Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

69. fundur
27. nóvember 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
2.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Málsnúmer 202405050
Lagt fram til kynningar.
Í þessum póstnúmerum eru 66 skráðir með samþykkta umsókn og eru í þjónustu VMST á Suðurlandi:

780: 24
781: 33
785: 9

Nýjar umsóknir sem bíða úrlausna eru 22 sem skiptast svo:

780: 5
781: 9
785: 2


Lagt fram til kynningar.
3.
Innsent erindi - Eva Bjarnadóttir
Málsnúmer 202409075
Erindi Evu Bjarnadóttur tekið fyrir með nýráðnum forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Sigrún Sigurgeirsdóttir vék af fundi á þessum lið og Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók við fundarstjórn.
Nefndin þakkar innsent erindi.
Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu.
4.
Aðventuhátíð 2024
Málsnúmer 202411067
Aðventuhátíð sveitarfélagsins og 90 ára afmæli ungmennafélagsins Sindra verða haldin hátíðleg í sameiningu þann 1. desember n.k. Dagskrá:12:00-13:15 Íþróttafjör í íþróttahúsinu í boði deilda Sindra13:00-16:00 Hafnarhittingsstemning í Heppuskóla, jólamarkaður, jólaföndur, kaffihús, harmonikkuleikur, jólagestur og deildir Sindra kynna fjölbreytt starf sitt. 14:00-15:30  Körfuboltaleikur 11. flokks í íþróttahúsinu16:00-17:00 Afmælisdagskrá UMF Sindra í íþróttahúsinu17:00 Tendrun jólatrés sveitarfélagsins á miðsvæði.Öll velkomin og hvött til að mæta.
Nefndin hvetur ykkur öll til að mæta á Aðventuhátíð sveitarfélagsins og 90 ára afmæli ungmennafélagsins Sindra.
5.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Forstöðumaður kynnti starf menningarmiðstöðvarinnar. Nýjir kjarasamningar með styttingu vinnuvikunnar hafa tekið gildi frá 1. nóvember. Opnunartími í Gömlubúð er nú alla virka daga kl.10-17 til 12. desember en þá fer Gamlabúð í jólafrí.Verið er að skoða útfærslur og áhrif styttingu vinnuvikunnar á afgreiðslu bókasafns og Svavarssafns. Ný sýning í Gömlubúð með eftirprentunum af teikningum Auguste Mayer frá 1836.Mayer var í hópi franskra leiðangursmanna sem sóttu Ísland heim árin 1835-1836. Um 14 myndir allar teiknaðar hér í okkar fallega sveitarfélagi og eru þær skemmtilegur vitnisburður um hvernig land og þjóð kom þeim fyrir sjónir á nítjándu öld. Gamlabúð verður opin í tilefni Jóla-huggulegheita á Hafnarvíkur og Heppu svæðinu sunnudaginn 8. desember. Árlegt Rithöfundakvöld Bókasafns hefur verið fellt niður vegna óviðráðanlegra aðstæðna og sökum anna rithöfunda í desember reyndist ekki unnt að endurskipuleggja viðburðinn. Auglýst var eftir safnverði á Svavarssafn í upphafi mánaðarins og verið er að vinna í ráðningaferlinu, vonast er til að það verði klárað hratt og örugglega.
Nefndin býður nýjan forstöðumann velkominn til starfa og þakkar fyrir góða kynningu.
6.
Menningastyrkir 2025
Málsnúmer 202411084
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna menningastyrkja fyrir árið 2025. Umsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins en umsóknarfrestur er 13. desember.
Nefndin hvetur öll sem eiga erindi til að senda inn umsókn.
7.
Styrkir Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2025
Málsnúmer 202411085
Beðið er eftir frekari upplýsingum um stöðu atvinnu- og rannsóknarsjóðs. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi atvinnu- og menningarmálanefndar.
8.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2024
9.
Úthlutunarreglur atvinnu og rannsóknasjóðs
Málsnúmer 201911079
Lagt fram til kynningar.