Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

30. fundur
26. ágúst 2021 kl. 17:00 - 19:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202002099
Staða á atvinnumarkaði 20.08.21 eftir póstnúmerum.780: 15781: 8785: 5Alls eru 28 manns skráðir atvinnulausir í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Starfsstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 202010085
Starfsstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar lögð fram til samþykkis.
Starfsstefna Menningarmiðstöðvarinnar samþykkt.
3.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Málsnúmer 202011112
Anne Bruun Hansen hefur verið fengin að vinna að verkefninu. Hún mun stærðsetja og magntaka verkið.
Starfsmanni falið að vinna áfram að verkefninu.
4.
Kvísker
Málsnúmer 202108060
Stefnt er að því að Menningarmiðstöðin hefji skráningu aðfanga sem finna má á Kvískerjum. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
6.
Hönnun: Mikligarður 2020 -2021
Málsnúmer 202003108
Kjartan Árnason arkitekt var fenginn til að vinna grófhönnun á Miklagarði svo hægt sé að leggja drög að framkvæmdum í haust. Hugmyndir sem hann kynnti eru í samræmi ákvarðanir atvinnu- og menningarmálanefndar um að helmingur hússins verði safn á meðan hinn hluti húsnæðisins verði nýttur á annan hátt.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
7.
Helsingjar í Austur - Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202005078
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3029Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál nr. 160/2021 - Breyting á reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum og er umsagnarfrestur til og með 31.08.2021.Umsagnir verða birtar í gáttinni jafnóðum og þær berast. Skv. þessum tillögum er lagt til að breyta veiðitímabilinu á helsingjum til 10. Sept frá 25. sept. eins og það er núna.
Atvinnu og menningarmálanefnd leggur til að veiðitímabil helsingja verði samræmt veiðitímabili á öðrum landsvæðum og verði frá 1. september til 15. mars.