Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

68. fundur
23. október 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Innsent erindi - Eva Bjarnadóttir
Málsnúmer 202409075
Eva kynnti nefndarmönnum hugmyndir sínar að nýju starfshlutfalli innan Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Undanfarin ár hefur hún staðið fyrir menningarviðburðum í Öræfum, einkum í gamla sláturhúsinu á Fagurhólsmýri. Starfsemin hefur verið fjármögnuð að mestu leyti í gegnum styrki frá SASS, en það hefur reynst erfitt þar sem ekki er hægt að treysta á stöðuga styrkveitingu, hvorki til framkvæmda né eigin launa. Eva lagði því til að stofnað yrði 50% starfshlutfall hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar til að tryggja áframhaldandi starfsemi á Fagurhólsmýri og styrkja hana til framtíðar.Markmið hennar er að byggja upp menningarstarf sem tengir saman fortíð og nútímalistir, með áherslu á tengsl milli Öræfa og Hafnar. Hún vill efla áhuga á samtímalistum og menningu með því að skapa vettvang fyrir listviðburði og sýningar, sérstaklega þar sem ferðamenn keyra um Öræfin áður en þeir heimsækja Höfn. Eva lagði einnig til að Fagurhólsmýri yrði miðstöð fyrir menningarsögu svæðisins, með áherslu á verk Svavars Guðnasonar og Guðjóns R. Sigurðssonar.
Málinu frestað til næsta fundar þegar nýr forstöðumaður hefur hafið störf hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
2.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Málsnúmer 202405050
Í þessum póstnúmerum eru 33 skráðir með samþykkta umsókn og eru í þjónustu VMST á Suðurlandi:780: 18781: 11785: 4Einnig má nefna að nýjar umsóknir (eru ekki inn í tölum hér að ofan og ekki komnar með samþykki) eru 22 sem skiptast svo:780: 5781: 14785: 3Afgreiðsla nýrra umsókna tekur 4-6 vikur frá umsóknardegi
Lagt fram til kynningar.
4.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Ráðning nýs forstöðumanns var kynnt fyrir nefndarmönnum. Umsóknarferli vegna ráðningar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er lokið, og samkvæmt 52. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar skal haft samráð við viðkomandi fagnefnd þegar forstöðumenn stofnana eru ráðnir.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar ráðningu nýs forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og óskar henni velfarnaðar í starfi. Gerð verður grein fyrir ráðningu síðar í vikunni. Um leið er fráfarandi starfsmönnum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, þeim Eyrúnu Helgu Ævarsdóttur forstöðumanni og Árdísi Ernu Halldórsdóttur atvinnu- og ferðamálafulltrúa þökkuð góð störf.