Atvinnu- og menningarmálanefnd
73. fundur
24. febrúar 2025
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson
1. varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Engar nýjar fundargerðir hjá Vatnajökulsþjóðgarði/Náttúruverndarstofnun.
Lagt fram til kynningar.
2.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2024
Tölur í þessum póstnúmerum er eftirfarandi með samþykka umsókn:780: 20781: 20785: 4Alls 44Nýjar umsóknir og ósamþykkar eru:780: 3781: 1785: 0Alls: 4
Nefndin hefur ákveðið að taka saman tölur um atvinnuleysi og bera saman milli mánuða og ára og birta samantektina tvisvar á ári í stað þess að birta tölurnar mánaðarlega.
Fyrsta samantektin mun birtast á ágústfundinum.
Fyrsta samantektin mun birtast á ágústfundinum.
3.
Humarhátíð 2025
Humarhátíðarnefnd 2024 hefur gefið nefndarstörf frá sér. Virkja þarf nýja nefnd. Endurskoða þarf einnig aðkomu sveitarfélagsins og stuðning við hátíðina eins og fram hefur komið síðustu nokkur ár.
Nefndin hvetur íbúa til að taka virkan þátt í undirbúningi Humarhátíðar 2025.
Stýrihópur innan sveitarfélagsins vinnur með nefndinni og veitir henni stuðning.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu geti gefið sig fram við Kristínu Völu hjá Menningarmiðstöðinni.
Stýrihópur innan sveitarfélagsins vinnur með nefndinni og veitir henni stuðning.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu geti gefið sig fram við Kristínu Völu hjá Menningarmiðstöðinni.
4.
Menningarhátíð sveitarfélagsins
Menningarhátíð sveitarfélagsins Hornafjarðar fer fram við hátíðlega athöfn í Nýheimum föstudaginn 7. mars kl.17:00 Öllum umsækjendum hefur verið tilkynnt um úthlutun með tölvupósti. Umræða um tilnefndingar til Menningarverðlauna 2025. Val sigurvegara. Fyrirkomulag hátíðarinnar rætt.
Nefndin þakkar innsenda tilnefningar og hvetur íbúa til að fjölmenna á hátíðina 7. mars.
5.
Störf í Gömlubúð
Forstöðumaður kynnir nýjar áherslur í starfsemi Gömlubúðar og ný störf með starfsstöð í Gömlubúð sem kynnt var í bæjarráði 11.2.2025.
Nefndin er ánægð með fyrirhugaða starfsemi í Gömlubúð.
6.
Menningarmiðstöð
Nýr starfsmaður Svavarssafns, Birta Guðjónsdóttir kemur inn og kynnir sig fyrir nefnd.Forstöðumaður kynnir starf Menningarmiðstöðvarinnar.
Nefndin þakkar fyrir ítarlega kynningu á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar og býður Birtu Guðjónsdóttur velkomna í Sveitarfélagið Hornafjörð.