Fara í efni

Atvinnumálanefnd

26. fundur
22. febrúar 2017 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Sigríður Lárusdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201609018
DMP er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. DMP er sameiginlegstefnuyfirlýsing sem hefur það að markmiði að stýra uppbyggingu og þróun svæðis yfir ákveðinn tíma, skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir sem hver og einn hagsmunaaðila ber ábyrgð á og hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggjast nýta við þá vinnu. Verkefnið er forgangsverkefni Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála 2016-2018 og er eitt stærsta samhæfða þróunarverkefnið sem ráðist hefur hér á landi. Verður það unnið í nánu samstarfi við sveitarfélögin og aðra hagaðila.
Starfsmaður kynnir verkefnið nánar og fjallar um aðkomu sveitarfélagsins að því. Atvinnu- og ferðamálafulltrúi situr í svæðistjórn DMP áætlunar fyrir okkar svæði og er einnig tengiliður verkefnastjórnar inn á svæðið. Svæðistjórn DMP áætlunar á Suðurlandi hefur sent inn rökstudda beiðni til Ferðamálastofu um að ráða inn tvo verkefnastjóra til að vinna eina DMP áætlun með þremur aðgerðaáætlunum sem miðar við þrískiptingu svæðisins. Sveitarfélagið Hornafjörður er austasta svæðið af þeim þremur, Skaftárhreppur til og með Rangárþingi Eystra er miðsvæðið og hin sveitarfélögin innan SASS mynda saman vestursvæðið.

Atvinnumálanefnd fagnar verkefninu og leggur áherslu á að vinnan fari fram samhliða endurskoðun á ferðaþjónustukafla í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
2.
Afhending styrkja Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201702056
Afhending styrkja Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer fram fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17:00. Athöfnin verður í Nýheimum.
Atvinnumálanefnd hvetur alla áhugasama til að mæta á þennan hátíðlega viðburð, þegar styrkir og viðurkenningar sveitarfélagsins verða afhentar.
3.
Ráðstefna um safna og sýningamál
Málsnúmer 201611079
Menningarmiðstöð Hornafjarðar stendur fyrir ráðstefu sem ber yfirskriftina "Skref til framtíðar. Ráðstefna um uppbyggingu sýninga og safna". Þar verður m.a. rætt um stöðu og uppbyggingu menningarmiðstöðvar og safnahúss. Leitast verður eftir því að svara hvort Jöklasýning sé svarið fyrir Hornafjörð. Ráðstefnan hefst kl. 18.30, strax að lokinni afhendingu viðurkenninga og styrkja sveitarfélagsins. Ráðstefnan er öllum opin en til að áætla veitingar er skráning æskileg á netfangið eyrunhelga@hornafjordur.is
Umræða spannst um mikilvægi sýningar/safns sem byggir á sérstöðu svæðisins til að koma byggðasögu Austur-Skaftafellssýslu á framfæri við gesti og gangandi. Nefndin fagnar ráðstefnunni sem er framundan og bindur vonir við að hún sé aðeins fyrsta skrefið af mörgum til að efla svæðið sem áfangastað ferðamanna til framtíðar.