Fara í efni

Almannavarnanefnd

50. fundur
23. október 2014 kl. 12:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Einar Sigurjónsson varamaður
Matthildur Ásmundardóttir aðalmaður
Baldvin Svafar Guðlaugsson varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Jarðhræringar Bárðarbungu
Málsnúmer 201408070
Umræður sköpuðust um SO2 mengun sem legið hefur yfir Hornafirði undanfarna daga. Handmælir sem staðsettur er á Höfn virðist vera vanstilltu allavega er hann ekki að hætta að pípa þó mengunarmælir sýni enga mengun. Kom fram að von er á fulltrúa Umhverfisstofnunar til að stilla mælinn í næstu viku. Einhver misbrestur á SMS boðunum síðasta þriðjudagsmorgun og engin SMS boð á miðvikudag þó hærri gildi hafi mælst þann morgun. Rætt um aðgengi að gildum handmælis, kom fram að hægt er að sjá þau á vef veðurstofunnar. Nefndin sammála um að setja link á síðuna á heimasíðu sveitarfélagsins. Mikilvægt aðkoma upplýsingum um þennan link til forstöðumanna stofnanna sveitarfélagsins sem myndu koma þessu á framfæri við starfsfólk og foreldra t.d. gegnum Mentor. Umræða skapaðist um kostnað og afgreiðslufrest á sítengdum mæli starfsmanni falið að afla upplýsinga um málið og koma upplýsingum til bæjarráðs. Ljóst er að nauðsynlegt er að vera með fleiri mæla í sveitarfélaginu vegna landfræðilegra aðstæðna.