Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

55. fundur
26. september 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Amylee Vitoria da Silva Trindade Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Nýlega var hafist handa við að uppfæra jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og leitar velferðarnefnd nú eftir umsögn og athugasemdum frá öðrum fastanefndum.
Skúli Ingibergur Þórarinsson kynnti fyrir nefndarmönnum endurnýjaða jafnréttisáætlun sveitarfélagsins. Nefndin telur að áætlunin sé metnaðarfull og þakkar Skúla fyrir kynninguna.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Alls eru 18 á atvinnuleysisskrá.

Póstnr 780: 12
Póstnr 781: 3
Póstnr 785: 3
4.
Gamlabúð
Málsnúmer 202211068
Tillaga Menningarmiðstöðvarinnar að framtíðarsýn Gömlubúðar lögð fram til kynningar.
5.
Menningarstefna 2023
Málsnúmer 202306056
Drög að menningarstefnu sveitarfélagsins lögð fram til kynningar.
Sveitarfélagið Hornafjörður er sett saman úr mörgum ólíkum menningarþáttum og er markmið stefnunnar að leiða öflugt menningarstarf í samstarfi við íbúa sveitarfélagsins. Stefnan er byggð á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
6.
Umsókn um styrk
Málsnúmer 202309077
Umsækjanda er beint á þann farveg sem styrkumsóknir nefndarinnar fara í.
Starfsmanni falið að gefa umsækjanda nánari upplýsingar.
7.
Úthlutunarreglur atvinnu og rannsóknasjóðs
Málsnúmer 201911079
Nefndin telur tímabært að skoða framtíð sjóðsins og skorar á bæjarráð að efla hann.
8.
Kaup á listaverkum Svavarssafn
Málsnúmer 202212026
Safnvörður Svavarssafns óskaði eftir að safnið keypti verk af sýningu Almars Atlasonar, nefndin vísar því til bæjarráðs og leggur til að farið verði eftir tillögu safnsvarðar með val á verki.
Nefndin hvetur íbúa og gesti til að sjá sýninguna sem verður opin til 20.10.
9.
Heimsókn í Skinney - Þinganes
Málsnúmer 202309086
Nefndarmenn heimsóttu fiskvinnslu Skinneyjar - Þinganess á Höfn.