Atvinnu- og menningarmálanefnd
82. fundur
26. nóvember 2025
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
varaformaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir
aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson
1. varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Fundagerðir svæðisráðs suðursvæðis þjóðgarðsins lagt fram til kynningar.Engin ný fundargerð hefur verið birt fyrir svæðisstjórn þjóðgarðins frá síðasta fundi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
Nefndin vekur athygli á og tekur undir bókun svæðisráðs á fundi svæðisráðs suðursvæðis nr. 149, mál númer 2 "Skipulagsbreytingar landvörslusviðs 2025 - 202510-0084".
Nefndin vekur athygli á og tekur undir bókun svæðisráðs á fundi svæðisráðs suðursvæðis nr. 149, mál númer 2 "Skipulagsbreytingar landvörslusviðs 2025 - 202510-0084".
2.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Að frumkvæði Landsbyggðar stendur nú til að ráðast í stefnumótandi vinnu um framtíðarsýn og staðarímynd fyrir uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn. Vinnustofa um verkefnið þann 3. desember er lykilskref í því að móta framtíðarsýn fyrir nýjan miðbæ og samræma sýn lykilaðila að verkefninu. Markmiðið er að byrja að leggja traustan grunn að uppbyggingu sem mun skipta samfélagið miklu máli og styðja við jákvæða þróun svæðisins um ókomin ár.Sigurjón Andrésson bæjarstjóri kynnir verkefnið.
Nefndin þakkar Sigurjóni fyrir kynninguna.
3.
Nýsköpunarnet Hornafjarðar
Nejra, byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins kynnir stoðkerfi nýsköpunnar í Hornafirði.
Nefndin þakkar Nejru fyrir kynninguna og hvetur fólk til að kynna sér starfsemi og þjónustu nýsköpunarnetsins.
https://nyheimar.is/nyskopunarnetid/
https://nyheimar.is/nyskopunarnetid/
4.
Byggðaráðstefna 2025
Eyrún Fríða Árnadóttir, verkefnastjóri HeimaHafnar hjá Nýheimum þekkingarsetri sótti Byggðaráðstefnu Byggðastofnunar á Mývatni í upphafi mánaðar, yfirskrift ráðstefnunnar var "Félagslegur fjölbreytileiki samfélaga, jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?" Eyrún Fríða kynnir efnistök ráðstefnunnar. Upptöku af ráðstefnunni má sjá hér: https://www.byggdastofnun.is/is/moya/page/byggdaradstefnan-2025
Nefndin þakkar Eyrúnu Fríðu fyrir kynninguna og hvetur áhugasama um að horfa á erindi ráðstefnunnar.
5.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Bæjarstjórn hefur samþykkt fyrirlagðar útlutunarreglur atvinnu- og menningarmálanefndar með þeim breytingum að um sameiginlegan sjóð atvinnu- og menningarmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar sé að ræða og nefndirnar þurfi að koma sér saman um styrkveitingu hvers árs á sameiginlegum fundi.
Breytt fyrirkomulag og drög að úrvinnsluferli styrkveitinga rætt.
6.
Menningarmiðstöð
Forstöðumaður kynnir starf Menningarmiðstöðvar.Jóladagskrá Menningarmiðstöðvarinnar- Rithöfundakvöld var síðasta sunnudagskvöld, 29. nóvember- Aðventuhátíð í Nýheimum og tendrun jólatrésins laugardaginn 29. nóvember kl. 14-18- Opnun jólasýningar í Gömlubúð sunnudaginn 7. desember kl.14-20- Upplesur um jólasveinana á bókasafninu kl.16:30 11. - 23. desemberJólaopnun á bókasafni:mánudagana og þriðjudagana 22. - 23. desember og 29. - 30. desember verður opið kl.11-15 Yfir jól og áramót verður lokað, 24. - 28. desember og 31. desember - 4. janúar.Hefðbundinn opnunartími tekur við 5. janúar - mánudaga-fimmtudaga kl.10-17- föstudaga-laugardaga kl.11-15
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og hvetur öll til að fjölmenna á viðburði Menningarmiðstöðvarinnar.