Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1019. fundur
21. desember 2021 kl. 14:30 - 16:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 34
Málsnúmer 2112008F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 85
Málsnúmer 2112002F
Fundargerð samþykkt.
3.
Almannavarnanefnd - 65
Málsnúmer 2111016F
Fundargerð samþykkt.
4.
Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf
Málsnúmer 202112075
Skrifstofuhúsnæði Vatnajökulsþjóðgarðs í sveitarfélaginu hefur sprengt utan af sér starfsemina vegna fjölgunar starfsmanna undanfarin misseri. Starfssstöðin á Höfn er tvískipt, annars vegar í Gömlubúð og hins vegar í Nýheimum sem gerir starfseminni erfiðara fyrir. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar eru áform um að stækka Vatnajökulsþjóðgarð enn frekar sem mun þá fylgja fjölgun starfsmanna. Áhugi er fyrir samstarfi við sveitarfélagið að frekari uppbyggingu á starfsaðstöðu og lagt til að gerð verði viljayfirlýsing milli aðila þar sem lagst verður í frekari greiningu á þörfum og framtíðarsýn ásamt því að skoðaðir verði möguleikar á að koma upp jöklasýningu í húsnæðinu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna slíka viljayfirlýsingu í samstarfi við þjóðgarðinn.
5.
Umsókn um rekstrarstyrk - Sigurhæðir
Málsnúmer 202112074
Óskað er eftir styrk til Sigurhæða - þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi að upphæð 502.110 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita umrædda upphæð og að fjárhæðin verði tekin af óráðstöfuðu á þessu ári.
6.
Ráðherra ferðamála - boð í heimsókn til Hornafjarðar
Málsnúmer 202112076
Fulltrúar frá FASK, RV og SVH hittast á mánaðarlegum fundum til að ræða ferðamál í sveitarfélaginu. Á fundi síðasta fundi þeirra kom upp sú hugmynd að sveitarfélagið mundi bjóða nýjum ráðherra ferðamála, Lilju Alfreðsdóttur, í heimsókn í sveitarfélagið til að kynna ferðamál á svæðinu.
Bæjarráð fagnar frumkvæðinu og mun senda Lilju Alfreðsdóttur nýjum ráðherra ferðamála, viðskipta og menningarmála formlegt boð í heimsókn til Hornafjarðar.
7.
Ósk um leiguhúsnæði - Hrollaugssataðir
Málsnúmer 202112029
Bæjarráð bókaði á fundi sínum 23.11.21 að íbúðir í Hrollaugsstöðum yrðu auglýstar til leigu. Bæjarráð ítrekar þá bókun og felur bæjarstjóra að auglýsa íbúðirnar í fyrsta Eystrahorns blaði á nýju ári.
8.
Sundlaug - Ábending um opnunartíma um jól og áramót
Málsnúmer 202112040
Ósk hefur komið um að lengja opnunartíma sundlaugar á aðfangadag frá 11:00 til 15:00 og gamlársdag frá 11:00 til 13:00.Nefndin leggur til að lengja opnun sundlaugarinnar til 12:00 bæði á aðfangadag og gamlársdag. Málinu vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslu- og tómstundanefndar að lengja opnunartíma sundlaugar til kl. 12 á aðfangadag og gamlársdag. Kostnaðurinn rúmast innan ramma sundlaugarinnar.
9.
Mannauðsmál - mannauðsstjóri að láni.
Málsnúmer 202112049
Sveitarfélagið hefur gert samning við Attentus um þjónustu mannauðsstjóra.
Lagt fram til kynningar.
10.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Líkt og fram hefur komið var öllum tilboðum í útboði vegna byggingar hjúkrunarheimilis hafnað þar sem þau voru yfirkostnaðaráætlun. Þeim bjóðendum sem uppfylltu hæfiskröfur var í kjölfarið boðið tilsamkeppnisútboðs, sbr. e lið 2. mgr. 33. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL). Aðeins annarþeirra þáði það boð og hafa viðræður við þann aðila staðið yfir sl. vikur. Minnisblað hefur nú verið sent Sveitarfélaginu Hornafirði og Heilbrigðisráðuneytinu þar sem niðurstöður viðræðna eru kynntar.
Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir nýju tilboði frá verktaka miðað við þær forsendur sem gefnar eru í minnisblaðinu.
Í kjölfarið þarf samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir að fjalla um málið. Vonast er til að niðurstöður liggi fyrir sem fyrst svo framkvæmdir geti hafist snemma á næsta ári.
11.
Fjallskilabréf 2021
Málsnúmer 202108098
Óskað er eftir heimild bæjarráðs fyrir eftirleitum.
Bæjarráð heimilar eftirleitir í Nesjum í samræmi við fjallskilasamþykkt sveitarfélagsins.
12.
Brennuleyfi - Laxá í Nesjum 6.janúar
Málsnúmer 202112077
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn en bendir á að sóttvarnarreglur sem taka gildi á miðnætti og gilda í næstu þrjár vikur gera ráð fyrir 20 manna fjöldatakmörkunum.
13.
Umsögn - Brenna og flugeldasýning áramót 2021
Málsnúmer 202112027
Ákveðið hefur verið að sleppa brennunni vegna nýrra sóttvarnarreglna. Björgunarfélagið leggur til að flugeldasýningin verði haldin með sama hætti og fyrir ári síðan, við tjaldsvæðið þannig að bæjarbúar geti notið frá heimilum sínum.
Rekstraraðilar tjaldvæðis hafa gefið leyfi fyrir flugeldasýningunni. Bæjarráð heimilar því flugeldasýningu við tjaldsvæðið á Höfn á áramótunum.
14.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021
Málsnúmer 202102014
Lagt fram til kynningar.