Atvinnumálanefnd
28. fundur
26. apríl 2017
kl.
17:00
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Matís og matarsmiðjan
Á 807. fundi sínum vísaði bæjarráð málinu til atvinnumálanefndar og fól henni að ræða við hlutaðeigandi aðila.
Matís hefur sagt upp leigu að Álaleiru 1 þar sem matarsmiðjan hefur verið rekin undanfarin ár. Atvinnumálanefnd boðaði því alla núverandi hagsmunaaðila smiðjunnar á fund til sín til að ræða tillögur að áframhaldandi starfsemi matarsmiðjunnar í sveitarfélaginu. Anna Sævarsdóttir, Tryggvi Valur Tryggvason og Ómar Frans höfðu kost á því að mæta á fundinn.
Anna S. Sævarsdóttir og Matís hafa verið í viðræðum um að tæki og tól matarsmiðjunnar fari inn í Miðsker og að smiðjan verði starfrækt þar. Samningsdrög liggja fyrir á milli aðila og ef af framkvæmdinni verður getur starfsemi hafist nú í haust.
Tryggvi Valur Tryggvason og Ómar Frans upplýstu um sína starfsemi og þá þætti sem þeir telja nauðsynlega til að vaxtar fyrirtækjanna.
Anna S. Sævarsdóttir og Matís hafa verið í viðræðum um að tæki og tól matarsmiðjunnar fari inn í Miðsker og að smiðjan verði starfrækt þar. Samningsdrög liggja fyrir á milli aðila og ef af framkvæmdinni verður getur starfsemi hafist nú í haust.
Tryggvi Valur Tryggvason og Ómar Frans upplýstu um sína starfsemi og þá þætti sem þeir telja nauðsynlega til að vaxtar fyrirtækjanna.
2.
Fjallsárlón - framkvæmdaáætlun vegna verkefna SVH í þjóðlendunni
Fjallsárlón ehf. hefur opnað nýja og glæsilega þjónustumiðstöð að Fjallsárlóni. Óskar atvinnumálanefnd fyrirtækinu innilega til hamingju með framkvæmdina.
Starfsmanni falið að vinna að göngustígagerð á svæðinu samkvæmt samningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Fjallsárlóns ehf.
Starfsmanni falið að vinna að göngustígagerð á svæðinu samkvæmt samningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Fjallsárlóns ehf.
3.
Lausnir fyrir sveitarfélög - rafræn gönguleiðsögn
Sveitarfélaginu hafa borist boð frá tveimur fyrirtækjum sem bjóða upp á rafrænar gönguleiðsagnir.
Starfsmanni falið að afla frekari gagna. Einnig að kanna samstarfsmöguleika með Vatnajökulsþjóðgarði.
4.
Afgreiðsla úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umsókn 1510123-Brú yfir Kolgrafardalsá og brú "á milli fella"
Lagt fram til upplýsinga.
Framkvæmdir vegna gönguleiðarinnar "Mýrajöklar" eru langt komnar og er stefnt að opnun hennar þann 25. maí nk. Vinir Vatnajökuls munu styrkja opnunarhátíðina sem verður í Haukafelli. Verður hún öllum opin.
5.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Starfsmaður kynnir stöðu á verkefnisins.
Ráðnir hafa verið tveir verkefnastjórar vegna DMP áætlana á Suðurlandi, þær Laufey Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur og Anna Valgerður Sigurðardóttir ferðamálafræðingur. Alls bárust 14 umsóknir í störfin sem eru tímabundin til eins árs. Til að tryggja sem bestan árangur verkefnisins verður það unnið í nánu samstarfi við nærsvæðin. Verkefnastjórarnir eru að taka til starfa um þessar mundir.
6.
Ríki Vatnajökuls ehf. 2017
Rætt um þau verkefni sem Ríki Vatnajökuls ehf. hefur sinnt fyrir sveitarfélagið skv. samningi. Mikilvægt að finna þeim farveg að samningstíma loknum.
7.
Cruise Iceland 2017
Atvinnumálanefnd tekur undir bókun hafnarstjórnar varðandi þrepaskiptingu gjalda útfrá tekjum vegna skemmtiferðaskipa.