Almannavarnanefnd
49. fundur
19. september 2014
kl.
12:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Friðrik Jónas Friðriksson
1. varamaður
Jón Garðar Bjarnason
varamaður
Matthildur Ásmundardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Jarðhræringar Bárðarbungu
Björn Ingi fór yfir stöðu mála og fund sem hann tók í síma í gær ásamt fleirri framkvæmdastjórum sveitarfélaga umhverfis Vatnajökul. Ákveðið hefur verið að halda samskonarfundi tvisvar í viku.
Almannavarnarnefnd beinir því til bæjarráðs að tryggja varaafl fyrir vatnsveitu sveitarfélagsins. Með kaupum á nægilega öfluga rafstöð sem dugar fyrir dælur inn á Laxárdal núverandi rafstöð myndi síðan duga fyrir dælur í vatnstank. Einnig telur almannavarnarnefnd nauðsynlegt að birgðastaða á rykgrímum og hlífðargleraugum verði könnuð bæði í Öræfum og á Höfn. Nauðsynlegt er að útbúa aðgang fyrir lögregluna á Höfn að fundargátt sveitarfélagsins. Almannavarnarnefnd leggur áherslu á að upplýsingum verði komið á framfæri á vef sveitarfélagsins og í Eystrahorni.

2.
Önnur mál
Friðrik Jónas vakti máls á hvort væri á hreinu hvar aðgerðarstjórn fyrir svæðið væri staðsett og hverjir ættu að skipa hana. Það er skilningur almannavararnefndar í Austur-Skaftafellssýslu að aðgerðarstjórn er staðsett í sýslunni og skipuð samkvæmt skipuriti.