Atvinnu- og menningarmálanefnd
42. fundur
24. ágúst 2022
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson
1. varamaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Hildur Ýr Ómarsdóttir verkefnastjóri í málefnum nýbúa sagði frá málaflokknum. Íbúum af erlendum uppruna hefur fjölgað í sveitarfélaginu á síðustu árum, frá 100 manns árið 2010 í 651 í ágúst 2022. Nú eru 25,8% af íbúum sveitarfélagsins af erlendum uppruna og mikilvægt að sveitarfélagið sinni skyldum sínum við þennan hóp, bæði varðandi upplýsingagjöf og ýmsa þjónustu. Fjölmenningarráð hefur starfað í eitt ár og hefur þegar sannað gildi sitt.
2.
Atvinnu- og ferðamál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022-2026
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi fer yfir helstu verkefni á sviði atvinnu- og ferðamála hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.
Yfirferðin hófst á kynningu Ragnhildar Jónsdóttur verkefnastjóra á áhersluverkefni SASS sem ber heitið "Ferðamennskusamfélagið".
Að því loknu fór Árdís yfir helstu verkefni atvinnu- og ferðamálafulltrúa, og setti þau í samhengi við málefnasamning núverandi meirihluta. Umræða skapaðist um áherslur og forgangsröðun verkefna á sviði atvinnu- og ferðamála í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Að því loknu fór Árdís yfir helstu verkefni atvinnu- og ferðamálafulltrúa, og setti þau í samhengi við málefnasamning núverandi meirihluta. Umræða skapaðist um áherslur og forgangsröðun verkefna á sviði atvinnu- og ferðamála í Sveitarfélaginu Hornafirði.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Alls eru nú 15 aðilar skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði sem er minnsti fjöldi frá því Covid faraldurinn náði til okkar snemma árs 2020. Til samanburðar voru 48 manns í atvinnuleit í júlí 2021 og hátt 300 manns fyrstu fimm mánuði ársins 2021. Er nú í dag um að ræða um 1% atvinnuleysi miðað við áætlað vinnuafl sem telur alls 1473 manns. Alls eru 9 konur í atvinnuleit og sex karlar, aldursbilið er dreift frá 25-69 ára og einnig mikil breidd í starfsgreinum og menntun atvinnuleitenda. Ellefu af fimmtán manns búa við langtíma atvinnuleysi, sem miðast við 6 mánuði eða lengra tímabil. Er þetta heldur hærra hlutfall en undanfarin ár.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að atvinnuástand hefur náð jafnvægi í sveitarfélaginu eftir strembin ár vegna heimsfaraldurs.
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að starfsstöð framkvæmdarstjóra Vatnajökulsþjóðgarðs verði í Sveitarfélaginu Hornafirði.
5.
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
6.
Kvísker
Farið var yfir stöðu á verkefni sem Menningarmiðstöðin vann að um verndun menningarminja sem finna mátti á Kvískerjum.
Starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar ásamt Gísla Sverri Árnasyni hefur nú lokið störfum á Kvískerjum þar sem unnið var að því að flokka menningarverðmæti sem systkinin að Kvískerjum höfðu átt. Munum og skjölum hefur nú verið pakkað og þau menningarverðmæti sem þurftu sérstaka vernd vegna sögulegs gildis þeirra verið flutt í varðveisluhúsnæði Menningarmiðstöðvarinnar.
Atvinnu og menningarmálanefnd þakkar landeigendum, Gísla Sverri og öllum sem komu að verkefninu fyrir vel unnin störf.
Atvinnu og menningarmálanefnd þakkar landeigendum, Gísla Sverri og öllum sem komu að verkefninu fyrir vel unnin störf.
7.
Skaftfellingur
Unnið er að uppsetningu Skaftfellings í prentvæna útgáfu, stefnt er að senda hann í prentun fyrir lok september og að útgáfu í október.
8.
Menningarmiðstöð
Kynningarferð um Menningarmiðstöðina þar sem héraðskjalasafnið var skoðað.
Starfsmaður nefndar fór með nefndarmenn í skoðunarferð um húsnæði Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum þar sem farið var yfir skráningar menningarminja og framtíð varðveislu þeirra. Aðstaða héraðsskjalasafnsins skoðuð og farið yfir skráningarferli aðfanga safnsins .
9.
Mikligarður
Starfsmaður nefndar fór yfir þær framkvæmdir sem unnar hafa verið í Miklagarði og fyrrum tillögur að safnahúsi í Miklagrði kynntar.