Fara í efni

Atvinnumálanefnd

35. fundur
20. desember 2017 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska Fulltrúi ungmennaráðs
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir 1. varamaður
Ottó Marvin Gunnarsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Húsnæði Sláturfélagsins Búa - Vestur hluti sláturhúss
Málsnúmer 201709244
Unnið er að lausnum varðandi áframhaldandi starfsemi matarsmiðju á Höfn.
Atvinnumálanefnd er sammála um mikilvægi matarsmiðju á svæðinu. Hún leggur til að unnið verði áfram að málinu.
2.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201709281
Unnið er að gerð nýrrar fjallskilasamþykktar fyrir Austur-Skaftafellssýslu í samvinnu við Búnaðarsambandið.
Umræður um vinnu varðandi fjallskilasamþykkt og ferlið framundan.
3.
Atvinnu- og rannsóknasjóður 2018
Málsnúmer 201711056
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2018.
Atvinnumálanefnd hvetur áhugasama til að sækja um fjármagn í atvinnu- og rannsóknasjóð. Bent er á að þjónusta við gerð styrkumsókna er í boði á svæðinu.

Umræða um fjárhagslegan grundvöll fyrir starfsemi sjóðsins til framtíðar. Atvinnumálanefnd leggur til að aukaframlag vegna hækkunar fasteignagjalda fyrir atvinnuhúsnæði í Sveitarfélaginu Hornafirði renni áfram í Atvinnu- og rannsóknasjóð.

Ákveðið að boða til aukafundar í atvinnumálanefnd að loknum umsóknarfresti. Samkvæmt reglum sjóðsins skulu niðurstöður um styrkveitingu liggja fyrir þann 31. janúar.
4.
Markaðs- og kynningarmál á vegum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201709334
Umræða um markaðs- og kynningarmál Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ferðaþjónusta er ört vaxandi atvinnugrein í sveitarfélaginu og er atvinnumálanefnd sammála um mikilvægi þess að svæðið sé leiðandi í ferðamálum. Í ljósi nýundirritaðs samnings við Markaðsstofu Suðurlands leggur atvinnumálanefnd til að sveitarfélagið þétti enn frekar samstarfið á þeim vettvangi.
5.
Orkunýtingarstefna SASS 2017-2030
Málsnúmer 201712050
Óskað er eftir umsögn atvinnumálanefndar vegna orkunýtingastefnu SASS.
Frestað til næsta fundar.
6.
Tjaldsvæði á Höfn - Umsóknir vegna afnotaréttar
Málsnúmer 201611094
Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að samningsaðilar komi að borðinu og fari yfir framkvæmdaáætlun og skerpi á tímasetningum.