Almannavarnanefnd
48. fundur
24. mars 2014
kl.
12:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
formaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Friðrik Jónas Friðriksson
aðalmaður
Páll Björnsson
aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir
aðalmaður
Einar Sigurjónsson
varamaður
Jón Garðar Bjarnason
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Öræfaferð almannavarnarnefndar
Farið yfir minnisblað frá fundi nefndarinnar í Hofgarði 5. mars sl. Þar var ákveðið að kanna hvort til séu reglur um Fjöldahjálparstöðvar sem setja má upp í Hofgarði. Samkvæmt upplýsingum frá Maríönnu Jónsdóttur fráfarandi formanni Hornafjarðardeildar RKÍ er verið að endurskoða reglur RKÍ í Fjöldahjálparstöðvum. Ákveðið að bíða endurskoðaðra reglna og hvetja RKÍ deildina til að vinna áfram að málinu með Öræfingum og óska eftir námskeiði í neyðarvörnum fyrir svæðið. Einnig mikilvægt að hafa vesti til að auðkenna starfsfólk á staðnum. Einnig rætt um mikilvægi þess að hjálparaðilar hér á Höfn séu tilbúnir til að fara í Öræfin ef á þarf að halda.
2.
Hættuástand við ferðamannastaði á Suðausturlandi
Farið yfir ábendingar frá ferðaþjónustuaðilum í sýslunni varðandi hættuástand sem komið hefur upp bæði í fjörunni við Jökulsárlón og mikinn ágang í íshellaskoðanir þar sem aðilar sem þekkja ekki vel til svæðisins hafa farið ógætilega um með viðskiptavini sína. Rætt um ábyrgð og skyldur sveitarfélagsins og lögregluyfirvalda í þessum málum. Jón Garðar lagði til að settar verði upp áberandi merkingar þar sem við á og jafnvel bannaður aðgangur ef talið er að hætta sé á ferðum í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð. Rætt um merkingar og fyrirmyndir frá öðrum stöðum.
Nefndin samþykkir að farið verði í viðræður við Vatnajökulsþjóðgarð um merkingar og /eða lokanir á slóðum við íshella og kannað hvernig merkingar eru t.d. í Reynisfjöru þar sem svipuð hætta er og við fjöruna við Jökulsárlón. Málinu vísað til starfsmanna.
Einnig rætt um að ferðaþjónustuaðilar hafa gert athugasemd við fréttaflutning á ábyrgð Landsbjargar vegna andláts í íshelli fyrr í vetur.
Hætta hefur einnig skapast í vetur vegna norðurljósaskoðanna. Nefndin bendir á hættu sem skapast við að bílar án ljósa séu á þjóðveginum.
Formanni nefndarinnar og bæjarstjóra falið að koma upplýsingum um hættur í sveitarfélaginu til ferðaþjónustuaðila sem gera út á svæðið.
Ábendingar frá lögreglunni um þá umferðahættu sem skapast við fjölfarna ferðamannastaði í sýslunni. Þar sem mikil umferð bíla, hjólandi og gangandi er á þröngum vegum. Sem dæmi má nefna mikla hættu við brúna yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi og á vegarkafla milli Skaftafells og Freysnes.