Atvinnu- og menningarmálanefnd
37. fundur
23. febrúar 2022
kl.
17:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Kynning á verkefni sem unnið var í Fab Lab
Berglind Steinþórsdóttir kynnti fyrir nefndarmönnum verkefni sem unnið var með nemendum Grunnskóla Hornafjarðar um víkinga þar sem hún sýndi nefndarmönnum hvernig Fab Lab var nýtt í þeirri vinnu. Í kynningunni fór Berglind yfir hvernig endurnýta má efnivið sem til fellur. Þá var rætt um hvernig kynna mætti frekar fyrir íbúum þessa frábæru aðstöðu í Vöruhúsinu.
Nefndin þakkar Berglindi fyrir skemmtilega og fræðandi kynningu.
Nefndin þakkar Berglindi fyrir skemmtilega og fræðandi kynningu.
2.
Humarhátíð 2022
í Eystrahorni 6. tbl. 40 árgangi auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir áhugasömum einstaklingum eða félagasamtökum til að taka við skipulagningu og utanumhald Humarhátíðar í ár og hvetur nefndin áhugasama að hafa samband við forstöðumann Menningarmiðstöðvarinnar Eyrúnu Helgu Ævarsdóttur í síma 4708052 ef áhugi er fyrir hendi.
3.
Menningarverðlaun 2022
Menningarhátíð sveitarfélagsins Hornafjarðar verða haldin hátíðleg 11. mars nk. kl. 17:00. Opið er fyrir tilnefningar til menningarverðlauna og sendast rökstuddar tilnefningar á netfangið eyrunh@hornafjordur.is
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Lagt fram til kynningar.
Staða á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi:
780 eru 30 umsækjendur
781 eru 7 umsækjendur
785 eru 4 umsækjendur
780 eru 30 umsækjendur
781 eru 7 umsækjendur
785 eru 4 umsækjendur
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Fundargerð lögð fram til kynningar.