti nýta þær betur sem hópslysaáætlanir utan flugvallar. Setja mætti upp hnapp á vef sveitarfélagsins þar sem farið er beint inná ýmsar áætlanir sem tilheyra viðbragðsaðilum í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að vinna að útfærslu á þessu með gæða- og upplýsingastjóra og formanni nefndarinnar.
2.
Öræfaferð almannavarnarnefndar
Málsnúmer 201402049
Björgunarsveitin Kári í Öræfum hefur óskað eftir heimsókn almannavarnarnefndar eða fulltrúa hennar til að fara yfir málefni fjöldahjálpastöðvar í Hofgarði og reynslu frá síðustu nýtingar hennar. Einnig kynnti formaður að Vegagerðin hefur samið við Bsv.Kára um lokanir á vegum ef þarf vegna veðurs. Gerð tillaga að ferð miðvikudaginn í Öræfin 5. mars. Bæjarstjóra falið að bjóða fulltrúa úr stjórn Rauða krossins með.
3.
Almannaskarð - eignarhald og öryggismál
Málsnúmer 201402051
Erindi almannavarnarnefndar til Vegageraðarinnar
Bréf frá Vegagerðinni lagt fram til kynningar. Þar kemur fram að viðræður hafa verið í gangi um að Vegagerðin, lögregla og slökkvilið geti farið um veginn um Almannaskarð ef þörf er á. Nefndin leggur áherslu á að þetta mál verði klárað fyrr en síðar til að tryggja öryggi vegfarenda.
4.
Vettvangsstjórnarnámskeið
Málsnúmer 201402048
Formaður greindi frá því að ákveðið hefur verið að halda vettvangsstjórnar námskeið á Kirkjubæjarklaustri í mars n.k. og kynnti möguleika á að senda fulltrúa á það námskeið. Einnig kom fram að möguleiki sé að fá námskeið á Höfn fyrir viðbragðsaðila hér. Fundarmenn kanna í sínum einingum hvort hægt sé að senda fulltrúa á Klaustur og láti formann vita sem fyrst ef af verður.