Fara í efni

Atvinnumálanefnd

5. fundur
22. apríl 2015 kl. 17:00 - 18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi sveitarfélagsins mætti á fundinn. Hún var boðin velkominn til starfa hjá sveitarfélaginu. Hún er að ljúka starfi hjá fyrri atvinnuveitanda en Árdís verður komin að fullu til starfa eftir fyrstu viku maí mánaðar.
Nefndarmenn fóru yfir drög að skoðanakönnun sem senda á til íbúa og fyrirtækja í sveitarfélaginu ekki komu fram miklar athugsemdir. Nefndarmenn hafa tíma til 26.apríl til að koma með ábendingar og skila þeim til starfsmanns nefndar. Stefnt skuli að vinnufundi 27.maí til að fara yfir niðurstöður.
2.
Reglur Atvinnu- og rannsóknarjóðs
Málsnúmer 201504041
Lögð fram drög að ramma til úthlutunar styrkja úr Atvinnu- og rannsóknarsjóði sveitarfélagsins. Nefndarmenn sammála um að mikilvægt umsækjendum verði ráðlagt að leita ráðgjafar við gerð umsóknar. Rætt um hvort bjóða eigi umsóknaraðilum að koma fyrir nefndina til að kynna umsóknir sínar. Málið tekið fyrir aftur á næsta fundi nefndar.
3.
Matvæladagurinn í Nýheimum 2015
Málsnúmer 201503074
Formaður óskaði eftir að bæta þessum lið á dagskrá fundar vegna umræðu sem skapaðist á fundinum. Samþykkt.
Farið yfir forsögu málsins.
Um síðustu áramót rann út samningur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Matís ohf. Einnig sú staðreynd að Matís hefur dregið mikið út starfssemi sinni hér á svæðinu sökum skorts á fjárheimildum frá hinu opinbera. Þessi staða breytir miklu um framtíð Matarsmiðjunnar hér á svæðinu.Starfsmaður atvinnumálanefndar ræddi við Fanney Björg Sveinsdóttir atvinnuráðgjafa SASS um leiðir til að efla þátttöku í matarsmiðjunni hér á svæðinu og hugsanleg samlegðaráhrif við kennslueldhús grunnskóla og framhaldsskóla. Ræddar voru leiðir til að kanna og vekja áhuga á Matarsmiðjunni. Áætlanir eru um að halda kynningardag til að leita eftir óskum áhugasamra einstaklinga, ferðaþjónustuaðila og matvælagreinarinnar um framtíð þessara mála. Atvinnumálanefnd sammála um að nauðsynlegt sé að standa vel að þessum kynningardegi. Mikilvægt er að velja hentuga dagsetningu fyrir viðburðinn í samráði við hlutaðeigandi. Atvinnumálanefnd telur þetta verkefni vera á sinni ábyrgð í samstarfi við SASS og Matís ohf.