Almannavarnanefnd
47. fundur
5. mars 2014
kl.
16:15
-
19:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
formaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Friðrik Jónas Friðriksson
aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Öræfaferð almannavarnarnefndar
Björgunarsveitin Kári í Öræfum óskaði eftir fundi með Almannavarnanefnd til að fara yfir aðgerð frá því í september 2013 þegar opna þurfti fjöldahjálparstöð í Hofgarði, Öræfum vegna óveðurs. Stjórn Björgunarsveitarinnar Kára þeir Ármann Guðmundsson, Gunnar Sigurjónsson, Ólafur Sigurðsson og Guðmundur Þórðarson sátu fundinn auk Regínu Hreinsdóttur og Guðmundar Ögmundssonar frá Vatnajökulsþjóðgarði og Pálínu Þorsteinsdóttur skólastjóra Grunnskólans í Hofgarði.
Farið var yfir aðgerðina sem tókst í alla staði vel. Umræður um hvað læra má af aðgerðinni. Niðurstaða fundarins er að útbúa reglur fyrir fjöldahjálparstöð. Maríanna kynnir sér hvort til séu almennar reglur hjá RKÍ sem aðlaga má að aðstæðum. Almannavarnarnefnd mun gera drög að reglum sem Öræfingar fá til yfirlestrar og gerð athugasemda.
Ítreka skal í reglunum að fjöldahjálparstöð er húsaskjól á meðan unnið er úr aðstæðum og bæta þarf merkingar.
Almannavarnanefnd auglýsti einnig opinn fund um málefni sem tengjast nefndinni. Góð mæting var einnig á þann hluta fundarins eða um tuttugu Öræfingar.
Reynir Gunnarsson hjá Vegargerðinn fór yfir fyrirhugaða staði þar sem komið verður upp búnaði til lokunar á þjóðvegi. Um er að ræða slá sem nær yfir aðra akgrein vegarins og gert er ráð fyrir að björgunarsveitir verði með vakt við hliðin þegar kemur til lokanna. Rætt um staðsetningar austan við Skeiðarársand hvort rétt sé að loka við Skaftafell eða Freysnes. Einnig rætt um lokun við Sandfells hvort eystra hliðið eigi að vera við Jökulsárlón. Umræður sköpuðust um merkingar, vindmæla og mat á því hvenær opna á veg aftur.
Farið yfir fjöldahjálpartösku RKÍ sem staðsett er í Hofgarði og virkjun fjöldahjálparstöðvar. Rætt um þörf fyrir námskeið í neyðarvörnum.
Spurt um rýmingaráætlun vegna náttúruhamfara sem er verið að vinna af Veðurstofunni. Ekki hafa borist neinar nioðurstöður þaðan en von er á þeim a.m.k. í haust.