Atvinnumálanefnd
3. fundur
24. febrúar 2015
kl.
16:00
-
19:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Óðinn Eymundsson
varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðsla Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2015
Umræða um umsóknir. Ekki eru komin svör frá þeim sem veita umsögn um úthlutun A-hluta og ákvað nefndin að bíða eftir að allir óháðir aðilar hafi skilað áliti sínu. Ragnheiður vék af fundi meðan umsókn Töfra Tröll var til umræðu. Nefndin sammála um að boða til hádegisfundar þegar álit allra óháðra aðila liggur fyrir.
2.
Atvinnustefna 2015-
Árdís Erna Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri Ríki Vatnajökuls og Fanney Björg Sveinsdóttir ráðgjafi SASS komu á fundinn.
Fanney fór yfir stöðu atvinnumálastefnu sveitarfélagsins og forsögu verkefnisins. SASS hefur í þeirri vinnu sem unnin hefur verið með sveitarfélögum á Suðurlandi lagt áherslu á stefnumarkandi vinnu og að afurðin verði lifandi plagg sem nýtist í að fjölga atvinnutækifærum í sveitarfélaginu. Þórarinn E Sveinsson ráðgjafi hjá SASS myndi vinna með Fanney og nefndinni að þessu máli.
Nefndin sammála um hefja þessa vinnu. Fyrsta skrefið að senda spurningar til fastanefnda sveitarfélagsins þar sem þær eru spurðar um hvað viðkomandi nefnd getur gert til að fjölga atvinnutækifærum í framtíðinni. Einnig rætt um að senda út netkönnun á fyrirtæki og íbúa í samfélaginu. Formaður nefndarinnar og Fanney vinni spurningarlista sem sendur yrði út á "Survey Monkey" netkönnun. starfsmenn sveitarfélagsins myndu vinna lista yfir fyrirtæki sem senda ætti könnunina. Síðan yrðu samfélagsmiðlar í sveitarfélaginu notaðir til að hvetja til þátttöku í henni. Nefndin sammála um að hefja þessa vinnu áætlað að niðurstaða út spurningum nefnda yrði klár á næsta fundi nefndarinnar og netkönnun fundi þar á eftir.

3.
Ferðamálastefna 2015-
Árdís fór yfir samning milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Ríki Vatnajökuls. Markmið og tilgang hans sem og mikilvægi þess að skapa fleiri heilsársstörf aðkoma Ríki Vatnajökuls yrði byggð á samningnum. Kom fram að mikil atvinnutækifæri eru í greininni. Mikið vandamál er húsnæðis skortur í sveitarfélaginu og skortur á húsnæði fyrir fólk sem vill setjast hér að. Umræður sköpuðust um þróun atvinnulífs í sveitarfélaginu og hvort sú þróun er alveg á réttri leið. Er verið að minnka þá fjölbreytni sem verið hefur í atvinnutækifærum í sveitarfélaginu. Í tengslum við þetta var rætt um skort á nýliðun í landbúnaði. Innleiðing á gæðaeftirlitskerfi í ferðaþjónustu talið geta gefið tækifæri til að skapa svæðinu sérstöðu með því að setja sér markmið að allir taki upp gæðastjórnunar og gæðaeftirlitskerfi. Í tengslum við gerð ferðamálastefnu er nauðsynlegt að taka saman mikið magn af upplýsingum, markhópa og fjölda. Ekki er til mikið af greiningargögnum innan Ríki Vatnajökuls. Markaðsstofa Suðurlands hefur verið að kynna hugsanlega aðkomu að svona greiningarvinnu. Áætluð er heimsókn frá þeim í næstu viku til kynningar á starfseminni og hugmyndum um samstarf í ferðamálum.
4.
Sjávarþorpið Höfn
Fanney og Árdís kynntu hugmyndina og stöðu þessa máls. Tilgangur var að styrkja ímynd staðarins og markaðssetja hann sem áfangastað. Þetta er grasrótarverkefni þar sem áhugasamir einstaklingar komu saman og fóru yfir SVÓT greiningu og markmiðasetningu til að ná fram markmiðunum. Verkefnið var kynnt fyrir íbúum í Eystrahorni og á vef sveitarfélagsins þar sem íbúum var gefinn kostur á að koma með athugasemdir og hugmyndir til að vinna með. Verkefnið snýr að því að byggja á staðreyndum og sérstöðu staðarins og draga þær betur fram. Með þvi erum við að auka og bæta ímynd staðarins. Boðað verður til fundar 12.mars í Nýheimum þar sem næstu skref eru að móta langtíma- og skamtímaverkefni. Nefndin hvetur alla áhugasama til að mæta og taka þátt í verkefninu. Um er að ræða samstarfsverkefni milli SASS, Ríki Vatnajökuls og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Fanney og Árdís véku af fundi eftir þennan lið.
Fanney og Árdís véku af fundi eftir þennan lið.
5.
Umsögn um frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn
Nefndin fór yfir drögin og sá ekki ástæðu til athugasemda.