Fara í efni

Almannavarnanefnd

55. fundur
27. nóvember 2017 kl. 18:00 - 23:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir aðalmaður
Elín Freyja Hauksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Öræfajökull : jarðskjálfta og áætlanir
Málsnúmer 201711054
Fundur um ástand í Öræfajökli og gerð viðbragðsáætlunar.
Víðir Reynisson fór yfir vinnu sem búin er að vera í gangi undanfarna daga og vikur. Til stóð að halda þennan fund í síðustu viku en vegna veðurs varð að fresta honum. Síðar í dag verður íbúafundur í Hofgarði þar sem farið verður yfir stöðu mála og drög að viðbragðs- og rýmingaráætlun kynntar. Mikilvægt er að heimamenn komi að gerð rýmingaráætlunar. Rætt um þá vinnu sem framundan er og mikilvægi þess að styrkja viðbragðsaðila sem að verkinu koma. Rætt um möguleika á að útbúa viðbragðsbox fyrir hvern bæ sem í væri nauðsynlegur búnaður fyrir heimilisfólk. Í boxinu væru t.d. gleraugu, grímur, límband, leiðbeiningar og fleira sem æskilegt væri að yrði handhægt ef til rýmingar kæmi.
Ályktun:
Almannavarnarnefnd Austur- Skaftafellssýslu leggur þunga áherslu á að byggt verði upp öflugt mæla- og öryggisnet umhverfis Öræfajökul. Ljóst er að viðbragðstími ef kemur til eldsumbrota á svæðinu er mjög skammur. Áhættumat Veðurstofu Íslands segir að aðeins 20 mínútur gefist frá því eldgos kemur upp á yfirborð jökulsins þar til jökulhlaup er komið niður á þjóðveg nr.1. Mikilvægt er að vakta Öræfajökul með allri þeirri tækni sem þekkt er. Tryggja þarf stofnunum sem að slíkri vinnu koma fjármagn til að halda úti öllum tiltækum tækjum svo mögulegt sé að auka tímann sem gefst til rýmingar.
Viðvera lögreglu í Öræfasveit er mikilvæg til að tryggja hraða og örugga rýmingu af svæðinu. Einnig er sýnileg löggæsla mikilvæg fyrir íbúa á óvissustigi og eykur öryggistilfinningu. Lögreglan hefur haldið úti löggæslu á svæðinu frá því óvissustigi vegna jarðhræringa var lýst yfir. Vegalengdir í næstu lögreglustöð eru um 100 km og því ljóst að viðbragð frá þeim stöðum tekur of langan tíma.
Öræfasveit er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins. Það er því mjög mikilvægt að tryggja að allt sé gert til að kortleggja og fylgjast með þeim hræringum sem eru í gangi. Slíkt er nauðsynlegt til að hægt sé að undirbúa aðgerðir og bregðast við ef til náttúruhamfara kemur.