Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1018. fundur
14. desember 2021 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Nafnasamkeppni - starfsemi Víkurbrautar 24
Málsnúmer 202108029
Efnt var til nafnasamkeppni um nafn á starfsemi velferðarsviðs í nýuppgerðu húsnæði að Víkurbraut 24 þar sem óskað var eftir tillögum frá íbúum í sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að gefa Víkurbraut 24 nafnið Miðgarður - þjónustumiðstöð velferðarsviðs Hornafjarðar. Í íslenskri nútímamálsorðabók segir að orðið Miðgarður komi úr goðafræði og merkir hin byggða jörð, mannheimur, veröldin.
Bæjarráð þakkar fyrir innsendar tillögur.
2.
Stefna: Frá Hátíðni Finity ehf
Málsnúmer 201911004
Málsmeðferð í máli Hátíðni Finity ehf. á hendur sveitarfélagsins var á dagskrá í dag en hefur verið frestað til 6. og 7. janúar 2022.
Sáttartillaga barst til bæjarráðs frá stefnanda með tölvupósti þann 12.12.21. Bæjarráð hafnar tillögunni og vísar til svars formanns, f.h. bæjarráðs, dags. 13.12.21. Bæjarráð vill ítreka að sveitarfélagið er tilbúið til að leggja ágreininginn niður, leita sátta og leggur áherslu á að bæjarstjóri og lögmaður sveitarfélagsins í málinu, fara með umboð til sáttaumleitana fyrir hönd þess.


3.
Álagning fasteignagjalda
Málsnúmer 202112044
Bæjarráð samþykkir að íbúðarhúsnæði sem er nýtt undir starfsfólk verði skilgreind í a flokk álagningareglna frá og með 1. janúar 2022.
4.
Málefni FAS
Málsnúmer 202112045
Bæjarráð tekur undir þungar áhyggjur skólanefndar Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) af fjárhagsstöðu skólans. Skólinn hefur snúið vörn í sókn með eflingu fjallamennskunáms þar sem aðsókn í námið hefur aukist verulega síðustu misseri samhliða þróun atvinnugreinarinnar í sveitarfélaginu. FAS er afar mikilvægur samfélaginu bæði sem grunnþjónusta varðandi menntun ungmenna jafnt sem öflugur vinnustaður. Verði fjárveitingar skv. fjárlögum 2022 ekki endurskoðaðar mun það leiða til harkalegs niðurskurðar á starfseminni sem muni hafa áhrif á samfélagið allt.
5.
Umsögn - Frumvarp til fjárlaga 2022
Málsnúmer 202112036
Umsagnir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga lagðar fram. Jafnframt er umsögn frá Sveitarfélaginu Hornafirði sem var send til SASS.
Lagt fram til kynningar.
6.
Kæra vegna ákvörðunar Bæjarstjórnar frá 11.nóvember 2021 vegna byggingar á lóð Stafafellsfjöll 8
Málsnúmer 202112026
Kæra hefur verið send til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar á fundi sínum 11.11.2021 þar sem heimiluð var bygging á lóð 8 í Stafafellsföllum. Þar var samþykkt var að víkja frá kröfum deiliskipulags vegna stærðar húss og mænisstefnu þar sem frávikin voru ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsögn - Brenna og flugeldasýning áramót 2021
Málsnúmer 202112027
Björgunarfélag Hornafjarðar óskar eftir umsögn sveitastjórnar og leyfi landeiganda til að halda brennu og flugeldasýningu í landi sveitarfélagsins við Hafnarbraut móts við Mjólkurstöð á áramótum.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
8.
Menntaverðlaun Suðurlands
Málsnúmer 202112020
Lagt fram til kynningar.
Íbúar hvattir til að senda inn tilnefningar.
9.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202102059
Fundargerð lögð fram til kynningar.