Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1017. fundur
7. desember 2021 kl. 14:30 - 17:11
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 30
Málsnúmer 2111019F
Fundargerð samþykkt.
2.
Veðurathugunarstöð fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Málsnúmer 202111110
Erindi frá ÍGF þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið myndi fjárfesta í veðurathugunarstöð fyrir urðunarstaðinn í Lóni. Vegna þess hve vindasamt er á svæðinu veldur það sorpþjónustuaðila ítrekuðum vandræðum við að koma úrgangi í urðun. Áætlaður kostnaður við slíka veðurstöð er á bilinu 200.000 - 250.000 kr. með vsk. og sendingarkostnaði. Þá má einnig gera ráð fyrir einhverjum mánaðarlegum rekstrarkostnaði vegna SIM korts í stöðina. Umhverfis- og skipulagsnefnd tók jákvætt í erindið og vísaði því til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir kaup á veðurathugunarstöð og verður fjármagnið tekið af óráðstöfuðu.
3.
Gjaldskrá byggingamála
Málsnúmer 202110086
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framlagðar breytingar á gjaldskrá verði samþykktar. Lagt er til að gjaldskráin verði tengd launavísitölu að frátöldum útreikningi gatnagerðargjalda. Málinu vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að vísa gjaldskrá byggingamála til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Gjaldskrá umhverfis- og skipulagsmála
Málsnúmer 202110085
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framlagðar breytingar á gjaldskrá verði samþykktar. Lagt er til að gjaldskráin verði tengd launavísitölu. Málinu vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá umhverfis- og skipulagsmála.
5.
Gjaldskrá fráveitu
Málsnúmer 202001022
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gjaldskráin verði hækkuð úr 0,30% af fasteignamati í 0,335%. Lagt er til að tengigjald fráveitu hækki miðað við raunkostnað úr 80.000 kr. fyrir tengingu allt að 150 mm í 90.000 kr. en fyrir tengingu yfir 150 mm er fer gjaldið úr 175.000 kr. fyrir hverja tengingu í 190.000 kr. Jafnframt lagt til að tengigjald fráveitu taki breytingum í samræmi við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar.Nefndin vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
6.
Gjaldskrá vatnsveitu
Málsnúmer 201911041
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gjaldskráin verði hækkuð úr 0,005% af fasteignamati fasteignar í 0,155%. Lagt er til að hækka stofngjald vatnsveitu m.v. raunkostnað úr 140.000 kr. í 300.000 kr fyrir lagnir undir 40 mm, fyrir lagnir yfir 40 mm er hækkar gjaldið úr 250.000 kr. í 410.000 kr. Nefndin vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að vísa framlagðri gjaldskrá til afgreiðslu í bæjartjórn.
7.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu 2021
Málsnúmer 202101107
Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að sorphirðugjald verði hækkað um 10% og að sorpeyðingargjald verði hækkað um 10% til þess að vinna í átt að því að málaflokkurinn geti staðið undir sér. Nefndin vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir hækkun á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Málsnúmer 201804015
Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til hækkun á gjaldskrá um 10% til að vinna í átt að því að málaflokkurinn geti staðið undir sér líkt og lög kveða á um. Lagt er til að verð auka klippikorta hækki úr 9.200 kr. í 13.200 kr í samræmi við urðunarkostnað per kg. Nefndin lagði til að gjaldskráin verði tengd þróun vísitölu og vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir hækkun á gjaldskrá söfnunarstöðvar en telur ekki heppilegt að tengja við vísitölu þar sem miklar breytingar eru væntanlegar í tengslum við ný lög um hringrásarhagkerfið sem taka gildi 1. janúar 2023.
9.
Reglur og gjaldskrá- refa og minkaveiði
Málsnúmer 202108052
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti 25% hækkun á veiðilaunum vegna refa- og minkaveiði. Málinu vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir 25% hækkun á veiðilaunum og vísar reglum og gjaldskrá til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Málsnúmer 202108093
Fjárhagsáætlun 2022 og þriggja ára áætlun 2023-2025 vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
11.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála vegna undirbúnings íbúakosninga. Vegna breytinga á kosningalöggjöf 1. janúar 2022 verður ekki mögulegt að kjósa í staðbundnum kosningum fyrr en í fyrsta lagi 12. febrúar. Úttekt á rafrænu kosningakerfi á að ljúka í fyrstu viku febrúar. Kosning með rafrænum hætti þykir því fýsilegri kostur og ættu kosningar að geta farið fram fyrstu vikuna í mars 2022.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir í samstarfi við samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið og Þjóðskrá Íslands.
12.
Samningur við Ríki Vatnajökuls - ósk um endurnýjun
Málsnúmer 202112002
Óksað er eftir endurnýjun á samningi fyrir næsta ár þannig að markaðsstarf félagsins geti haldið dampi, sérstaklega í ljósi viðkvæmri stöðu í greininni og hjá félaginu.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn um eitt ár, fjármagnið rúmast innan fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
13.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Málsnúmer 202105040
Framhaldsumræða um mögulega styrkveitingu vegna stofnunar þjónustusláturhúss og matarsmiðju.
Bæjarráð samþykkir 8,6 m.kr. styrk til verkefnisins og að afgangurinn af greiðslu vegna slita Sláturhússins Búa, 2 m.kr., gangi inní atvinnu- og rannsóknasjóð.
14.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202111056
Brimdís Klara Runólfsdóttir og Arnar Freyr Logasson sækja um lóð Júllatún 8.
Bæjarráð mælir með úthlutuninni og vísar henni til umfjöllunar í bæjarstjórn.
15.
Umsókn um lóð Álaleira 9
Málsnúmer 201709270
Lóðarhafi á Álaleiru 9 óskar eftir frekari frest til að hefja framkvæmdir. Ástæða fyrir því að svæðið er ennþá í skipulagsferli.
Björgvin vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að veita Mikael ehf frest til 31. mars 2022.
16.
Umsókn um lóð Álaleira 11
Málsnúmer 201709271
Lóðarhafi á Álaleiru 11 óskar eftir frekari frest til að hefja framkvæmdir. Ástæða fyrir því að svæðið er ennþá í skipulagsferli.
Björgvin vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að veita Mikael ehf frest til 31. mars 2022.
17.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021