Atvinnumálanefnd
4. fundur
25. mars 2015
kl.
17:00
-
18:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Óðinn Eymundsson
varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Afgreiðsla Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2015
Ragnheiður vék af fundi 16:25 vegna vanhæfis undir umsókn Töfratrölla.
Atvinnumálanefnd er samála um styrkúthlutanir fyrir
árið 2015, starfsmönnum falið að senda umsækjendum bréf.
Formaður leggur til að nefndinn taki reglur sjóðsins til endurskoðunar á næsta fundi. Með það að markmiði að skerpa á kröfum umsókna í A sjóð. Umsækjundum skal gert skýrt að umsóknum í þann hluta skulu fylgja gögn til styrktar umsókninni svo sem tíma, verk og kostnaðaráætlanir. Ýtarlegri kynning á hugmyndinni/fyrirtækinu og rekstraráætlun. Einnig þarf að taka fram í reglunum að verkefni í A sjóð skuli fela í sér nýnæmi í atvinnusköpun á svæðinu svo verkefni sem hljóta stærri styrki skekki ekki samkeppnisstöðu. Enn fremur tel ég mikilvægt að nefndin setji inn í reglurnar ramma um mat umsókna þar sem fyrirfram ákveðnum þáttum er gefin einkunn, líkt og þekkist í öðrum sjóðum. Það mun gera allt ferlið einfaldara bæði fyrir nefndina og umsækjendur.
Einnig vantar gögn með umsókninni en í reglum um Atvinnu- og rannsóknasjóð er beðið um kostnaðar-, tíma og verkáætlun.
Kristján tekur undir orð Ragnheiðar um að endurskoða reglur Atvinnu- og rannsóknarsjóðs einnig verði skoðaðar leiðir til að efla sjóðinn og atvinnumálanefnd fylgi reglum sjóðsins varðandi tímaramma úthlutunar.
Ragheiður tekur undir að nefndin fari eftir reglum varðandi tímaramma.

2.
Umsókn í Nýsköpunarsjóð námsmanna
Lagt fram til kynningar.
Nefndin óskar eftir að fá Náttúrustofu á fund vegna umræðna um verkefnið.

3.
Atvinnustefna 2015-
1. Nefndu 5 atriði sem þinn málaflokkur/þín nefnd getur gert til að auka umsvif í atvinnulífinu.
A. Efla Atvinnu- og rannsóknarsjóð og kynna sjóðinn betur.
B. Ljúka við Atvinnumálastefnu fyrir sveitarfélagið á árinu
C. Auglýsa kosti sveitarfélagsins á landsvísu þannig að almenn jákvæðini einkenni ímynd sveitarfélagsins
D. Vinna að áframhaldandi uppbyggingu á hafnar- og heppusvæði
E. Bjóða upp á ódýrt húsnæði fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðla bæði í þétt- og drefibýli
2. Nefndu 5 atriði sem aðrir málaflokkar/aðrar nefndir geta gert til að efla og auka umsvif í atvinnulífinu.
A. Lögð verði áhersla á að bjóða aðlaðandi íbúðalóðir
B. Skipuleggja nýjar atvinnulóðir ekki síst fyrir hótel og þjónustubyggingar
C. Halda áfram þróun Vöruhúss og auka með því líkur á nýsköpun og frumkvöðlum í skapandi greinum
D. Auka þjónustu íbúa í dreyfbýli
E. Efla menningatengda ferðaþjónustu td. með því að hefja söguna til vegs og virðingar
Atvinnumálanefnd beinir þeim tilmælum varðandi könnun um atvinnustefnu að liður 1. 2. og 3 færist aftast.

4.
Matvæladagurinn í Nýheimum 2015
Erindi frá SASS og Matís um að halda sameiginlegan Matvæladag í Nýheimum 21. apríl, með það að markmiði að kanna áhuga matvælaframleiðenda og frumkvöla.
Atvinnumálanefd fagnar framtaki SASS og Matís. og hvetur mataráhugafólk að taka þátt.