Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

61. fundur
28. febrúar 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Amylee Vitoria da Silva Trindade Fulltrúi ungmennaráðs
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Samgönguhátíð
Málsnúmer 202402142
Í júli verða 50 ár frá vígslu brúar yfir Skeiðará og þar með opnun hringvegarins.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að haldið verði upp á tímamótin og vísar málinu til bæjarráðs.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Heildartölur á þessu svæði er 37 og skiptast svo:

780: 20
781: 12
785: 5

4.
Menningarstyrkir 2024
Málsnúmer 202312022
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir einróma þær úthlutanir sem nefndin leggur til.Atvinnu- og menningarmálanefnd fór yfir tillögur að vinningshafa menningarverðlauna ársins 2024 fyrir árið 2023. Verðlaunin veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum, sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Tilnefningar ársins komu frá íbúum Hornafjarðar og nefndarmönnum og vorum nefndarmenn öll sammála um ágæti þeirra. Tilnefning segir þeim sem eru tilnefnd að þau hafa áhrif á samfélagið með verkefnum sínum. Áhrifin eru augljós og efla þau menninguna okkar og samfélagið í heild sinni.Formleg afhending styrkja og menningarverðlauna verður á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem verður haldin í Nýheimum 8. mars og er öllum opin.
5.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2024
Málsnúmer 202311125
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir einróma þær úthlutanir sem nefndin leggur til.Formleg afhending styrkja verður á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem verður haldin í Nýheimum 8. mars og er öllum opin.
6.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2023
Málsnúmer 202310090
Úthlutunarreglur menningarstyrkja yfirfarnar af atvinnu- og menningarmálanefnd.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.