Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

72. fundur
22. janúar 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Jóna Benný kynnir nýjan samstarfssamning við Nýheima þekkingarsetur og verkefni atvinnu- og ferðamála í sveitarfélaginu. Forstöðumaður kynnti starf menningarmiðstöðvarinnar.
Fyrirhugað er að ráða í tvö störf í Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem verða með starfsstöð í Gömlubúð í stað þeirra sem látið hafa af störfum hjá MMH og sinntu atvinnu- og ferðamálum annars vegar og upplýsingamiðstöð hins vegar.
Einnig var kynntur nýr samstarfssamningur til þriggja ára við Nýheima þekkingarsetur sem samþykktur var í bæjarráði fyrr í mánuðinum.

Nefndin þakkar góða kynningu.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Engar nýjar fundargerðir hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður, Snæfellsjökulsþjóðgarður og hluti af Umhverfisstofnun, þar á meðal öll friðlýst svæði, eru nú sameinuð í einni stofnun sem heitir Náttúruverndarstofnun. Engir fundir hafa verið haldnir í svæðisstjórn og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs frá byrjun desember 2024 og verið er að forma nefndir og stjórnir að nýju undir Náttúruverndarstofnun.
Lagt fram til kynningar.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Málsnúmer 202405050
50 einstaklingar eru skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði.Skipting eftir póstnúmerum er:780: 22781: 21785: 7Átta nýjar umsóknir bíða samþykktar í sveitarfélaginu og skiptast svo:780: 5781: 2785: 1
Lagt fram til kynningar.
4.
Styrkir Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2025
Málsnúmer 202411085
Lokaafgreiðsla vegna umsókna í atvinnu- og rannsóknasjóð 2025.
Umsækjendum í atvinnu- og rannsóknasjóð er þakkað fyrir áhugaverðar umsóknir.
Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.
Formleg afhending styrkja fer fram á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar 7. mars næstkomandi.

Menningarhátíðin verður auglýst síðar en nefndin hvetur íbúa til að fjölmenna.
5.
Menningarstyrkir 2025
Málsnúmer 202411084
Lokaafgreiðsla vegna umsókna um menningarstyrki 2025.
Umsækjendum menningarstyrkja er þakkað fyrir áhugaverðar umsóknir.
Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.
Formleg afhending styrkja fer fram á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar 7. mars næstkomandi.

Menningarhátíðin verður auglýst síðar en nefndin hvetur íbúa til að fjölmenna.