Atvinnu- og menningarmálanefnd
58. fundur
20. desember 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Umhverfing
Safnvörður Svavarssafns, Snæbjörn Brynjarsson kynnti myndlistarsýninguna Umhverfing sem haldin verður í sveitarfélaginu sumarið 2024.
Umhverfing er farand-listahátíð sem snýst um að sýna list á stöðum þar sem fáar listasýningar eiga sér stað. Umhverfing hefur áður verið sett upp á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Skagafirði og Fljótsdalshéraði, en listamennirnir sem taka þátt hafa alltaf einhverja tengingu við svæðið. Að þessu sinni fer Umhverfing fram á svæðinu milli Lómagnúps og Eystrahorns, og munu því að öllum líkindum um 40 listamenn sýna verk sín einhvers staðar innan sveitarfélagsins næsta sumar.
2.
Opnunartími Svavarssafns
Lögð var fram endurskoðun á opnunartíma Svavarssafns.
Það er ánægjulegt að heyra að lengdur opnunartími hefur skilað sér í meiri aðsókn að safninu.
Nefndin leggur til að haldið verði áfram með lengdan opnunartíma, nema yfir mesta skammdegið. Framvegis verður því opnunartími Svavarssafns:
1. jan. - 28. feb: 09:00 - 15:00 á virkum dögum, lokað um helgar.
1.mars - 14. maí: 09:00 - 17:00 virka daga, lokað um helgar
15. maí - 15. sept: 09:00 - 17:00 virka daga, 13:00 - 17:00 á laugardögum, lokað á sunnudögum
16. sept. - 31. okt: 09:00 - 17:00 virka daga, lokað um helgar
1. nóv. - 31. des: 09:00 - 15:00 á virkum dögum, lokað um helgar.
Sé áhugi á því að komast á safnið utan ofangreindra opnunartíma er alltaf hægt að senda tölvupóst á netfang MMH og starfsfólk veitir liðsinni ef mögulegt er.

3.
Mannréttindastefna
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum.
Atvinnu- og menningarmálanefnd gerir ekki athugasemd við mannréttindastefnuna og fagnar því að hún sé komin fram.
4.
Málstefna
Bæjarráð vísaði málstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Atvinnu- og menningarmálanefnd gerir ekki athugasemd við málstefnuna og fagnar því að unnið sé að henni.
5.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Stýrihópur um Barnvænt sveitarfélag vísar aðgerðaráætluninni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Atvinnu- og menningarmálanefnd gerir ekki athugasemd við aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags og fagnar því að unnið sé að aðgerðaáætluninni.
6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Lagt fram til kynningar.
Alls á skrá í póstnúmerum 780, 781 og 785 eru 45 einstaklingar.
Sundurliðað er svo:
Póstnr. 780: 19
Póstnr. 781: 20
Póstnr. 785: 6
Sundurliðað er svo:
Póstnr. 780: 19
Póstnr. 781: 20
Póstnr. 785: 6
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
8.
Menningarstyrkir 2024
14 umsóknir um menningarstyrki bárust nefndinni þetta árið sjö rekstrarstyrkir og sjö verkefnastyrkir og hljóðuðu umsóknirnar upp á 10.650.000 kr.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar innsendar umsóknir, ljóst er að mikil gróska er í menningarmálum í sveitarfélaginu og bera umsóknir þess merki.
Áfram er unnið að málinu.
Sigríður vék af fundi undir þessum lið.
Áfram er unnið að málinu.
Sigríður vék af fundi undir þessum lið.