Fara í efni

Atvinnumálanefnd

33. fundur
2. nóvember 2017 kl. 15:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Sameiginlegur hugarflugsfundur allra fastanefnda um verkefnið, fundarmenn eru eingöngu skráðir mættir í eina nefnd þó þeir séu fulltrúar í mörgum nefndum.
Farið var yfir hvaða verkefni og áherslur fyrir samfélagið allt í Sveitarfélaginu Hornafirði eru áhugaverð með tilliti til eftirfarandi punkta.
Aðgerðir á sviði umhverfis og loftlagsmála.
Græn-blá útivistarsvæði.
Samræmd landnotkun og samgöngulausnir.
Líflegur miðbær.
Sögu- og menningarlegar minjar.
Þríbýli arkitektúr bæjarskipulag.
Félagslegur jöfnuður og jöfn tækifæri fyrir alla.
Góð félags- og heilbrigðisþjónusta.
Blómlegt menningarlíf.
Heillandi atvinnutækifæri.
Gögn frá fundinum eru nýtt til áframhaldandi vinnu fyrir verkefnistjóra verkefnisins.