Bæjarráð Hornafjarðar
1023. fundur
25. janúar 2022
kl.
14:30
-
16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 86
Farið yfir fundargerðina, Brynja kynnti þrívíddarteikningar af nýrri líkamsræktarstöð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 35
Fundargerð samþykkt.
3.
Erindi frá stjórn Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs
Erindi frá stjórn Gjafa- og minningarsjóði Skjólgarðs þar sem rætt er um breytt fyrirkomulag sjóðsins, skipan stjórnar hans. o.fl.
Stjórn gjafa og minningarsjóðs gerði grein fyrir þeim breytingum sem gera þarf á starfi sjóðsins.
Bæjarstjóra og Sigurlaugu Gissurardóttur er falið að vinna drög að samkomulagi um þjónustu sveitarfélagsins við gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs.
Bæjarstjóra og Sigurlaugu Gissurardóttur er falið að vinna drög að samkomulagi um þjónustu sveitarfélagsins við gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs.
4.
Verklagsreglur vegna viðauka fjárhagsáætlana
Lögð fram drög að verklagsreglum um gerð viðauka við fjárhagsáætlanir Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Ársskýrsla frá Brunavörnum Austur-Skaftafellssýslu 2021
Borgþór greindi frá helstu liðum í ársskýrslu brunavarna Austur- Skaftafellssýslu.
6.
Úttekt á starfsemi - Slökkvilið Hornafjarðar
Úttekt á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Slökkviliði Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir framlagðar úrbótaaðgerðir og felur starfsmönnum að senda Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
7.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við útboð byggingar hjúkrunarheimilis.
Beðið er eftir uppfærðu tilboði frá verktaka sem mun þurfa samþykki hjá fjármálaráðuneytinu.
Beðið er eftir uppfærðu tilboði frá verktaka sem mun þurfa samþykki hjá fjármálaráðuneytinu.
8.
Styrkir bæjarráðs 2022
Bæjarráð samþykkir styrkúthlutunina, starfsmönnum falið að tilkynna styrkþegum úthlutun bæjarráðs.
Styrkafhendingar verða 11. mars nk.
Bæjarstjóra falið að gera samning við Hirðingjana um stuðning við starfið.
Styrkafhendingar verða 11. mars nk.
Bæjarstjóra falið að gera samning við Hirðingjana um stuðning við starfið.
9.
Erindi frá stjórn SASS - Umdæmisráð barnaverndar
Erindi frá stjórn SASS þar sem kemur fram að sveitarfélög eru hvött til að kanna hvort vilji sé til samstarfs um að sveitarfélögin á Suðurlandi stofni og reki sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar. Umdæmisráðið gæti þá náð til allra eða hluta sveitarfélaga í landshlutanum og mögulega gæti það náð yfir sveitarfélög í öðrum landshlutum ef það yrði talið skynsamlegt.
Bæjarráð tekur vel í hugmynd um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar fyrir Suðurland eða stærra svæði.
10.
Stefna: Frá Hátíðni Finity ehf
Lögð fram undirrituð skjöl vegna réttarsáttar í málinu, með réttarsátt lýkur efnislegum ágreiningi málsaðila. Málið er þar með fellt niður og málskostnaður var settur í ákvörðun dómsins.
11.
Nýheimar: samstarfssamningur 2020
Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningi út árið 2022. Samningsupphæð rúmast innan ramma.
12.
Umsögn - Tillaga um almannavarnir 181.mál.
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.