Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

83. fundur
17. desember 2025 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Steindór Sigurjónsson varaformaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
2.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Málsnúmer 202507025
Opnað hefur verið fyrir umsóknir til verkefnastyrkja sveitarfélagsins og breytt fyrirkomulag hefur verið auglýst á vef sveitarfélagsins. Umsóknarform er aðgengilegt í íbúagátt sveitarfélagsins, umsóknarfrestur er 4. janúar 2026.https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/breytt-fyrirkomulag-styrkveitinga-sveitarfelagsins-hornafjardar
Nefndin hvetur áhugasöm til að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins og sækja um styrk fyrir sínum verkefnum.
3.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Málsnúmer 202512055
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð sveitarfélagsins og auglýst hefur verið á vef sveitarfélagsins. Umsóknarform er aðgengilegt í íbúagátt sveitarfélagsins, umsóknarfrestur er til 5. janúar 2026.https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/umsoknir-um-styrki-atvinnu-og-rannsoknasjods-2026
Nefndin hvetur áhugasama til að kynna sér úthlutunarreglur og sækja um styrk fyrir sínum verkefnum.
4.
Menningarverðlaun 2026
Málsnúmer 202512056
Menningarverðlaun sveitarfélagsins eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári.Verðlaunin verða veitt á Menningarhátíð sveitarfélagsins 6. mars 2026.
Menningarlíf er í blóma í Sveitarfélaginu Hornafirði og margt eftirtektarvert á árinu sem er að líða.
Nefndin hvetur íbúa að senda tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2025.
Unnið er að því að setja upp tilnefningarform inn á íbúagátt sveitarfélagsins sem verður auglýst á miðlum sveitarfélagsins.
5.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202409071
Forstöðumaður kynnir starf Menningarmiðstöðvar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.