Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

38. fundur
23. mars 2022 kl. 17:00 - 19:00
Teams Meeting
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Sláturhús - Mjólkurstöðin
Málsnúmer 202203066
Elvar og Hilmar kynntu áform um Hepputorg í húsnæði sem áður hýsti sláturhúsið. Þar er fyrirhugað að leigja út rými fyrir atvinnu- og menningarstarfsemi. Brugghús og veitingastarfsemi er meðal þess sem félagið hyggst reka í húsinu. Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar frumkvæði og metnaði nýrra eigenda.
2.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Árdís kynnir stöðu mála og næstu skref vegna hugmyndaleitar við Leiðarhöfða.
Fyrirhugað er að dómnefnd ljúki störfum sínum nú á næstu dögum, og er áætlað að fulltrúar frá þátttökuteymunum fimm sem tóku þátt kynni sínar tillögur í Nýheimum þann 6. apríl nk. Þá mun vinningsteyminu einnig verða veitt verðlaun við hátíðlega athöfn.
3.
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 202109050
Lagt fram til kynningar.
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Málsnúmer 202201088
Lagt fram til kynningar.
Staða á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi:

780= 29
781= 6
785= 4
6.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Bæjarráð óskar eftir umsögn um umhverfisstefnu sveitarfélagsins frá fastanefndum.
Nefndin lýsti ánægju sinni með að umhverfisstefna skuli vera í ferli.
7.
Svavarssafn
Málsnúmer 201810036
Áætlað er að breyta opnunartíma Svavarssafns. Nú er opnunartími safnsins 09:00 - 12:00 og 12:45 - 15:00 virka daga en við breytingarnar mun safnið verði opið frá 09:00 - 12:00 og 12:45 - 17:00 virka daga. Yfir sumartímann hefur safnið verið opið frá 09:00 - 12:00 og 12:45 - 15:00 virka daga en 13:00 - 17:00 um helgar en með breyttum opnunartíma verður safnið opið frá 09:00 12:00 og 12:45 - 18:00 virka daga og 13:00 - 17:00 um helgar.
8.
Hönnun: Mikligarður 2020 -2021
Málsnúmer 202003108
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð í kjölfar viljayfirlýsingar. Farið var yfir nýjustu tillögur að skipulagi fyrir Miklagarð þar sem gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk, nýrri jöklasýningu ásamt útleigubili.
9.
Börn og foreldrar af erlendum uppruna
Málsnúmer 202202015
Erindi barst fjölmenningarráði þar sem foreldri af erlendum uppruna óskar eftir aðstöðu fyrir foreldra til að koma saman með börnin sín. Nefndin fagnar frumkvæði að erindinu.
Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar leggur til að foreldrar ásamt fjölmenningarfulltrúa og starfsmanni Menningarmiðstöðvarinnar ákveði í sameiningu daga til að hittast á bókasafninu þar sem sérstök áhersla verið lögð á fjölmenningu.