Atvinnumálanefnd
7. fundur
1. júlí 2015
kl.
17:00
-
18:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Ottó Marvin Gunnarsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Heilsueflandi samfélag
Bæjarráð vísaði erindi um þátttöku í "Heilsueflandi samfélagi" til umræðu í atvinnumálanefnd samkvæmt eftirfarandi bókun frá 2. júní s.l: "Umræður um fundargerð Velferðarteymis varðandi Heilsueflandi samfélag, sem mun hafa mikil áhrif á alla ákvörðunartöku allra fastanefnda í sveitarfélaginu. Bæjarráð telur því mikilvægt áður en ákvörðun er tekin um innleiðingu á verkefninu að skoðun fastanefnda liggi fyrir. Nefndirnar greini hvaða áhrif verkefnið geti haft á viðkomandi málaflokka og hvað er nú þegar verið að vinna. Málinu er því vísað til allra fastanefnda til umfjöllunar."
Ragnheiður setur fund og býður Ragnhildi velkomna.
Ragnhildur kynnti hugmyndir um "Heilsueflandi samfélag" og mögulega aðkomu fastanefnda að verkefninu. Verkefnið snýst um að vinna á fyrirbyggjandi hátt varðandi heilsu í öllu samfélaginu. Lýðheilsa íbúa er því ávallt höfð að leiðarljósi í allri stefnumótun og ákvarðanatöku innan sveitarfélagsins. Ávinningur sveitarfélagsins af þátttöku í verkefninu er að það hefur aðgang að áætlunum, verkferlum og stuðningi í ferlinu. Ragnhildur bendir á að sveitarfélagið sé nú þegar þátttakandi í heilsueflandi verkefnum t.d. á skólastigunum og víðar, og að þetta verkefni sé ein leið til þess að sameina alla heilsueflingu í sveitarfélaginu undir einn hatt. Hún ræddi einnig um mikilvægi þess að fari sveitarfélagið út í slíka vegferð þá þurfi það að vera vistað hjá ákveðnum starfsmanni. Önnur sveitarfélög sem starfa nú eftir viðmiðum um "Heilsueflandi samfélag" eru t.d. Dalvíkurbyggð, Mosfellsbær og Hafnarfjörður. Það er samvinna á milli þeirra í ferlinu og láta þau vel af því.
Atvinnumálanefnd tekur jákvætt í verkefnið og hvetur sveitarfélagið til þess að taka þátt í því.

2.
Atvinnustefna 2015-
Drög að aðgerðaráætlunum frá vinnustofu kynntar.
Starfsmaður kynnti verkefnin sem komu fram á vinnustofu vegna atvinnustefnunnar þann 10. júní s.l. Ákveðið að vinna áfram með gögnin og skilgreina betur aðgerðir á fyrsta fundi nefndarinnar eftir sumarfrí, miðvikudaginn 26. ágúst. Starfsmaður sendir nefndarmönnum skjal þar sem er búið að taka saman helstu verkefni sem fram komu. Einnig er starfsmanni falið að taka saman helstu hugtök sem fram komu og leggja þau fram til nánari skilgreiningar.
3.
Ræsing
Verkefnið Ræsing hjá Nýsköpunarmiðstöð kynnt og möguleika á að fá það til Hornafjarðar.
Starfsmaður kynnti verkefnið "Ræsing" sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður upp á til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Verkefnið hefur verið keyrt í Fjallabyggð og Skagafirði og þar komu sveitarfélögin inn með 1 milljón, NMÍ með 1 milljón og fyrirtæki á svæðinu með 1 milljón. Hugmyndir eru uppi um að keyra verkefnið á svipuðum nótum í Hornafirði haust 2015.
Verkefnið felst í því að leita að góðum viðskiptahugmyndum sem auka við flóru atvinnulífs í sveitarfélaginu. Einstaklingar, hópar og fyrirtæki eru hvött til þess að senda inn viðskiptahugmyndir og sækja um þátttöku í verkefninu. Dómnefnd sem skipuð er af sveitarfélaginu, NMÍ og stærstu bakhjörlum verkefnisins velur umsóknir til áframhaldandi þróunar. Að því loknu er fullbúin viðskiptaáætlun unnin með það í huga að verkefnið sé tilbúið til fjárfestakynningar og reksturs. Bakhjarlar leggja til fjármagn sem fer í verðlaunafé og þróunarpott. Einungis verkefni sem fullklára viðskiptaáætlun eiga rétt á verðlaunum. Dómnefnd getur úrskurðað að engin viðskiptaáætlun hljóti fyrsta sætið eða að deila eigi fyrstu verðlaunum á fleiri þátttakendur.
Þátttakendur fá 12 vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín en á þeim tíma fá aðstandendur verkefnanna mikinn stuðning verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar við gerð viðskiptaáætlunar og hugsanlega við vöruþróun og frumgerðasmíði.
Atvinnumálanefnd tekur jákvætt í verkefnið og felur starfsmanni að leita eftir samstarfsaðilum til fjármögnunar á verkefninu.
Nefndin vísar afgreiðslu málsins til bæjarráðs þar sem verkefnið krefst auka fjárveitingar af hálfu sveitarfélagsins.

4.
Jöklastígur
Kynning á formlegri opnun gönguleiðarinnar Breiðármörk sem var miðvikudaginn 24. júní 2015.
Árdís kynnti formlega opnun gönguleiðarinnar "Breiðármörk" sem er 1. hluti Jöklastígsins, gönguleið með jökli í Sveitarfélaginu Hornafirði. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra opnaði gönguleiðina formlega að viðstöddum gestum, en athöfnin sem var öllum opin,var við Fjallsárlón miðvikudaginn 24. júní síðastliðin. Gönguleiðin sem er flestum fær liggur á milli Fjallsárlóns og Jökulsárlóns og er um 15 km. löng. Framkvæmdir við gönguleiðina hafa verið styrktar af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Vinum Vatnajökuls. Koma þeir aðilar einnig að fjármögnun að áframhaldandi framkvæmd verkefnisins. Jöklastígurinn hefur fengið góða kynningu bæði í blöðum, á vefmiðlum og útvarpi.