Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

75. fundur
23. apríl 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Fundargerðir Vatnajökulsþjóðgarðs eru enn ekki aðgengilegar síðan um áramótin. Svæðisráð hefur fundað þrisvar frá áramótum og vonast nefndin til að fundagerðir verði tilbúnar fyrir næsta fund nefndarinnar. Anna Ragnarsdóttir Pedersen, þjóðgarðsvörður, kynnir starf þjóðgarðsins.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna. Fram kom í máli Önnu að mikil vinna fylgir sameiningarmálum stofnananna sem urðu til um áramótin undir heitinu Náttúruverndarstofnun. Nú er verið að taka aftur upp deiliskipulag við Jökulsárlón þar sem byggja á upp þjónustusvæðið, vonandi gengur sú vinna hratt svo hægt verði að hverfa frá bráðabirgðalausnum í þjónustu.

Jökulsárlón er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og þangað komu milljón gestir á síðasta ári. Varðandi framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón vill nefndin taka undir orð Sigurjóns bæjarstjóra frá því í hádegisfréttum í dag:
„Við höfum lagt mikla áherslu á að útboðsskilmálar taki tillit til fleiri þátt en bara hæsta verðs. Það þarf að taka mið af gæðum þjónustu, öryggismálum og reynslu þeirra aðila sem bjóða í, ásamt síðan staðbundinni þekkingu. Og það þarf að meta þessa hluti í samhengi við samfélagsávinning á nærsvæði þjóðgarðsins sem er í þessu tilfelli Hornafjörður“.
2.
Nýjar heimasíður fyrir sveitarfélagið og stofnanir
Málsnúmer 202402020
Verkefnastjóri stafrænna lausna og tækni, Tjörvi Óskarsson kynnir nýja heimasíðu sveitarfélagsins. Síðan er uppsett á prófunarsvæði og er verið að vinna í henni þar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og hlakkar til að fá nýja vefsíðu í loftið.
3.
Ríki Vatnajökuls - Kynning á starfsemi
Málsnúmer 202209034
Gjaldkeri stjórnar Ríki Vatnajökuls, Tinna Rut Sigurðardóttir kynnir starf félagsins.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna. Mikill hugur er í stjórninni að efla starfsemi félagsins og nefndin óskar þeim góðs gengis.
4.
Jöklaleiðin 2025
Málsnúmer 202503077
Fyrirhugaðar framkvæmdir og opnun Jöklaleiðarinnar kynnt.
Lagt fram til kynningar.
5.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Forstöðumaður kynnir starf menningarmiðstöðvarinnar.- Nýir starfsmenn og ráðningar í gangi - Humarhátíðarnefnd, áskoranir og mönnun - 17 styrkir Uppbyggingasjóðs Suðurlands til Hornafjarðar. - Frétt Nýheima þekkingarsturs um Hornfirska styrki: https://nyheimar.is/17-styrkir-til-hornfirdinga/ - Frétt Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga um alla styrki: https://www.sass.is/wordpress/wp-content/uploads/2025/04/Uthlutadir-styrkir-vor-2025-pdf-skjal-a-vefinn.pdf
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og óskar styrkhöfum í Sveitarfélaginu Hornafirði til hamingju með árangurinn og velfarnaðar í sínum verkefnum.
Ný Humarhátíðarnefnd hefur tekið til starfa sem er mjög gleðilegt. Nefndin hvetur íbúa í Sveitarfélaginu til að taka virkan þátt í hátíðinni sem fram fer dagana 26.-29. júní 2025. Hægt er að ná sambandi við nefndina á netfanginu humarhatidarnefnd@gmail.com