Fara í efni

Atvinnumálanefnd

1. fundur
23. janúar 2015 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Óðinn Eymundsson varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Sigríður Lárusdóttir 2. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Erindisbréf atvinnumálanefndar 2015
Málsnúmer 201412052
Lögð fram drög að erindisbréf nefndarinnar. Umræður sköpuðust um punkta erindisbréfsins. Atvinnumálanefnd samþykkir erindisbréfið með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.Atvinnumálanefnd fór yfir fundartíma nefndar og ákveðið að nefndin fundi síðasta miðvikudag í mánuði klukkan 17:00
2.
Tillaga að Landskipulagsstefnu
Málsnúmer 201412057
Tillögur að landskipulagsstefnu lögð fram. Atvinnumálnefnd vill benda á að 60 km. skilgreining á vinnusóknarsvæði er þröng skilgreining. Innan sveitarfélagsins er mikil uppbygging í ferðaþjónustu og aukning starfa í nágrenni Hafnar sem falla utan þessarar skilgreiningar um vinnusóknarsvæði.
3.
Matslýsing vegna kerfisáætlunar 2015-2024 og gagnaöflun
Málsnúmer 201501001
Matslýsing vegna kerfisáætlunar 2015-2024 og gangaöflun. í lýsingunni eru nefndir þrír framkvæmdarkostir. Kostur B er styrking á núverandi megin flutningskerfi og er því vænlegasti kostur fyrir sveitarfélagið að sá framkvæmdarkostur verði fyrir valinu.
4.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Ragnheiður fór yfir þá vinnu sem hefur verið í gangi undanfarið. samskipti við Þórarinn hjá SASS sem verið hefur ráðgjafi í þessum málum til þessa. Tillaga er um að skipta málaflokkum stefnunnar upp í 7 kafla og að í vinnunni verði byggt á miklu samstarfi við atvinnulífið. Atvinnumálanefnd er sammála um að fá Þórarinn á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir hugmyndir og framhaldið í þessari vinnu.
5.
Atvinnuástand í Hornafirði 2015
Málsnúmer 201501085
Lagðar fram tölur um atvinnuleysi í sveitarfélaginu í lok árs 2014. Alls voru 24 á atvinnuleysisskrá í desember 18 karlar og 6 konur. Atvinnuleysi á Suðurlandi var 2,8% í desember 2014 og 3,4% á landinu öllu. Á sama tíma í Sveitarfélaginu Hornafirði var það 2%.