Bæjarráð Hornafjarðar
1021. fundur
18. janúar 2022
kl.
16:00
-
17:10
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 10
Fundargerð samþykkt.
2.
Reglur um félagslegt húsnæði
Í 4. gr. í reglum um félagslegt leiguhúsnæði segir að fjárhæðir um tekjur og eignaviðmið séu endurskoðaðar af velferðarnefnd árlega.Velferðarnefnd samþykkti að fylgja viðmiðum um tekju-og eignamörk sem eru sett af félagsmálaráðuneytinu ár hvert.
Bæjarráð samþykkir viðmið um tekju og eignamörk sem velferðarnefnd leggur til.
3.
Undanþágulisti - verkfallsheimild
Samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er lagður fram listi yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista og vísar málinu í lögformlegt ferli.
4.
Styrkir bæjarráðs 2022
Umsóknir skoðaðar og ræddar, unnið áfram að málinu.
5.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2022
Leiðrétt húsnæðisáætlun lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlunina.
6.
Ósk um stækkun á Bjarnaneskirkjugarði
Grafreiturinn í kirkjugarðinum við Laxá rúmar nú ekki fleiri reiti. Starfsmenn í samstarfi við Biskupsstofu hafa unnið að skipulagi á stækkun grafreitsins. Framkvæmdir hefjast vonandi í næstu viku.
Lagt fram til kynningar.
7.
Nýheimar: samstarfssamningur 2020
Samningur var gerður við Nýheima fyrir rúmu ári síðan með eins árs gildistíma. Nú er sá tími liðinn og hafa verið gerð drög að viðauka við þann samning. Bæjarráð leggur til að gerður verði viðauki með eins árs gildistíma, ný bæjarstjórn taki ákvörðun um tímalengd næsta samnings.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
8.
Reglugerð um sóttvarnir
Ný reglugerð um sóttvarnir hefur tekið gildi þar sem kveðið er á um 10 manna samkomutakmörk. Reglugerðin hefur áhrif á starfsemi sveitarfélagsins líkt og fjallað hefur verið um á heimasíðu sveitarfélagsins.Afgreiðsla í ráðhúsi sveitarfélagsins er opin. Lokað er fyrir aðgang á efri hæðir í ráðhúsi nema með því að bóka viðtal í afgreiðslu.
Reglugerðin gildir til 2. febrúar.
9.
Hrollaugsstaðir - íbúðir til leigu
Tvær íbúðir í Hrollaugsstöðum voru auglýstar til leigu og sóttu Skyrhúsið ehf. og Vatnajökulsþjóðgarður um.
Bæjarráð samþykkir að Skyrhúsið ehf. fái stærri íbúðina og Vatnajökulsþjóðgarður fái minni íbúðina.
10.
Fundargerð - stjórn samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.