Fara í efni

Atvinnumálanefnd

6. fundur
27. maí 2015 kl. 17:00 - 19:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Óðinn Eymundsson varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Ragnheiður setur fund og býður fundarmenn velkomna.
Árdís kynnir spurningakannanir vegna atvinnustefnu, annarsvegar á meðal íbúa og hinsvegar úr atvinnulífinu. Könnunin var opin til miðnættis þriðjudaginn 26. maí og höfðu þá 318 íbúar svarað og 56 svör frá atvinnulífinu. Ákveðið var að hafa könnunina fyrir atvinnulífið opna til og með sunnudagsins 7. júní nk. Starfsmaður vinnur úr opnum spurningum könnunarinnar, en aðrar spurningar eru fullunnar í kerfinu.

Umræður sköpuðust um aðalskipulag sveitarfélagsins og var bent á að Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu er ranglega nefnt Búnaðarsamband Suðausturlands í greinargerð aðalskipulagsins.
2.
Vinnufundur vegna atvinnustefnu 2015
Málsnúmer 201505063
Lagt fyrir til umræðu.
Atvinnumálanefnd samþykkir að halda vinnustofu ásamt bæjarstjórn þann 10. júní n.k. Vinnustofan er haldin undir handleiðslu SASS og verður að Hótel Vatnajökli. Markmiðið er að móta stefnu og leggja fram aðgerðarlista að fundi loknum.

Að vinnufundi loknum munu starfsmenn sveitarfélagsins og SASS draga saman helstu niðurstöður og kynna á fundi atvinnumálanefndar þann 24. júní n.k.
3.
Ferðamálastefna 2015-
Málsnúmer 201502099
Málið er sett fyrir fund til umræðna.
Rætt um mikilvægi og umfang ferðamála í Sveitarfélaginu Hornafirði og þau tækifæri og áskoranir sem því fylgja. Ljóst er að atvinnugreinin er ein af þeim stærstu hér í sveitarfélaginu og sú sem er mest vaxandi.

Umræða spannst um þann uppgang sem er í sveitarfélaginu og leiðir til að nýta þann kraft sem er í samfélaginu til frekari uppbyggingar.

Nefndin er sammála um að vinna ferðamálastefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í kjölfar vinnslu á atvinnustefnu.
4.
Atvinnuástand í Hornafirði 2015
Málsnúmer 201501085
Samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun þá er atvinnuástand í Hornafirði gott. Níu manns eru á skrá hjá VMST, en voru 21 í upphafi árs 2015. Flestir hafa verið í stuttan tíma á skrá sem bendir til þess að viðkomandi séu á milli starfa.
5.
Matvæladagurinn 2015
Málsnúmer 201503074
Málið sett fyrir fund til að ræða niðurstöður Matvæladagsins.
Árdís kynnti viðburðinn "Heima er best - tækifæri í framleiðslu matar" sem var haldinn á Hólmi miðvikudaginn 20. maí s.l. Viðburðurinn var samvinnuverkefni á milli sveitarfélagsins, SASS, Matís, Ríkis Vatnajökuls og Þekkingarsetursins Nýheima. Var hann vel sóttur af bændum, matvælaframleiðendum og ferðaþjónustuaðilum. Gerð er nánari grein fyrir deginum í Eystrahorni sem og heimasíðum sveitarfélagsins og Nýheima. Í framhaldi af þessu verður send út spurningakönnun þar sem áhugi fyrir notkun matarsmiðjunnar á Höfn er kannaður. Niðurstöður könnunarinnar verða lagðar fyrir atvinnumálanefnd.

Erla Rún harmar dagssetningu viðburðarins sérstaklega í ljósi þess að bændur voru boðaðir sérstaklega á hann og bendir á að allir þeir sem þekkja til í sveitum vita að þetta er hábjargræðistími.

Aðstandendur viðburðarins höfðu samband við ráðunaut Búnaðarsambands Suðurlands varðandi dagssetningu viðburðarins og var ekki gerð athugasemd við að hafa hann þann 20. maí.