Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

65. fundur
26. júní 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Málsnúmer 202310022
Sveitarfélagið Hornafjörður sótti um tvö styrki í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða síðasta haust, annarsvegar til innviðauppbyggingar við Múlagljúfur og hinsvegar vegna framkvæmda vegna nýs deiliskipulags við Leiðarhöfða. Um er að ræða samkeppnissjóð og bárust að þessu sinni 125 umsóknir í sjóðinn fyrir verkefni að upphæð kr. 2,9 milljarða. Alls voru kr. 538.700.000.- til úthlutunar og hlaut sveitarfélagið hæsta mögulega styrk, kr. 90.000.000.- vegna innviðauppbyggingar við Múlagljúfur.
Unnið er að útboðsgögnum vegna framkvæmda við Múlagljúfur og væntingar eru um að framkvæmdir geti hafist í haust. Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til sótt verði um fjármagn til uppbygginga á áningastöðum við Múlagljúfur nú í haust, sem og vegna framkvæmda við Leiðarhöfða.
2.
Viðburðadagatal
Málsnúmer 202406083
Nú þegar Eystrahorn er ekki starfandi eru viðburðir í sveitarfélaginu alla jafna auglýstir á samfélagsmiðlum en það eru ekki allir á þeim miðlum. Rætt var um leiðir til að koma til móts við þá sem ekki eru á samfélagsmiðlum og þann kost að setja upp viðburðadagatal á heimasíðu sveitarfélagsins.
Hugrún Harpa Reynisdóttir ræddi við nefndarmenn um viðburðadagatal Nýheima Þekkingarseturs.

Nefndarmenn leggja til að sett verið upp viðburðadagatal á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar gefst einstaklingum og félagasamtökum möguleiki á að senda inn upplýsingar um viðburði sem eru á dagskrá hverju sinni auk þess sem hægt væri að samtengja það við önnur viðburðadagatöl.
3.
Skilti, vörumerki og fleira - Tillögur fyrir SVH
Málsnúmer 202211067
Unnið er að hönnun og vinnslu á skilti sem ætlunin er að setja upp við innkomuna í sveitarfélagið beggja vegna þess.
Áfram verður unnið að málinu.
4.
Markaðsstofa Suðurlands - helstu verkefni 2024
Málsnúmer 202406092
Markaðsstofa Suðurlands og Sveitarfélagið Hornafjörður endurnýjuðu samstarfssamning sinn um síðustu áramót til næstu þriggja ára. Á meðal verkefna markaðsstofunnar er að vinna að markaðssetningu Suðurlands í heild sem áfangastaðar og einstakra svæða innan þess, að samræma ímynd og ásýnd áfangastaðarins sem og koma henni á framfæri á hinum ýmsu miðlum, á ferðasýningum, FAM ferðum og við blaðamenn/áhrifavalda. Slík samhæfing gerir markaðssókn fyrir svæðið markvissari og stuðlar að betri nýtingu fjármuna allra þessara aðila. Einnig leiðir markaðsstofan samstarf og samtal við faghóp sveitarfélaganna um ferðamál á Suðurlandi.
Lagt fram til kynningar.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Málsnúmer 202405050
Lagt fram til kynningar.
Alls eru 31 skráðir í atvinnuleit í sveitarfélaginu:

780: 17

781: 10

785: 4
7.
Álaleira varðveisluhús
Málsnúmer 202405052
Safneign Svavarssafns telur um 650 listaverk.Öll söfn starfa þannig að meirihluti safneignar er í geymslu en þegar sýningaraðstaða er fyrir hendi þá eru valin verk úr safneigninni til að sýna hverju sinni. Nú stendur til að taka hluta af geymsluaðstöðu Svavarssafns í Ráðhúsinu undir aðra notkun, það þarf því að gera geymsluhúsnæði fyrir listaverkin í geymslunni í Álaleiru.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og leggja það fyrir bæjarráð þegar þeirri vinnu lýkur.
8.
Humarhátíð 2024
Málsnúmer 202404087
Á vefslóðinni https://issuu.com/humarhatid má finna dagskrá Humarhátíðar.Dagskráin verður borin út í hús í þéttbýli í vikunni en í henni má sjá veglega dagskrá hátíðarinnar og þá einstaklinga og fyrirtæki sem leggja hátíðinni lið.Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar Humarhátíðarstjórn alla þá vinnu sem lögð hefur verið í skipulagningu og utanumhald hátíðarinnar og fagnar því hve margir taka þátt í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur öll til að taka þátt í hátíðinni og bendir íbúum á að skrá sig sem sjálfboðaliða hafi þeir tök á.
9.
Umhverfing 5
Málsnúmer 202312093
Umhverfing Nr. 5 er stærsta samsýning í sögu Hornafjarðar.
Þátttakendur eru allt frá listafólki búsettu á Hornafirði til alþjóðlega þekktra listamanna á borð við Janet Laurence og Ragnar Kjartansson. Samtals eru þátttakendur fimmtíu og tveir og hafa þeir allir tengingu við Hornafjörð, og verkin afar fjölbreytt. Ákveðnir kjarnar eru áberandi, t.d. eru margir listamenn að sýna í torfbænum Selinu í Skaftafelli, fjórir að sýna á Fagurhólsmýri og þrír á Hala í Suðursveit. Sýnt er í öllum hlutum Hornafjarðar, Öræfum, Suðursveit, Mýrum, Nesjum, Lóni og Höfn og eru mörg listaverk sjáanleg utandyra. Þar á meðal má nefna styttuna á ráðhústorginu eftir Guðrúnu Benediktu Elíasdóttur og kríurnar hennar Lísu Þorsteinsdóttur í fjöruborðinu við Berjaya hótelið, en ekki bara þar, heldur eru líka skúlptúrar á Hrafnavöllum í Lóni, við útjaðar Hoffellsjökuls og fleiri stöðum.

