Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

78. fundur
27. ágúst 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Bjarni Ólafur Stefánsson varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
2.
Humarhátíð 2025
Málsnúmer 202502071
Fulltrúi Humarhátíðarnefndar 2025 kynnir verkefnið og uppgjör þess fyrir nefndina.
Humarhátíð er mikilvæg fyrir samfélagið og nauðsynlegt að finna leiðir til að virkja sem flesta í að taka þátt í hátíðinni í framtíðinni.
Nefndin þakkar sjálfboðaliðum Humarhátíðar 2025 fyrir vel unnin störf og hlakkar til næstu hátíðar.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202508057
Samantekt og staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði kynnt.
Nefndin þakkar Nejru fyrir kynninguna.
4.
Graffíll
Málsnúmer 202505023
Kynning á listahátíðinni Graffíll sem haldin var í fyrsta sinn á Höfn í sumar. Verkefnið hlaut styrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði í formi fjármuna og vinnuframlags starfsfólks.
Þökkum Vilhjálmi fyrir góða kynningu.
Nefndin óskar unga fólkinu til hamingju með vel heppnaða hátíð og hvetjum þau til að endurtaka leikinn.
Einnig vill nefndin þakka þeim fjölmörgu félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum sem lögðu Graffíl lið.
5.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Forstöðumaður kynnir starf menningarmiðstöðvar.Mikið er að gerast í Gömlubúð og lifandi tónlist á miðvikudögum heldur áfram fram í haustið. Nýlega opnaði sýningin Tóm eftir Spessa á Svavarssafni þar sem sýnd eru ljósmyndaverk frá sjónarhorni nýbúa í Öræfunum.Næsta sýning opnar 10. október en þá sýnir Eygló Harðardóttir verk sem innblásin eru af verkum Svavars.Vetrarstarf bókasafnsins er nú að hefjast og vetraropnun er frá 1. september á mánudögum til fimmtudaga kl.10-17 og föstudaga og laugardaga kl.11-15. Sumarlestrarátak safnsins býður senn uppá uppskeruhátíð á bókasafninu, auglýst nánar síðar. Í ár er 50 ára afmæli Evrópska húsverndarársins og býður Minjastofnun áhugasömum aðstoð við markaðssetningu vegna viðburða sem tengjast varðveislu gamalla húsa. Fyrir nánari upplýsingar eða skráningu má senda póst á netfangið solrun@minjastofnun.is
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.