Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

87. fundur
22. apríl 2026 kl. 16:00 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Steindór Sigurjónsson varaformaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Málsnúmer 202602128
Fundagerðir Vatnajökulsþjóðgarðs lagðar fram til kynningar.Engar nýjar fundargerðir svæðisstjórnar suðursvæðis eru aðgengilegar á vef Vatnajökulsþjóðgarðs frá síðasta fundi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
3.
Linguistic practices in a tourism-driven context (Nýsköpunarsj.námsmanna)
Málsnúmer 202604050
Nýverið hlaut Menningarmiðstöð Hornafjarðar ásamt Eugénie Claire Parent styrk úr nýsköpunarsjóði námsmanna. Eugénie er starfsmaður okkar í Gömlubúð en leggur einnig stund á nám í Félags- og menningarmannfræði við Háskólann í Strassborg, Frakklandi. Eugénie kynnir verkefnið sitt og samstarf við Menningarmiðstöðina en Kristín Vala, forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar er leiðbeinandi hennar í verkefninu. Linguistic practices in a tourism-driven context.Located in a highly touristic region, Sveitarfélagið Hornafjörður has experienced significant demographic change linked to tourism and labor migration. In this context, the growing presence of foreign residents has reshaped everyday language practices, particularly through the increasing use of English alongside Icelandic. The proposed project aims to collect and record testimonies from Icelandic and foreign inhabitants in order to document local perceptions of these changes. Through qualitative interviews, it seeks to examine everyday negotiations around language use and to explore identity related issues as they emerge from linguistic practices. By addressing the tension between the necessity of integration and concerns over linguistic adaptation, the project will provide the municipality with qualitative data to support local reflection while contributing to broader discussions on language, identity, and tourism in Iceland.
Nefndin þakkar Eugénie fyrir kynninguna og hvetur íbúa til þátttöku og vitundarvakningar um verkefnið.
4.
Áfangastaðaáætlun Suðurlands - uppfærsla 2026
Málsnúmer 202604052
Markaðsstofa Suðurlands kynnir fyrirhugaða vinnu við uppfærslu Áfangastaðaáætlun Suðurlands.
Nefndin þakkar Árdísi fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að taka þátt í vinnustofum sem að Markaðsstofa Suðurlands stefnir á að halda í haust.
Áfangastaðaáætlun Suðurlands má finna hér: https://www.south.is/afangastadaaaetlun
5.
Samráðsfundir byggða- og nýsköpunarfulltrúa með atvinnulífi í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202604053
Nýverið sá Nejra, byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins, um fjóra samráðsfundi með helstu atvinnuvegum sveitarfélagsins. Nejra kynnir niðurstöður fundanna fyrir nefndinni.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
6.
Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Málsnúmer 202601156
Nefndin óskaði eftir kynningu á umsögn sem Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs sveitarfélagsins skilaði inn vegna þingsmáls 312/2026 sem varðar Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
7.
Búfjársamþykkt 2026
Málsnúmer 202504074
Unnið hefur verið að uppfærslu á búfjársamþykkt sveitarfélagsinsGuðrún Agða, kynnir drög að samþykktinni sem lögð er fram til umræðu.
Líflegar umræður sköpuðust og nefndin þakkar fyrir kynninguna.
8.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Málsnúmer 202512055
Starfsmaður kynnir drög að uppfærðum reglum og matsrömmum fyrir Atvinnu- og rannsóknarsjóð.
Nefndin þakkar fyrir og felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
9.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Málsnúmer 202512087
Starfsmaður kynnir drög að uppfærðum reglum og matsramma fyrir Verkefnastyrki sveitarfélagsins.
Nefndin þakkar fyrir og felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
10.
Menningarhátíð 2026
Málsnúmer 202602110
Starfsmaður kynnir drög að uppfærðum reglum fyrir Menningarverðlaun sveitarfélagsins.
Nefndin þakkar fyrir og felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
11.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202602126
Forstöðumaður kynnir starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar.Svavarssafn hefur nú verið lokað vegna framkvæmda á jarðhæð ráðhússins sem áætlað er að ljúki í október 2026. Ný sýnining mun þó opna á vegum safnsins á morgun, sumardaginn fyrsta, í Gömlubúð kl.17:00. Sýningin "Hlýja og handverk" er yfirlitssýning á verkum Margotar Gamm og unnin í samstarfi við afkomendur hennar, þeim er þakkað kærlega fyrir sitt framlag til sýningarinnar. Einnig er vert að benda á að bók Karls Skírnissonar um viðburðaríka ævi Margotar "Frá Hamborg að Borgum" er aðgengileg á bókasafni okkar.Fyrr um daginn, kl.13-15, er Krakkaklúbburinn Kóbra með listasmiðju fyrir börn innblásinn af Hálfdáni Björnssyni frá Kvískerjum í tilefni Barnamenningardaga á Suðurlandi. Sumardeginum fyrsta líkur í Gömlubúð með Tungumálakaffi (e. language cafe) þar sem íbúar af ólíkum bakgrunn eru hvött til samveru og æfingar á íslenskri tungu. Þá hefur Menningarmiðstöðin, í tilefni sumarsins, komið dótakassa fyrir í skoti vestan við Nýheima þar sem börn á öllum aldri geta nálgast sumarleikföng til afnota á staðnum.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að taka þátt í starfi Menningarmiðstöðvarinnar.