Atvinnu- og menningarmálanefnd
36. fundur
26. janúar 2022
kl.
16:00
-
18:00
Teams Meeting
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Frumkvöðlahreiður í Hornafirði
Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands, kynnir nýstofnaða aðstöðu fyrir frumkvöðla í Árborg sem kallast Hreiðrið.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar fyrir Ingunni kynninguna. Nefndarmönnum leist vel á hugmyndarfræðina á bakvið Frumkvöðlahreiðið og tekur jákvætt í að skoða sambærilega þjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
2.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Lagt fram til kynningar.
Staða á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi:
780 = 24 einstaklingar á skrá
781 = 9 einstaklingar á skrá
785 = 3 einstaklingar á skrá
Samtals 36 einstaklingar.
780 = 24 einstaklingar á skrá
781 = 9 einstaklingar á skrá
785 = 3 einstaklingar á skrá
Samtals 36 einstaklingar.
3.
Afgreiðsla Atvinnu- og rannsóknasjóðs árið 2022
Umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2022 lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnu- og menningarmálanefnd. Alls bárust 6 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Í ár eru kr. 2.400.000.- til úthlutunar, þar af kr. 1.000.000.- í A hluta sjóðsins og kr. 1.400.000.- í B hluta hans.
Nefndin fór yfir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2022. Úthlutun A-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða. Úthlutun B-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða. Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar. Styrkjum verður úthlutað við hátíðlega athöfn samhliða afhendingu menningarverðlauna og annarra styrkja sveitarfélagsins þann 11. mars nk.
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
5.
Styrkir Menningarmála 2021
Umsóknir í menningarstyrkjasjóð 2022 lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnu- og menningarmálanefnd. Alls bárust 10 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Í ár eru kr. 2.600.000.-
Nefndin fór yfir umsóknir og þakkar þeim sem sóttu um. Ljóst er af fjölda umsókna að mikil gróska er í menningarmálum í sveitarfélaginu. Afhending styrkja fer fram 11. mars nk. og verður það auglýst nánar síðar.
6.
Örnefnaskilti
Örnefnskilin lágu frammi á bókasafni Menningarmiðstöðvarinnar til skoðunar og yfirferðar í desember eru nú tilbúin til prentunar og mun Merking sjá um að verkið. Spjöldin verða sett upp í vor og vonar nefndin að þau verði öllum til gagns og gamans.
Þakkar nefndin starfsfólki Náttúrustofu Suðausturlands og öðrum þeim sem að verkinu komu.
Þakkar nefndin starfsfólki Náttúrustofu Suðausturlands og öðrum þeim sem að verkinu komu.
7.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Lagt fram til kynningar.