Atvinnu- og menningarmálanefnd
45. fundur
23. nóvember 2022
kl.
16:00
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Bjarni Ólafur Stefánsson
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Svava Júlía Jónsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar ræddi við nefndarmenn um réttindi atvinnuleitenda og fór yfir réttindi atvinnuleitenda utan EES sem koma til vinnu á Íslandi.
Nefndin þakkar Svövu fyrir áhugaverða kynningu á réttindum atvinnuleitenda.
2.
Umræður um menningarmál
Hlynur Pálmason ræðir við nefndarmenn um menningarmál í sveitarfélaginu.
Nefndin þakkar Hlyni Pálmasyni fyrir kynningu og góða yfirferð á hans framtíðarsýn í menningarmálum. Hlynur lagði til að kvikmyndagerðalist væri gerð að sérstöðu sveitarfélagsins, líkt og sviðslistir á Egilsstöðum og myndlist á Seyðisfirði.
3.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2023
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi leggur fram minnisblað og auglýsingu vegna atvinnu- og rannsóknasjóðs 2023.
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir framlagða auglýsingu og tímaáætlun. Atvinnu- og ferðamálafulltrúa var falið að auglýsa styrkinn á heimasíðu sveitarfélagsins og í Eystrahorni. Nefndin hvetur áhugasama til að kynna sér sjóðinn og sækja um fyrir þeim verkefnum sem geta fallið undir hann.
4.
Skilti, vörumerki og fleira - Tillögur fyrir SVH
Sveitarfélagið Hornafjörður óskaði eftir tillögum að útliti að skiltum frá VERT markaðsstofu. Skiltin eru m.a. hugsuð sem inngangur inn í sveitarfélagið bæði austan frá og vestan.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar þessum hugmyndum og leggur til að verkefninu verði hrint í framkvæmd.
5.
Sunnanátt - Sóknarfæri í nýsköpun
Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall sem er að fara af stað. Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Suðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Sóknarfæri í nýsköpun til að komast lengra með sín verkefni. Þar fá þátttakendur tækifæri til þess að efla sig og sínar hugmyndir undir handleiðslu reyndra þjálfara og mentora. Kynningarfundur um hraðalinn verður haldinn í netheimum þann 30. nóvember kl. 12-13. Nánari upplýsingar og skráning eru á heimasíðu Háskólafélags Suðurlands, www.hfsu.is.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur frumkvöðla og fyrirtæki í Hornafirði til að sækja um í viðskiptahraðlinum og nýta sér þá stoðþjónustu sem er í boði.
6.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
7.
Mikligarður
Nefndin telur brýnt að taka ákvörðun um framtíð Miklagarðs. Forsendur hafa breyst og óskar nefndin eftir að vinna við framtíðarsýn Miklagarðs verði tekin upp aftur. Einnig þarf að skoða núverandi notkun á húsinu.
Málinu er vísað til bæjarráðs.
Málinu er vísað til bæjarráðs.
8.
Gamlabúð
Leigusamningur Vatnajökulsþjóðgarðs rennur út 1. apríl 2023. Nefndin leggur til að sett verði upp sýning í Gömlubúð á vegum Menningarmiðstöðvarinnar og að fjármagni verði úthlutað til þess í fjárhagsáætlun næsta árs.
9.
Styrkir atvinnu- og menningarmálanefndar 2023
Styrkjasjóður Atvinnu- og menningarmálanefndar er nú opinn fyrir umsóknir í sjóðinn og hvetur nefndin einstaklinga og félagasamtök að senda inn styrkumsókn. Úthlutunarreglur má finna á síðu sveitarfélagsins.
10.
Skaftfellingur
Skaftfellingur er nú komin úr prentun og stefnt er að því að senda hann til áskriftaraðila í byrjun næstu viku og þá er einnig stefnt að því að halda útgáfuteiti í Nýheimum 14. desember. Nefndarmenn þakka höfundum, ritnefnd og öllum þeim sem að útgáfunni komu fyrir vel unnin störf. Skaftfellingur verður til sölu á bókasafninu í byrjun desember.