Fara í efni

Atvinnumálanefnd

25. fundur
25. janúar 2017 kl. 17:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Adisa Mesetovic Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2017.
Málsnúmer 201611069
Umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2017 lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnumálanefnd. Alls bárust 4 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni.
Nefndin fór yfir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2017.

Tillaga um úthlutun A-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Tillaga um úthlutun B-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.

Styrkjum verður úthlutað við hátíðlega athöfn samhliða afhendingu menningarverðlauna sveitarfélagsins. Nánar auglýst síðar.


2.
Göngu- og hlaupaleiðir á Höfn
Málsnúmer 201701071
Sveitarfélagið Hornafjörður og USÚ hefur unnið sameiginlega að gerð korts fyrir göngu- og hlaupaleiðir á Höfn.
Starfsmaður kynnir kort af göngu- og hjólaleiðum á Höfn fyrir nefndarmönnum. Miðað er við að allar leiðirnar hefjist og endi við Sundlaug Hafnar og standa vonir til að kortið muni nýtast vel við lýðheilsu íbúa og gesta á svæðinu.
3.
Álaugareyjaklettar
Málsnúmer 201608047
Erindi frá Náttúrustofu Suðausturlands lagt fram til kynningar.
Atvinnumálanefnd lýst vel á tillögur Náttúrustofu Suðausturlands og telur hana fara vel saman við áframhaldandi hugmyndir um göngustíg umhverfis þéttbýlið.
4.
Atlas kortasjá fyrir Suðurland
Málsnúmer 201609014
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi situr í verkefnastjórn kortavefs Suðurlands og kynnir helstu verkefni og áherslur fyrir atvinnumálanefnd.
Atvinnumálanefnd fagnar vinnu við gerð sameiginlegrar kortasjár fyrir Suðurland. Leggur áherslu á nálægðina við Vatnajökul, hversu gott aðgengi er að jöklinum á þessu svæði og fjölbreytt þjónusta honum tengd í boði. Einnig að þær gönguleiðir sem eru í Sveitarfélaginu Hornafirði verði gerð góð skil í kortasjánni sem og þeir áningastaðir sem hér eru.
5.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi
Málsnúmer 201602049
Unnið er að gerð sameiginlegra ferðamannakorta fyrir Suðurland. Eitt kort fyrir er fyrir Suðurland í heild í sinni, eitt fyrir vestursvæðið, eitt fyrir miðsvæðið og eitt fyrir austursvæðið. Starfsmaður leggur kortin fram til kynningar og umræðu.
Umræður sköpuðust um áherslur á kortunum og lögð áhersla á að þau gefi greinargóða mynd af þeim áfangastað sem svæðið er.
6.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201608035
Starfsmaður kynnir vinnuferli vegna fjallskilasamþykkta.
Unnið er að gerð nýrrar fjallskilasamþykktar fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Umræða skapaðist um mikilvægi þess að koma fjallskilum í sveitarfélaginu í góðan farveg. Starfsmenn vinna áfram í málinu.