Atvinnu- og menningarmálanefnd
64. fundur
22. maí 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Framtíð Miklagarðs
Sigurjón Andrésson fór yfir málefni Miklagarðs.Minnisblað bæjarstjóra um framtíð Miklagarðs lagt fram.
Árið 2021 var unnin kostnaðaráætlun fyrir miklar endurbætur á húsinu þar sem átti að laga það og umhverfi þess. Sú kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 320 milljónir króna. Skv. verðlagsreiknivél Hagstofunnar væri sá kostnaður um 400 m.kr á verðlagi dagsins í dag.
Sveitarfélagið Hornafjörður er í miklum innviðafjárfestingum í dag á meðan Mikligarður stendur nánast tómur og húsinu er ekki sýndur sá sómi sem það á skilið. Sökum mikilla framkvæmda sem í gangi eru og eru framundan er erfitt að sjá að endurbygging og lagfæringar á Miklagarði rúmist í áætlunum næstu ára. Þess vegna er betra að finna húsinu nýtt hlutverk og nýja eigendur sem gætu kynnt sínar hugmyndir um uppbyggingu Miklagarðs fyrir bæjaryfirvöldum

2.
Myndavefur hérðasskjalasafnsins
Dagur Snær Guðmundsson kynnti nefndarmönnum fyrir nýjum myndavef héraðsskjalasafnsins. hornafjordur.myndahlada.is
Á vefnum mun myndasafn safnsins, fundargerðabækur og önnur gögn sem almennur aðgangur að upplýsingum falla undir skv. upplýsingalögum og persónuverndarlögum.
Meðal hlutverka skjalasafns skv. 13. gr. laga er m.a. að taka við og heimta inn skjöl og varðveita þau og önnur gögn frá afhendingarskyldum aðilum sem hafa að geyma upplýsingar sem þýðingu hafa fyrir stjórnsýslu eða hagsmuni og réttindi borgaranna eða hafa sögulegt gildi. Að hafa til reiðu skjöl og önnur gögn safnsins ásamt skrám og upplýsingum um þau fyrir þá sem nota vilja safnið og skapa þeim aðstöðu til þess, þ.m.t. til vísindalegra rannsókna og fræðiiðkana. Með uppsetningu vefsins mun aðgengi að safneign héraðsskjalasafnsins verða auðveldari fyrir þá sem sækja þjónustu til þess.
Nefndin þakkar Degi fyrir kynninguna og fagnar því að vefurinn sé nú kominn upp og aðgengi að gögnum safnsins sé orðið auðveldara.
Starfsmaður héraðsskjalasafninu mun halda áfram að skanna inn efni til að setja á síðuna.

3.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut 90 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar innviða við Múlagljúfur.
Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir ánægju sinni með styrkinn og uppbyggingu við Múlagljúfur.
4.
Skrifstofa í Miðbæ - störf án staðsetningar
Sveitarfélagið Hornafjörður býður upp á skrifstofuaðstöðu fyrir aðila sem starfa án staðsetningar í Miðbæ á Höfn. Á sama stað er skrifstofuaðstaða fyrir frumkvöðla sem kallast "Hreiðrið".
5.
Ársskýrsla MMH 2023
Lagt fram til kynningar.
Sjá má á ársskýrslu Menningarmiðstöðvarinnar fyrir árið 2023 að mikið og blómlegt starf er unnið á vegum stofnunarinnar í menningarmálum sveitarfélagsins. Þar standa upp úr fjölmargir viðburðir sem voru á dagskrá á árinu, skrásetning menningarminja og miklar endurbætur á Álaleiru þar sem upp voru settar hillur og gengið frá munum.
Nefndarmenn þakka starfsfólki vel unna ársskýrslu og hvetur fólk til að kynna sér hana.
Nefndarmenn þakka starfsfólki vel unna ársskýrslu og hvetur fólk til að kynna sér hana.
6.
Landskerfi bókasafna hf.
Lagt fram til kynningar.
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
8.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Lagt fram til kynningar.
Tölur atvinnuleitenda:
780 = 17
781 = 10
785 = 3
780 = 17
781 = 10
785 = 3
9.
Álaleira varðveisluhús
Vegna fyrirhugaðra framkvæmda í ráðhúsinu mun Svavarssafn missa hluta af geymsluplássi sínu í húsinu. Þar af leiðandi mun safnið þurfa aðstöðu til að varðveita listaverkin til frambúðar á öðrum stað sem uppfyllir staðla Safnaráðs um varðveislu málverka sem finna má í „Handbók um varðveislu safnkosts"(seinna bindi) kafla 3.
Unnið hefur verið mikið verk í uppbyggingu á varðveisluhúsnæði fyrir söfn Menningarmiðstöðvarinnar í Álaleiru sl. ár. Þá voru settar upp hillur í hluta hússins og í þær voru settir munir sem áður stóðu til sýnis í Skreiðarskemmu ásamt aðföngum frá Kvískerjum. Við frágang muna skiptir skráning þeirra höfuðmáli og að frágangur þeirra sé skipulagður og vandaður.
Þá hafa starfsmenn stofnunarinnar unnið í að koma viðkvæmustu aðföngum byggðasafnsins fyrir, en ljóst er að mikið verk er fyrir höndum og tilfinnanleg vöntun á geymsluaðstöðu fyrir önnur aðföng safna Menningarmiðstöðvarinnar.
Verið er að vinna að kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdir í varðveisluhúsnæðinu svo að rýmið nýtist sem best og óskað er eftir fjármagni í verkefnið.

10.
Barnastarf 2024
Lagt fram til kynningar.
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá verður í barnastarfi sumarsins og hvetur nefndin foreldra til að kynna sér dagskránna.
11.
Gamlabúð
Atvinnu og menningarmálanefnd vill sjá líf í húsinu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
12.
Samgönguhátíð
Unnið er að samgönguhátíð vegna opnunar Skeiðarárbrúar 14. júlí 1974.
Samgönguhátíðin er samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar. Haldið verður upp á afmæli Skeiðarárbrúar og hringvegarins þann 30. ágúst n.k.