Verkefnið er styrkt um tvær milljónir af Safnaráði, en auk þess hefur myndlistarsjóður og uppbyggingarsjóður Suðurlands lagt til fjármagn. Listamenn hafa ekki fengið greitt fyrir vinnu sína, en fjármagnið hefur runnið í ferðakostnað skipuleggjenda, kynningarefni og útgáfu á bókinni Nr.5 Umhverfing, og síðast en ekki síst í það að taka niður gömlu sýninguna í Gömlubúð og setja upp ný verk þar. Í bókinni eru ljósmyndir af öllum verkum, umfjöllun um listafólkið, greinar um hornfirska list og menningu, og kort sem sýna hvernig má finna verkin.

Nærri verkunum verða skilti með upplýsingum um verkin og QR-kóði sem fer með mann inn á google.maps og sýnir manni leiðina að öðrum listaverkum á hátíðinni.

Töluverður fjöldi er af listaverkum á Höfn. Tvö á Hrossabitahagatúni, eitt í sundlauginni, Heppa og Mikligarður eru sýningarrými, auk Skreiðarskemmunar og Nýheima. Gamlabúð og Svavarssafn eru með stærstu sýningarnar og fer opnunin fram í Gömlubúð, sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga og vonandi leiða til þess að íbúar á Hornafirði ákveði að heimsækja aftur.

Verkefnið hefur nú þegar hlotið einhverja athygli í fjölmiðlum í útvarpi og sjónvarpi, en við vonum að þetta muni vekja athygli á hornfirsku listafólki og veita því frekari tækifæri.

Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar listafólkinu sem tekur þátt í sýningunni fyrir framlag sitt til menningarlífisns í sveitarfélaginu og hvetur íbúa og gesti til að skoða verkin og njóta.
10.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Byggingarár Miklagarðs er skráð 1924 í Fasteignaskrá en bygging þess hófst árið 1918 og húsið var að stórum hluta komið í gagnið á vetrarvertíðinni 1920. Húsið telst því friðað skv. ákvæði um aldursfriðun húsa sem byggð voru 1923 eða fyrr, sbr. 29. grein laga um menningarminjar nr. 80/2012. Í því felst að óheimilt er að gera nokkrar breytingar á húsinu nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Veittir hafa verið styrkir úr Húsafriðunarsjóði, til endurbóta á húsinu, samtals kr. 18.650.000.- frá árinu 2000. Síðast var veittur styrkur til hönnunar og rannsóknar á gangi meðfram norðurhlið hússins árið 2022 en hann var ekki nýttur.
Nefndin óskaði eftir upplýsingum frá Minjaverði Austurlands um það hvaða kvaðir væru á Miklagarði og fékk eftirfarandi upplýsingar:
Eigendum er að sjálfsögðu heimilt að gera við hús sín eftir þörfum, en þó án breytinga. Um leið og farið er að eiga við útlit, efnisval eða tæknilegar breytingar á húsunum, þarf að fá leyfi Minjastofnunar. Að því sögðu þá eru fjölmörg dæmi um að Minjastofnun heimili einhvers konar breytingar á friðuðum húsum, enda er það ein meginforsenda þess að hús séu vel varðveitt, að þau séu notuð. Breytingarnar þurfa að taka tillit til hússins og við hönnun þeirra þarf að gæta þess að rýra sem minnst varðveislugildi þess. Gera skal grein fyrir tillögum að breytingum á aðaluppdráttum og leggja sömu gögn fyrir Minjastofnun og byggingarfulltrúa.

Nefndin heimsótti listamenn sem nú hafa vinnustofur í Miklagarði og þar kom fram að: Í gegnum árin hefur Mikligarður gegnt mikilvægu hlutverki fyrir einyrkja, listamenn og frumkvöðla á svæðinu. Mikligarður hefur verið gróðurhús hugmynda sem þar hafa haft tækifæri til að raungerast. Þá hafa orðið til hlutir eins og græðandi krem, vasar úr sandi, kvikmyndir, listasýningar og fleira. Engin önnur sambærileg aðstaða er til staðar í sveitarfélaginu.

Nefndin þakkar listafólkinu fyrir móttökurnar og skoðunarferðina. Starfsemin í húsinu er blómleg en aðstaðan er ekki boðleg.