Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

33. fundur
24. nóvember 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Málsnúmer 202105040
Nefndin lýsir yfir stuðningi við áform Sláturfélags Austur - Skaftafellssýslu um byggingu þjónustusláturhúss og matarsmiðju. Vísar nefndin til bæjarráðs að óska eftir því við SASS að verkefnið verð gert að áhersluverkefni.
2.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að efna til hugmyndaleitar um skipulag og hönnun fyrir Leiðarhöfðann á Höfn. Samkeppnin er haldin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA. Auglýst var eftir áhugasömum teymum í forvali, og sóttu níu teymi um sem öll uppfylltu þátttökuskilyrði. Voru í framhaldinu dregin út fimm teymi sem munu vinna sínar tillögur samkvæmt samkeppnislýsingu. Hugmyndaleitin er liður í að styrkja Höfn sem ferðamannastað og búsetukost, með því að bjóða upp á einstakan áfangastað sem byggir á sérstöðu svæðisins.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar öllum teymum í forvali sýndan áhuga.
3.
Framkvæmd göngu og hjólastígur Svínafell - Skaftafell
Málsnúmer 202111032
Bæjarráð ákvað á 1014. fundi sínum þann 16. nóvember síðastliðnum að ganga til samninga við Jökulfell ehf. vegna lagningar á göngu- og hjólastíg á milli Skaftafells og Svínafells í Öræfum. Verkefnið er fjármagnað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
4.
Afgreiðsla Atvinnu- og rannsóknasjóðs árið 2022
Málsnúmer 202111065
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi leggur fram minnisblað og auglýsingu vegna atvinnu- og rannsóknasjóðs 2022.
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir framlagða auglýsingu og tímaáætlun.
5.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Málsnúmer 202101095
Staðan á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi. 780: 21781: 9785: 5
6.
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 202109050
Lagt fram til kynningar.
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Fundargerðir 164.og 165. fundar stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, og 101. og 102. fundar svæðisráðs Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs lagðar fram til kynningar.
8.
Svavarssafn
Málsnúmer 201810036
Svavarssafni barst gjöf frá Svanhvíti Sigurlinnadóttur, 22 málverk eftir Jón Þorleifsson. Þakkar Atvinnu- og menningarmálanefnd Svanhvíti kærlega fyrir gjöfina.
9.
Útilistaverk sveitarfélagsins
Málsnúmer 202102084
Nefndin þakkar upplýsingar og bíður nú niðurstöðu mats forvarðar á ástandi Einhyrningshornsins.