Atvinnu- og menningarmálanefnd
34. fundur
15. desember 2021
kl.
16:00
-
18:00
í Nýheimum
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Umhverfisstefnur ferðaþjónustufyrirtækja.Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.
Laufey Guðmundsdóttir annar eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Glacier Journey, sagði frá umhverfisstefnu fyrirtækisins. Glacier Journey er fyrst ferðaþjónustufyrirtækja á landinu til að uppfylla markmið um sjálfbæra þróun, á grundvelli Heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna, í umhverfisstefnu sinni. Atvinnu og menningarmálanefnd óskar þeim til hamingju með áfangann og hvetur nefndin fleiri fyrirtæki að hefja þessa vegferð.
2.
Afgreiðsla Atvinnu- og rannsóknasjóðs árið 2022
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir reglur og matsblöð atvinnu- og rannsóknasjóðs fyrir atvinnu- og menningarmálanefnd.Einnig var kynnt samantekt um fjárhagsstöðu sjóðsins.
Næsta úthlutun úr sjóðnum er nú í auglýsingu, og er umsóknarfrestur til 11. janúar nk.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér sjóðinn. Má fá nánari upplýsingar hjá Árdísi Ernu atvinnu- og ferðamálafulltrúa í netfanginu ardis@hornafjordur.is
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér sjóðinn. Má fá nánari upplýsingar hjá Árdísi Ernu atvinnu- og ferðamálafulltrúa í netfanginu ardis@hornafjordur.is
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Staða á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi:780: 23781: 5785: 7
4.
Styrkir Menningarmála 2021
Níu umsóknir um menningastyrki bárust nefndinni þetta árið sex rekstrarstyrkir og þrír verkefnastyrkir og hljóðuðu umsóknirnar upp á 3.600.000 kr.
Nefndarmenn þakka innsendar umsóknir og vinnur nú að úrvinnslu þeirra.
5.
Kvísker
Staða verkefnisins kynnt nefndarmönnum.
6.
Mikligarður
Farið yfir stöðu framkvæmda.
7.
Ljósmynd - Otto Tulinius og Valgerður Friðriksdóttir
Nefndinni barst erindi þar sem óskað er eftir því að mynd af hjónunum Otto Tulinius og Valgerði Friðriksdóttur færð úr núverandi húsnæði sveitarfélagsins og varðveitt á veitingahúsinu Otto
Niðurstaða nefndar er að þar sem um opinbera gjöf til sveitarfélagsins er að ræða væri gjöfin best varðveitt í ljósmyndasafni Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu, þar sem allir sem áhuga hafa geta fengið afrit af henni.
8.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.