Fara í efni

Almannavarnanefnd

69. fundur
3. desember 2024 kl. 16:00 - 17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Grétar Már Þorkelsson aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Elín Freyja Hauksdóttir fulltrúi heilsugæslu
Eyrún Axelsdóttir
Grímur Hergeirsson lögreglustjóri
Björn Ingi Jónsson áheyrnarfulltrúi
Einar Sigurjónsson lögreglustjóri
Jens Olsen varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stjórnskipulag almannavarna á Suðurlandi
Málsnúmer 202411106
Unnið hefur verið að því að endurskoða stjórnskipulag almannavarna í umdæminu hér á Suðurlandi. Stjórnskipulagsáætlun fyrir aðgerðarstjórn á Suðurlandi segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Áætlunin er unnin af lögreglustjóranum á Suðurlandi, í samstarfi við almannavarnarsviði ríkislögreglustjóra, almannavarnanefndir Árnessýslu, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og Hornafjarðar. Stjórnskipulag aðgerðarstjórnar á Suðurlandi nær yfir allar almannavarnaraðgerðir og aðrar aðgerðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.
Björn Ingi Jónsson sviðsstjóri almannavarnasviðs Lögreglunnar á Suðurlandi fór yfir drög að endurskoðuðu stjórnskipulagi.

Almannavarnanefnd þakkar góða yfirferð og lýsir mikilli ánægju með drögin að endurskoðuðu stjórnskipulagi. Áætlunin er bæði skýrari og markvissari en sú sem er í gildi í dag.

Almannavarnanefnd samþykkir framlögð drög samhljóða.
2.
Hópslysaáætlun
Málsnúmer 202411107
Drög að nýrri viðbragðsáætlunar vegna hópslysa lögð fram. Áætlunin er byggð á stjórnskipulagi aðgerðarstjórnar á Suðurlandi og styðst við lög sem þar eru tilgreind. Hún er unnin af lögreglustjóranum á Suðurlandi og almannavarnanefndum í umdæminu. Lögreglustjórinn á Suðurlandi, í samvinnu við almannavarnanefndir í umdæminu, ber ábyrgð á virkni áætlunarinnar og þessir aðilar vinna saman að uppfærslum og lagfæringum á henni en ritstjórn og ábyrgð á henni á hendi lögreglustjórans á Suðurlandi.
Björn Ingi Jónsson sviðsstjóri almannavarnasviðs Lögreglunnar á Suðurlandi fór yfir drög að endurskoðaðri viðbragðsáætlun.

Almannavarnanefnd þakkar kynninguna og lýsir ánægju með einfaldari og skýrari nálgun.

Almannavarnanefnd samþykkir framlögð drög samhljóða.
3.
Samfélagsleg áföll - Langtímaviðbrögð sveitarfélagsins
Málsnúmer 201709438
Viðbragðsáætlun um Samfélagsleg áföll og Langtímaviðbrögð Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram.
Almannavarnanefnd felur sviðsstjóra almannavarna hjá Lögreglustjóranum á Suðurlandi og bæjarstjóra að stofna stýrihóp um endurskoðun á áætlun um langtímaviðbrögð sveitarfélagsins við samfélagslegum áföllum.

Samþykkt samhljóða.
4.
Öryggisinnviðir í Hornafirði
Málsnúmer 202411108
Innviðir sem tengjast öryggi íbúa og ferðamanna í Hornafirði eru mjög þandir og álag á viðbragðsaðila er óásættanlega mikið.Í dag eru viðmið varðandi heilbrigðisþjónustu og öryggisviðbragð í sveitarfélögum reiknuð miðað við höfðatölu íbúa. Öllum er ljóst að sú aðferð er úrelt og engan veginn til þess fallinn að mæta því álagi sem er í Hornafirði vegna fjölda ferðamanna.Það er ljóst að það er engin ein töfralausn við okkar áskorun um aukna löggæslu, betra neyðarviðbragð, viðveru heilsugæslu á svæðinu og svo framvegis. Í Öræfum er björgunarsveit og slökkvilið. Oftar en ekki eru það síðan sömu aðilar sem eru í báðum þessum hlutverkum og álagið á þennan hóp er ekki líðandi og lykilaðilar hafa þegar dregið sig út úr starfinu sökum álags. Við þessu þarf að bregðast tafarlaust.Aðgangur að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð skiptir sköpum fyrir velferð íbúa. Mikil fólksfjölgun hefur verið í Öræfum og Suðursveit sem ekki sér fyrir endann á en íbúafjöldi þar í dag er um 500. Mun fleiri ferðamenn gista svo á hótelum og gistiheimilum á svæðinu meira en 300 daga á ári. Í Öræfum og Suðursveit er enga heilbrigðisþjónustu að fá.
Almannavarnanefnd Hornafjarðar skorar á heilbrigðisyfirvöld að koma upp heilsugæsluseli í Öræfum. Þar gæti verið viðvera hjúkrunarfræðings og sjúkraflutningamanns. Þá gæti læknir haft viðveru þar reglulega.

Finna þyrfti hentugt húsnæði fyrir starfsemina sem er vel staðsett með góðu aðgengi en slíkt er skilyrði fyrir þjónustunni og mjög ólíklegt að slíkt sé fyrir hendi á svæðinu. Þá þarf að tryggja fjármagn til selsins en slíkt er væntanlega ekki að finna í núverandi fjármögnunarlíkani HSU.

Heilsugæslusel sem sinnir takmarkaðri þjónustu má finna víða um land og er starfseminni stýrt af heilbrigðisstofnunum á viðkomandi þjónustusvæði.

Samfara auknum íbúafjölda, stórauknum fjölda ferðamanna og áherslum í samfélaginu á aðgengi og fyrirbyggjandi þjónustu í heilbrigðiskerfinu, er morgunljóst að mikil fjarlægð aðila í heilbrigðisþjónustu er eitthvað sem við verðum að bregðast við strax.

Samþykkt samhljóða.
5.
Svínafellsheiði - útgáfa hættumats
Málsnúmer 202412009
Hættumat fyrir svæðið neðan Svínafellsjökuls vegna berghlaups úr Svínafellsheiði.Greinargerð með drögum að hættumatskorti lagt fram.
Sigrún Karlsdóttir og Magni Hreinn Jónsson frá Veðurstofunni komu á fundinn og fóru yfir stöðu málsins.
Skýrslan, hættumatið, verður fullunnið í byrjun næsta árs. Kynningarfundir verða haldnir með íbúum í Öræfum áður en skýrslan verður gefin út.

Bæjarstjóra falið að hafa samband við Ofanflóðasjóð og kanna möguleikann á aðkomu sjóðsins að mögulegum vörnum, leiðigörðum eða öðrum vörnum.

Almannavarnarnefnd þakkar góða kynningu og yfirferð.